Íslensks karlmanns er leitað vegna manndrápsins
Íslensks karlmanns er leitað í tengslum við rannsókn á manndrápi í Reykjavík í fyrrinótt. Talið er að málið tengist uppgjöri í undirheimunum en karlmaður frá Litháen hefur verið hnepptur í gæsluvarðhald vegna málsins. Dómsmálaráðherra segist skynja aukna hörku í undirheimunum og segir mikilvægt að bregðast við.