Ísland í dag - Hætti á DV og opnaði bar
FJölmiðlakonan Tobba Marinósdóttir hætti sem ritstjóri á DV og snéri sér alfarið að matvælarekstri. Tobba byrjaði á því að framleiða sykurlaust granóla með móður sinni og það verkefni óx þannig að hún gat ekki lengur sinnt því aðeins á kvöldin og ákvað að hella sér alfarið út í rekstur og opnaði fyrir stuttu Granólabarinn eða hollasta bar landsins að eigin sögn. Við kíktum til Tobbu nú á dögunum og fengum að skyggnast á bakvið tjöldin á barnum.