Bakþankar

Bakþankar

Fréttamynd

Það fegursta í heimi

Ég er neytandi. Ég lifi á frábærasta tímabili veraldarsögunnar. Ég er örsmátt tannhjól í sældarríkismaskínu Vesturlanda.

Bakþankar
Fréttamynd

Myrkraverk

Eftir því sem myrkur árstíðarinnar magnast, því dapurlegri verður þjóðfélagsumræðan.

Bakþankar
Fréttamynd

Út í sjoppu

Hver æjar? Hver veinar? Hver á í deilum? Hver kvartar? Hver fær sár að þarflausu? Hver rauð augu? Þeir sem sitja við vín fram á nætur, þeir sem koma saman til að bergja á krydduðum drykkjum.

Bakþankar
Fréttamynd

Barnagull

Eftir að hafa drepið tímann með nöguðum húsdýrabeinum í meira en þúsund ár stendur íslenskum börnum til boða að eignast alvöruleikföng. Heimskunnar barnamenningarstofnanir eins og Toys ‘R Us (Leikföng ‘rum við) og Just4Kids (Bara fyrir börn) hafa loksins sett upp útibú hérna á skerinu. Fram á síðustu öld þekktist ekki afþreying handa börnum á Íslandi nema einhvers konar hreyfing sem útheimti líkamlega fyrirhöfn og óþarfa fitubrennslu ef undan eru skilin upptrekkt leikföng eins og spiladósir handa heldri manna börnum.

Bakþankar
Fréttamynd

Óendanlegur ósennileiki tilverunnar

Tilvist Guðs verður hvorki sönnuð né afsönnuð með rökum. Það er fullreynt. Sannfærðustu trúmenn hafa ekki getað kveðið efasemdarraddir endanlega í kútinn og hörðustu trúleysingjar hafa þurft að sætta sig við þá niðurstöðu að Guð sé „kannski til“. Að vísu kjósa þeir yfirleitt orðalagið að hann sé „næstum því örugglega ekki til“, sem er auðvitað það sama. Tilvist Guðs brýtur m. ö. o. ekki í bága við grundvallarlögmál rökfræðinnar, hún er bara óendanlega ósennileg.

Bakþankar
Fréttamynd

Sögur eru dýrmætar

Sjaldan hefur jólabókaflóðið farið af stað með öðrum eins látum og nú í ár. Fyrst rak nýja Biblíuþýðingu á fjörur þjóðarinnar. Á meðan sumir fögnuðu henni stóð það í öðrum að hið heilaga orð væri ekki heilagra en svo að mætti skipta stöku hugtökum út fyrir önnur nútímalegri. Það getur greinilega verið sárt að mega ekki tala lengur um „kynvillinga“ eða hvað það nú var sem einstaka presti finnst svona mikill missir að.

Bakþankar
Fréttamynd

Loppur á lyklaborðinu

Ýmsir spekingar hafa haldið því fram að það sé tungumálið sem greinir mennina frá dýrunum. Ég held það hljóti að vera á misskilningi byggt. Ég hef nefnilega komist að því að íslensk gæludýr eru ákaflega vel máli farin. Um það vitnar fjöldi heimasíðna á veraldarvefnum þar sem íslensk dýr af ýmsum tegundum blogga um reynslu sína og tilfinningar.

Bakþankar
Fréttamynd

Að sigra 101

Fólk af landsbyggðinni er mikið skemmtilegra en það sem kemur úr bænum." Þessi fullyrðing hrökk upp úr samstarfsmanni mínum í hádegishléi fyrir skemmstu.

Bakþankar
Fréttamynd

Frakkar, frelsið og áfengið

Hugmyndir manna um "frelsi" eru ákaflega mismunandi. Íslensk orðabók handa skólum og almenningi segir að frelsi sé "sjálfstæði, frjálsræði" sem bendir til þess að Íslendingar haldi að frelsi sé sjálfsagður hlutur sem hvorki þurfi að skilja né skilgreina. Orðabók Cambridge-háskóla kafar aðeins dýpra og segir að frelsi sé "réttur til að geta eða mega segja, hugsa o.s.frv. hvað sem þú vilt, án eftirlits eða takmarkana".

Bakþankar
Fréttamynd

Billjónsdagbók 4.11.

