Tveir í haldi vegna andláts í Hafnarfirði

Tveir karlmenn eru í haldi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á andláti karlmanns á fimmtugsaldri í iðnaðarhverfi í Hafnarfirði í nótt. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu barst útkall vegna málsins á sjötta tímanum og hélt hún þegar á vettvang, en hinn látni var meðvitundarlaus utandyra þegar að var komið. Reynt var að endurlífga manninn en það bar ekki árangur. Í kjölfarið voru tveir karlar handteknir í tengslum við málið, annar í húsi við vettvanginn og hinn þar nærri. Lögregla segir málið á frumstigi og að ekki sé unnt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu.

194
00:41

Vinsælt í flokknum Fréttir