KR-ingar í lokaúrslitin í þriðja sinn á fimm árum - myndir KR-ingar tryggðu sér sæti í úrslitaeinvígi Iceland Express deildar karla með öruggum 105-89 sigri á Keflavík í oddaleik í undanúrslitaeinvígi liðanna sem fram fór í troðfullri DHL-höll í gærkvöldi. Körfubolti 8. apríl 2011 08:30
Hrafn: Við reyndum að vera glaðir „Við reyndum að vera glaðir og litum á þessa seríu í samhengi. Við vorum búnir að vera með í þessu hverja einustu sekúndu. Það hélt okkur frá því að vera ekki búnir að klára þetta í síðustu tveimur leikjum var slæm ákvarðanataka,“ sagði Hrafn Kristjánsson þjálfari KR eftir 105-89 sigur liðsins gegn Keflavík í undanúrslitum Iceland Express deildar karla í körfuknattleik í kvöld. Körfubolti 7. apríl 2011 23:14
Guðjón Skúla: Þeir voru einfaldlega betri en við "Við höfðum ekki næga trú á því sem vorum búnir að gera í síðustu leikjum og fórum út úr okkar leik. KR-ingar voru bara sterkari en við, einfaldlega betri. Ég er auðvitað hundfúll og ég vil vinna, og það er svekkjandi að hafa ekki náð því,“ sagði Guðjón Skúlason þjálfari Keflavíkinga eftir 105-89 tap liðsins gegn KR í oddaleik í undanúrslitum Iceland Express deildar karla í körfuknattleik í kvöld. Körfubolti 7. apríl 2011 22:44
Pavel: Teitur og Stjarnan eru að fara upp á píluspjaldið heima "Við vorum búnir að tapa tvívegis fyrir þeim í framlengingu og það hefði verið skárra að tapa þeim leikjum með 20 stigum. Auðvitað vorum við mjög langt niðri eftir síðasta leik þar sem við vorum búnir að tapa niður 2-0 forystu. Það var góður karakter í liðinu að koma hér í kvöld og spila aftur okkar bolta,“ sagði Pavel Ermolinskij leikmaður KR eftir 105-89 sigur liðsins gegn Keflavík í kvöld. KR leikur til úrslita gegn Stjörnunni um Íslandsmeistaratitilinn eftir að hafa lagt Keflavík 3-2 samanlagt. Körfubolti 7. apríl 2011 22:31
Brynjar Þór: Hrikalega stoltur af liðinu og áhorfendum Brynjar Þór Björnsson fór á kostum í liði KR í kvöld þegar liðið tryggði sér sæti í úrslitum Íslandsmótsins í körfubolta karla með 105-89 sigri gegn Keflavík í kvöld. Brynjar skoraði alls 34 stig og tók 7 fráköst og hann var gríðarlega ánægður í leikslok. Körfubolti 7. apríl 2011 22:07
Umfjöllun: KR í úrslitin eftir sextán stiga sigur á Keflavík Það verða KR og Stjarnan sem keppa til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta í ár. KR vann öruggan sigur á Keflavík, 105-89, í oddaleik liðanna í Vesturbænum í kvöld. Brynjar Þór Björnsson átti frábæran leik fyrir KR og skoraði alls 34 stig í kvöld. Körfubolti 7. apríl 2011 20:07
Böddi og Palli í stuði - mikil öryggisgæsla í DHL-höllinni Böðvar Guðjónsson, formaður körfuknattleiksdeildar KR, og Páll Sævar Guðjónsson vallarkynnir, oftast kallaður Röddin, voru í gríðarlegri stemningu klukkutíma fyrir stórleik KR og Keflavíkur. Körfubolti 7. apríl 2011 18:23
Slegist um sæti í DHL-höllinni Það er rétt rúmur klukkutími í stórleik KR og Keflavíkur í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla og stemningin þegar orðin mögnuð. Körfubolti 7. apríl 2011 18:12
Fannar: Best að skilja dúkkulísurnar eftir heima "Ég hef það svakalega gott. Sit með kaffi á Tilverunni í Hafnarfirði og nýbúinn að borða dýrindis rauðsprettu," sagði fyrirliði KR, Fannar Ólafsson, sem bíður spenntur eftir oddaleik KR og Keflavíkur í kvöld. Körfubolti 7. apríl 2011 15:45
Magnús: Erum til í að slasa okkur fyrir málsstaðinn Stórskyttan Magnús Gunnarsson, leikmaður Keflavíkur, var silkislakur að spila FIFA-tölvuleikinn þegar Vísir heyrði í honum í hádeginu og spurði hann út í stemninguna fyrir kvöldið. Þá mun Keflavík sækja KR heim í oddaleik í Iceland Express-deild karla. Körfubolti 7. apríl 2011 14:00
Ökumenn varaðir við að leggja ólöglega við DHL-höllina í kvöld Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu beinir þeim góðfúslegu tilmælum til ökumanna sem eiga leið um vesturbæ Reykjavíkur að virða rétt gangandi vegfarenda og leggja ekki á gangstéttir eða á göngustígum. Þeir ökumenn sem leggja ólöglega mega búast við sektum. Körfubolti 7. apríl 2011 06:00