OMXI15 var 8.001,60, þegar síminn vakti mig skelþunnan í eksklúsífu svítunni á Hôtel Hermitage í Mónakó, og Dow Jones var 13.930,01 þegar ég heyrði í gegnum höfuðkvalirnar að Iwaunt Moore var að hringja frá útrásarstöðinni sem við fengum Össur til að opna í Sungaipakning gegn því að við redduðum samruna á milli Össurar og Susilo Bambang Yudhoyono yfir bolla af te. Mér leið eins og verðkönnunarkjöti; mér var svo flökurt í símanum.

Bakþankar
Fréttamynd

Bókabrennur

Umræða um endurútgáfu bókarinnar Tíu litlir negrastrákar með teikningum eftir Mugg er svolítið athyglisverð. Mér finnst sjálfum fullkomlega ástæðulaust að endurútgefa þessa bók, hún má kjurr liggja, einkum og sér í lagi í ljósi þess að hún á sér rætur í dálítið viðurstyggilegri hugmyndafræði, alveg burtséð frá því hvað teikningarnar kunna að vera kjút og rímið snjallt.

Bakþankar
Fréttamynd

Nokkur framfaramál

Út er komin hin klassíska barnabók Tíu litlar skipamellur eftir Metúsalem frá Munaðarnesi, eitt ástælasta skáld þjóðarinnar.

Bakþankar
Fréttamynd

Hnignun frábærleikans

Gengi íslenska landsliðsins í fótbolta er svartur blettur á andlegri sigurgöngu Íslands. Allir þessir tapleikir – og þá sérstaklega afhroðið gegn Liechtenstein – hafa dregið landsmenn niður, nánast aftur í moldarkofana.

Bakþankar
Fréttamynd

Dálítil hugvekja

Litlu hugvekjurnar sem birtast þegar síst varir eru stundum nógu góðar til að halda upp á sannleikann sem í þeim felst.

Bakþankar
Fréttamynd

Illmenni og kýr

Íslenska landnámskýrin er eins og þjóðin. Lítil, krúttleg og afskaplega dugleg. Hún kom með forfeðrum okkar til landsins í opnum bát yfir Atlantshafið.

Bakþankar
Fréttamynd

Sannleikurinn mun gjöra yður frávita

Nokkur styr hefur staðið um nýja biblíuþýðingu, eins og við var að búast, enda hefði annað verið algjört nýmæli í sögu þeirra. Núna muna að vísu fæstir eftir látunum í kringum fyrri þýðingar og sömuleiðis verður uppnámið núna flestum gleymt þegar sú næsta leysir þessa af hólmi.

Bakþankar
Fréttamynd

Blóm hins illa

Síðustu helgi fóru fjölmiðlar mikinn í umfjöllun um þann kvitt að knattspyrnukonur hefðu tekið sig saman um að kjósa ekki Margréti Láru Viðarsdóttur úr Val Leikmann ársins.

Bakþankar
Fréttamynd

Sæl eru einföld

Þegar ég fæddist var símanúmerið heima hjá mér þrjár stuttar. Mér finnst ég háöldruð þegar ég hugsa til þess og skammast mín næstum fyrir að segja frá þessu. Núna, rúmum aldarfjórðungi síðar, er enginn átta ára krakki maður með mönnum nema hann eigi GSM-síma af þriðju kynslóð farsíma. Enginn léti bjóða sér upp á að tala í síma sem nágrannarnir gætu hlerað.

Bakþankar
Fréttamynd

Vilji Guðs

Af því það sem blasir við er svo niðurdrepandi eitthvað – að við séum aðeins örverur sem hringsnúast á jarðarkúlu í lífvana svartnætti í algjöru tilgangsleysi og næsta líf í mesta lagi í milljón ljósára fjarlægð, og þá kannski bara í formi slíms – hefur meirihluti jarðarbúa sammælst um að það hljóti bara að vera eitthvað meira, og jafnvel einhver æðri tilgangur með þessu basli öllu.

Bakþankar
Fréttamynd

Krossar að bera

Mikið skil ég málaferli amerísku hjónanna gegn blómasalanum sem sá um skreytingarnar í brúðkaupinu þeirra. Kvikindið notaði blóm í vitlausum lit og rukkaði svakalega í þokkabót. Þetta olli parinu vitaskuld miklu hugarangri og sálarkvöl, það er harðneskjulegt að þurfa að lufsast í hjónaband með hjálitan blómvönd.

Bakþankar
Fréttamynd

Í eilífðinni

Líklega er það flughræðslan sem fær mig til að hugsa um guð og dauðann á ferðalögum. Eftir flugtak gríp ég iðulega Moggann, fletti upp í minningargreinum og velti fyrir mér hvernig slík grein yrði væri hún skrifuð um andlát mitt.

