Kennedy-fjölskyldan lýsir yfir stuðningi við Biden Að minnsta kosti fimmtán manns úr Kennedy-fjölskyldunni lýstu yfir stuðningi við Joe Biden í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í dag. Það gerðu þeir þrátt fyrir að Robert F. Kennedy yngri sé í framboði. Erlent 18. apríl 2024 23:51
Johnson í erfiðri stöðu Frumvarp um frekari hernaðaraðstoð frá Bandaríkjunum til Úkraínu hefur færst nær því að verða lagt fyrir fulltrúadeild Bandaríkjaþings, eftir að hafa setið þar fast í marga mánuði. Mike Johnson, þingforseti, kæmi frumvarpinu ekki í gegnum þingið án aðstoðar Demókrata og það gæti þar að auki kostað hann embættið. Erlent 18. apríl 2024 16:38
Trump dottaði þegar fyrsta sakamálið var tekið fyrir Ekki tókst að velja neina kviðdómendur á fyrsta degi réttarhalda í sakamáli á hendur Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, í New York í gær. Trump sást dotta á meðan hæfi mögulegra kviðdómenda var metið. Erlent 16. apríl 2024 12:03
Fyrsta sakamálið gegn Bandaríkjaforseta fyrir dóm Söguleg réttarhöld yfir Donald Trump vegna ólöglegra greiðslna til klámstjörnu hefjast með vali á kviðdómendum í New York í dag. Þetta er er í fyrsta skipti sem fyrrverandi Bandaríkjaforseti er sakborningur í sakamáli. Erlent 15. apríl 2024 12:40
Johnson leitaði á náðir Trumps Mike Johnson, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, leitaði í gær á náðir Donalds Trump, fyrrverandi forseta og núverandi forsetaframbjóðanda Repúblikanaflokksins. Johnson hefur átt í miklu basli með þingflokk sinn sem hefur mjög nauman meirihluta á þingi og nánir stuðningsmenn Trumps hafa unnið gegn honum. Erlent 13. apríl 2024 17:04
Sonur Biden kemst ekki hjá réttarhöldum Alríkisdómari hafnaði kröfu Hunters Biden, sonar Bandaríkjaforseta, um að vísa frá ákærum vegna skotvopnalagabrota í dag. Réttarhöld yfir Biden gætu nú hafist í sumar í miðri kosningabaráttu föður hans. Erlent 12. apríl 2024 23:54
Trump lætur reyna á þagnarskylduna Innan við tveimur vikum eftir að Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, var meinað af dómara að tjá sig með niðrandi og æsandi hætti um dóttur dómarans, vitni, kviðdómendur og aðra sem að réttarhöldunum gegn honum í New York koma, hefur Trump gagnrýnt tvo líkleg og mikilvæg vitni á samfélagsmiðlum. Erlent 12. apríl 2024 14:11
Vill herja á Trump vegna þungunarrofs Miklar deilur mynduðust á þingi Arizona í Bandaríkjunum í gær þegar Repúblikanar komu í veg fyrir umræðu um að fella úr gildi 160 ára gömul lög um bann við þungunarrofi sem voru nýverið endurvakin af hæstarétti ríkisins. „Skömm, Skömm!“ var kallað í þingsalnum þegar umræðan var stöðvuð. Erlent 11. apríl 2024 16:17
Erfiðir dagar í vændum á óreiðukenndu þingi Bandarískir þingmenn snúa aftur úr tveggja vikna páskafríi í dag, þriðjudag, en þeir standa frammi fyrir þó nokkrum umdeildum og erfiðum málum. Óreiða hefur einkennt þingið þetta kjörtímabil og þá sérstaklega í fulltrúadeild Bandaríkjaþings, þar sem Repúblikanaflokkurinn hefur haft nauman og minnkandi meirihluta. Erlent 9. apríl 2024 08:00
Cameron fundar með Trump í Flórída David Cameron, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands og núverandi utanríkisráðherra, mun funda með Donald Trump, fyrrverandi forseta og núverandi forsetaframbjóðanda, í opinberri heimsókn sinni til Bandaríkjanna. Erlent 9. apríl 2024 07:23
