Oddviti Skorradalshrepp segir til greina koma að hreppurinn kaupi svokallaðan þyrlupoka
Oddviti Skorradalshrepp segir til greina koma að hreppurinn kaupi svokallaðan þyrlupoka fyrir slökkvistarf á svæðinu ef upp koma gróðureldar í dalnum. Rætt sé um að hreppurinn og Borgarbyggð setji aukið fé í rekstur sameiginlegs slökkviliðs til að geta sinnt betur eftirliti og brunaæfingum.