Bakþankar
Fréttamynd

Hinn „þögli“ meirihluti

Íslenska þjóðin skiptist í tvennt; minnihluta og þöglan meirihluta. Í þögla meirihlutanum sem rúmlega 60 prósent þjóðarinnar tilheyra eru kommúnistar, laumukommúnistar, kratadindlar, græningjar, eyðingaröfl, hommar, mussukerlingar, femmur og trukkalessur – auk framsóknarhyskis sem skiptist í jarðálfa í framsóknarfjósum og samviskulausa mafíósa sem lifa eins og rottur í holræsakerfi sérhagsmuna.

Bakþankar
Fréttamynd

Billjónsdagbók 21.10

OMXI15 var 8.468,06, þegar ég gáði í morgun hvort ég hefði misst kaupréttarsamninginn undir hjónarúmið, og Dow Jones var 13.984,80 þegar ég fann allt í einu lengst undir rúminu minnisblaðið sem gamli borgarstjórinn hafði gleymt til 20 ára eftir fundinn með okkur Jóa. Ég fékk líka hóstakast því að gólfið undir rúminu var þakið í óhroða og skúmi eins og þar hefði allt verið á fullu í einkavæðingu.

Bakþankar
Fréttamynd

Eigðu góðan dag!

Kona sem ég þekki ekki nógu mikið til að hún geti fjölyrt um lyndiseinkunn mína gerði það samt um daginn. Að hennar sögn er mér tamt að benda á það sem bjátar á en leggja aldrei til neinar lausnir. Ljótt ef satt er en hún minntist aftur á móti ekki einu orði á hvað ég ætti að gera í þessu. En í samfélagi sem þarfnast úrbóta er hugarfar sem þetta vissulega löstur. Ég hef því einsett mér að hætta alfarið að einblína á vandamál en hugsa og tala í lausnum. Heildarlausnum ef vel vill til.

Bakþankar
Fréttamynd

Alvöru útrás

Frá því fyrsta nútímahljómsveit Íslands, Hljómar, kom fram hafa metnaðarfullar hljómsveitir átt í ástar/haturssambandi við klakann. Hér er fæðingardeildin og heimavöllurinn, en Ísland er örmarkaður sem hljómsveitir klára á fyrsta æviskeiði sínu. Ekkert kálar góðri hljómsveit eins hratt og örugglega og að hanga hér í fámenninu spilandi endalaust fyrir sama fólkið. Því hafa popparar verið með meikið á bakvið eyrað frá fyrstu tíð.

Bakþankar
Fréttamynd

Náttúrulegt uppeldi

Auðveldasta leiðin til að fylla fólk vanmetakennd og óöryggi er í tengslum við uppeldi barnanna. Að minnsta kosti fyrsta barnsins því kæruleysi foreldra hefur tilhneigingu til að aukast í réttu hlutfalli við vaxandi ómegð. Fyrr á tímum þurftu mæður og feður einkum að ákveða hvort þau ættu að berja börnin mikið eða lítið, en nú gefast alls kyns tilefni til valkvíða um uppeldisaðferðir.

Bakþankar
Fréttamynd

Sjúkir í sinni

Enskukunnátta Íslendinga kemur fyrst og fremst úr afþreyingarmenningu. Eftir að hafa fermst, kyngt oblátu og messuvíni, tók ég utan af gjöfunum sem ég fékk í tilefni dagsins.

Bakþankar
Fréttamynd

Ljósberar okkar tíma

Stundum fara stórmerkilegar alheimsfréttir fyrir ofan garð og neðan hjá fólki. Tiltölulega fáir vita af eftirtöldum merkis­atburðum: "Snoop Dogg sinnir samfélagsstörfum í almennings­garði", "Upplýst um leyndarmál Erics Clapton í nýrri ævisögu" og "Mel C á sérfæði til að stækka á sér brjóstin". Meira að segja vandaðar frásagnir eins og "Mary krónprinsessu líður eins og ein­stæðri móður" eða "Britney fær aukinn umgengnisrétt" lenda utan­veltu í umræðunni.

Bakþankar
Fréttamynd

Flokksræfilsháttur

Flokksræfilsháttur íslenskra stjórnmálamanna hefur nú endanlega gengið af stjórnmála­áhuga mínum dauðum. Ekkert er metið hlutlægt, engrar samkvæmni gætir, allt er skilið samkvæmt hagsmunum flokksins.

Bakþankar