Vill innflytjendur frá „huggulegum“ löndum eins og Danmörku Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi, kvartaði um helgina yfir því að fólk frá „huggulegum“ löndum eins og Danmörku væru ekki að flytja til Bandaríkjanna. Þess í stað sagði hann að fólk úr fangelsum „ótrúlegra“ og „hörmulegra“ landa flæddu til Bandaríkjanna. Erlent 8. apríl 2024 09:56
„Vona að ritstjóra Morgunblaðsins sé ekki farið að förlast“ Davíð Oddsson ritstjóri Morgunblaðsins lagði í dag út frá slúðursögu í leiðara sínum sem er algerlega úr lausu lofti gripin. Innlent 5. apríl 2024 11:22
Segja Kínverja munu nota gervigreind til að beita sér í kosningum í öðrum ríkjum Stjórnvöld í Kína munu freista þess að hafa afskipti af kosningum í Bandaríkjunum, Suður-Kóreu og Indlandi á þessu ári, með aðstoð gervigreindar. Þetta segir í nýrri skýrslu netöryggisteymis Microsoft. Erlent 5. apríl 2024 08:22
Segist hafa barist við Kína á Íslandi og borið sigur úr býtum „Þetta er Jeff Gunter: vinnuveitandi, læknir og fjölskyldumaður. Sem sendiherra barðist hann við Kína og vann. Þegar mikið var í húfi valdi Trump Gunter til að koma fram fyrir hönd Bandaríkjanna. Nú býður Gunter sig fram til öldungadeildar Bandaríkjaþings til að berjast enn og aftur fyrir málstaðnum um að setja Ameríku í fyrsta sæti. Hann mun þurrka upp fenið og berjast við öfgafullan „Woke“-boðskap Demókrata. Kjóstu 110 prósent stuðningsmann Trump, sendiherrann Jeff Gunter.“ Erlent 3. apríl 2024 22:06
„Ég nota orðið dýr því það er það sem þau eru“ Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi, sagði farand- og flóttafólk aftur vera „dýr“ í kosningaræðu í Michigan í gær. Þá endurtók hann gömul ummæli um að ráðamenn annarra ríkja væru að senda glæpamenn til Bandaríkjanna með ólöglegum hætti. Erlent 3. apríl 2024 10:15
Trump bannað að tala um dóttur dómara Juan M. Merchan, dómarinn í einu af dómsmálunum gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hefur gert breytingar á viku gamalli skipun þar sem hann meinaði Trump að tjá sig um vitni, kviðdómendur og aðra sem tengjast réttarhöldunum. Skipunin nær nú einnig yfir Loren Merchan, dóttur dómarans, en Trump hefur farið með falskar yfirlýsingar um hana á samfélagsmiðlum. Erlent 2. apríl 2024 09:56
Dómararnir virtust efast um réttmæti málsins gegn FDA Dómarar við Hæstarétt Bandaríkjanna virðast hafa verulegar efasemdir um málflutning samtaka sem vilja að dómstóllinn felli úr gildi ákvarðanir Matvæla- og lyfjastofnunar Bandaríkjanna um að heimila notkun mifepristone. Erlent 27. mars 2024 08:09
Lækka trygginguna meðan Trump áfrýjar Tryggingin sem Trump þarf að greiða vegna 454 milljóna dala sektar sem honum hefur verið gert að greiða í New York í 175 milljónir. Trump þarf þó að leggja fram trygginguna innan tíu daga og hún gildir eingöngu meðan hann áfrýjar sektarúrskurðinum. Erlent 25. mars 2024 18:06
Landsnefndin notuð til að borga lögfræðikostnað Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, hefur gert nýtt fjáröflunarsamkomulag við Landsnefnd Repúblikanaflokksins (RNC). Það samkomulag felur í sér að fjármunir sem RNC safnar fara í pólitískan aðgerðasjóð Trumps til að borga lögfræðikostnað hans. Erlent 22. mars 2024 11:03
Dómarinn í skjalamálinu harðlega gagnrýndur Lögmenn og fyrrverandi dómarar hafa lýst yfir mikilli furðu á skipun sem dómarinn í skjalamáli Trumps svokölluðu gaf út í vikunni. Telja þeir aðgerðir dómarans gefa til kynna að réttarhöldin gegn Trump fyrir að taka með sér opinber og leynileg skjöl þegar hann flutti úr Hvíta húsinu og neita að afhenda þau, muni ekki fara fram í bráð. Erlent 21. mars 2024 10:44
