Samþykkti ekki bókun stjórnar dómstólasýslunnar
Forseti Landsréttar samþykkti ekki bókun stjórnar dómstólasýslunnar á föstudag um fjölgun dómara í Landsrétti eftir dóm Mannréttindadómstóls Evrópu um ólöglega skipan dómara í réttinn. Forsætisráðherra flytur skýrslu á Alþingi eftir hádegið um viðbrögð stjórnvalda við dómi Mannréttindadómstólsins.