32 ár liðin frá stofnun rússneska sambandsríkisins
Á sama tíma og Rússar halda uppi hörðum stórskotaliðs- og eldflaugaárásum á óbreytta borgara í austur Úkraínu fagna þeir því að 32 ár eru liðin í dag frá stofnun rússneska sambandsríkisins. Zelensky Úkraínuforseti segir rúmlega þrjátíu þúsund rússneska hermenn hafa fallið í stríðinu og í Reykjavík mótmæltu rússneskir íbúar innrásinni í Úkraínu.