Kirkjusmíðin heldur áfram í Grímsey
Grímseyingar vonast til að góður stuðningur velgjörðarmanna verði til þess að þeir geti haldið áfram smíði nýrrar kirkju í stað þeirrar sem brann en verkið hefur legið niðri vegna fjárskorts. Stefnt er að hjónavígslu í næsta mánuði.