Hyggjast framleiða mun meiri raforku í Svartsengi
Ráðamenn HS Orku stefna að því að auka raforkuframleiðslu í Svartsengi um helming á næstu þremur árum, eða um þrjátíu til fjörutíu megavött, aðallega með endurnýjun vélbúnaðar. Þeir óttast ekki fjárfestingar svo nálægt óróafjallinu Þorbirni.