Líkur á að Þjóðverjar hafi verið að búa í haginn fyrir innrás
Gamlir svifflugmenn telja líkur á því að nasistar hafi nýtt þýskan svifflugleiðangur til Íslands skömmu fyrir stríð til að undirbúa mögulega innrás. Breski herinn taldi hættuna það mikla að hann gerði Sandskeið ónothæft sem flugvallarstæði með því að þekja það sprengigígum.