Myndband Vegagerðarinnar af breikkun Reykjanesbrautar
Vegagerðin óskar eftir tilboðum í tvöföldun Reykjanesbrautar á um 5,6 km kafla milli Krýsuvíkurvegar og Hvassahrauns ásamt aðliggjandi hliðarvegum. Einnig er inni í verkinu bygging fimm brúarmannvirkja og einna undirganga úr stáli. Verkinu skal að fullu lokið 30. júní 2026.