Getur ekki lagt fram trygginguna og biðlar til dómstóla um miskunn Lögmenn Donald Trump segja forsetann fyrrverandi hafa komið að lokuðum dyrum hjá 30 fyrirtækjum sem sérhæfa sig í að veita tryggingu í dómsmálum. Þeir segja hann þannig ekki munu geta lagt fram þá 454 milljón dala tryggingu sem hefur verið krafist. Erlent 19. mars 2024 06:53
Líkti innflytjendum við dýr í langri ræðu Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi, hélt í gær kosningaræðu þar sem hann talaði með niðrandi hætti um farand- og flóttafólk og hét efnahagslegu „blóðbaði“ ef hann skyldi tapa forsetakosningunum í nóvember. Erlent 17. mars 2024 15:44
Saksóknari í máli Trumps segir af sér vegna framhjáhalds Nathan Wade, sem stýrt hefur málaferlunum gegn Donald Trump í Georgíuríki, hefur stigið til hliðar. Það þurfti hann að gera vegna ástarsambands hans og Fani T. Willis, héraðssaksóknara Fultonsýslu í Georgíu og yfirmanns hans. Erlent 16. mars 2024 12:25
Mike Pence snýr enn bakinu í Trump Mike Pence, fyrrverandi varaforseti Bandaríkjanna í ríkisstjórn Donald Trumps hyggst ekki styðja framboð hans til forseta að þessu sinni. Erlent 15. mars 2024 23:32
Trump í dómsal í Flórída Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og forsetaframbjóðandi, er í Flórída í dag þar sem lögfræðingar hans reyna að sannfæra dómara um að hann hafi ekki brotið lög þegar hann tók opinber gögn og leynileg skjöl með sér úr Hvíta húsinu. Hann vill að málið verði fellt niður. Erlent 14. mars 2024 16:25
Vilja fá saksóknara til að rannsaka Biden Repúblikanar í fulltrúadeild Bandaríkjaþings standa nú frammi fyrir því að tilraunir þeirra til að ákæra Joe Biden, forseta, fyrir meint embættisbrot muni misheppnast. Þeim hefur ekki tekist að sýna fram á að Biden hafi brotið af sér í starfi og þau atkvæði þingmanna sem þarf til að ákæra hann. Erlent 14. mars 2024 13:01
Kennedy vill NFL leikstjórnanda sem varaforsetaefni sitt Robert F. Kennedy yngri, óháður frambjóðandi til embættis forseta Bandaríkjanna, er sagður hafa viðrað þá hugmynd við NFL leikstjórnandann Aaron Rodgers eða hann verði varaforsetaefni sitt í komandi forsetakosningum í Bandaríkjunum. Sport 13. mars 2024 16:00
Hættir óvænt á þingi: „Þessi staður snýst um deilur og vitleysu“ Ken Buck, þingmaður Repúblikanaflokksins frá Colorado, tilkynnti óvænt í gærkvöldi að hann ætlaði að hætta á þingi þann 22. mars. Í viðtali í kjölfar yfirlýsingarinnar hefur hann farið hörðum orðum um Repúblikana og segir þingið hafa snúist upp í deilur og vitleysu. Erlent 13. mars 2024 11:41
Sagan endurtekur sig: Trump með naumt forskot á Biden en báðir glíma við vandamál Bæði Donald Trump og Joe Biden tryggðu sér tilnefningu flokks síns í gærkvöldi, eftir að forvall fór fram í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna. Báðum tókst að tryggja sér þann lágmarksfjölda kjörmanna sem þarf og er því ljóst að þeir munu mætast aftur í forsetakosningunum í nóvember. Erlent 13. mars 2024 06:23
Snerist hugur um TikTok eftir heimsókn auðjöfurs Undir lok forsetatíðar sinnar skrifaði Donald Trump undir forsetatilskipun sem ætlað var að takmarka umfang samfélagsmiðilsins TikTok í Bandaríkjunum. Var það á grunni þess að Kommúnistaflokkur Kína stýrði í raun samfélagsmiðlinum og hefði þannig gífurleg áhrif á fjölmiðlaneyslu Bandaríkjamanna. Erlent 11. mars 2024 16:57