Ræða við vitni að árásinni
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu skoðar nú myndbandsupptökur frá skemmtistaðnum þar sem maður lést eftir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur aðfaranótt laugardags. Enn á eftir að ræða við nokkur vitni, en fjölmennt var á skemmtistaðnum þegar árásin var gerð. Lögregla hefur þegar yfirheyrt hinn grunaða, sem er þrítugsaldri og er íslenskur. Hinn látni var frá Litháen, en lögregla segir ekkert benda til þess að árásina hafi mátt rekja til þjóðernis mannsins.