Hver ætlar að eiga, hver ætlar að byggja og hver ætlar að borga?
Fjármálaráðherra segir lykilatriði að fá á hreint hve stóran hlut ríki og borg þurfi að greiða fyrir nýja þjóðarhöll sem áætlað er að taka í notkun árið 2025. Vel gerlegt sé að reisa höllina á þeim tíma en þá þurfi allt að ganga upp.