Keflvíkingar fyrstir til að vinna þrjá framlengda leiki í úrslitakeppni Keflvíkingar urðu á mánudagkvöldið ekki bara annað liðið frá upphafi sem kemst í oddaleik eftir að hafa lent 0-2 undir í einvígi í úrslitakeppni því liðið setti einnig met með því að verða fyrsta liðið sem nær að vinna þrjá framlengda leiki í einni og sömu úrslitakeppninni. Körfubolti 6. apríl 2011 06:00
Jón Halldór: Þetta er ekki búið og við þurfum að halda haus "Að koma í þetta feikisterka hús og vinna þetta frábæra lið er góð tilfinning,“ sagði Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur, eftir sigurinn í kvöld. Keflavík vann frábæran sigur á grönnum sínum í Njarðvík, 67-64, í öðrum leik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn og leiða því einvígið 2-0. Körfubolti 5. apríl 2011 21:38
Keflavík nældi í oddaleik - myndir Leikur Keflavíkur og KR í Sláturhúsinu í Keflavík í gær var stórkostleg skemmtun. Annan leikinn í röð var framlengt hjá liðunum og aftur hafði Keflavík betur. Liðin þurfa því að mætast í hreinum úrslitaleik um sæti í úrslitunum gegn Stjörnunni. Körfubolti 5. apríl 2011 09:30
Hrafn: Maður verður að vera ánægður körfuboltans vegna Hrafn Kristjánsson, þjálfari KR, var skiljanlega svekktur í leikslok eftir eins stigs tap í framlengdum leik á móti Keflavík í Toyota-höllinni í Keflavík í kvöld. KR hefur þar með tapað tveimur leikjum í röð í undanúrslitaeinvígi liðanna og framundan er hreinn úrslitaleikur um sæti í úrslitaeinvíginu. Körfubolti 4. apríl 2011 22:24
Gunnar Einarsson: Sagan er bara að endurtaka sig frá 2008 Gunnar Einarsson var einn af fimm Keflvíkingum sem skoruðu tólf stig eða meira þegar Keflvík vann 104-103 sigur á KR í framlengdum leik í Toyota-höllinni í Keflavík í kvöld. Keflvíkingar tryggðu sér þar með oddaleik í einvíginu í DHl-höllinni á fimmtudaginn. Körfubolti 4. apríl 2011 22:21
Hörður Axel: Nú er öll pressan á KR Hörður Axel Vilhjálmsson setti niður tvær rosalega mikilvægar þriggja stiga körfur í framlengingunni í 104-103 sigri Keflavíkur á KR í kvöld. Keflavík vann þar sinn annan leik í röð í framlengingu og tryggði sér oddaleik á fimmtudagskvöldið. Hörður Axel endaði leikinn með 16 stig og 7 stoðsendingar. Körfubolti 4. apríl 2011 22:07
Brynjar Þór: Þetta er smá aukakrókur KR-ingar töpuðu öðrum leiknum í röð í framlengingu í undanúrslitaeinvígi sínu á móti Keflavík í kvöld og nú mætast liðin í hreinum úrslitaleik í DHl-höllinni á fimmtudagskvöldið. Körfubolti 4. apríl 2011 22:03
Umfjöllun: Aftur vann Keflavík í framlengingu Keflavík tryggði sér oddaleik í undanúrslitaeinvígi sínu á móti KR eftir eins stiga sigur, 104-103, í framlengdum leik í Toyota-höllinni í Keflavík í kvöld. Leikurinn var stórkostleg skemmtun, hraður, spennandi og uppfullur af áhlaupum, frábærum tilþrifum og endalausum sveiflum fram og til baka. Körfubolti 4. apríl 2011 21:16
Fleiri þriggja stiga tilraunir en í nokkrum NBA-leik Æsilegum leik KR og Keflavíkur á föstudagskvöldið lauk með sigri síðarnefnda liðsins, 139-135, eftir framlengingu. Samanlagt reyndu leikmenn liðanna að skjóta 85 sinnum fyrir utan þriggja stiga línuna, þar af KR ingar 61 sinni. Körfubolti 4. apríl 2011 08:00
Ótrúlegar sviptingar í Keflavík Keflavík er komið í 1-0 í úrslitarimmunni gegn Njarðvík í Iceland Express-deild kvenna eftir sigur í æsispennandi leik, 74-73. Körfubolti 2. apríl 2011 17:32
Marín: Brjáluð stemning í bænum Marín Rós Karlsdóttir, annar fyrirliða Keflavíkur, á von á skemmtilegum leikjum gegn Njarðvík í úrslitarimmu liðanna um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta. Körfubolti 2. apríl 2011 11:30
Jón Halldór: Meiri tilfinning í bæjarslag Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur, er ánægður með að bæði sínir leikmenn sem og Njarðvíkingar fái að upplifa alvöru stemningu í úrslitarimmu liðanna í Iceland Express-deild kvenna. Körfubolti 2. apríl 2011 10:30
Hreggviður: Engir meistarataktar í vörninni "Varnarleikurinn var dapur og við vorum alls ekki að sýna neina meistaratakta á því sviði,“ sagði Hreggviður Magnússon, leikmaður KR, eftir tap liðsins á heimavelli gegn Keflavík, 135-139, í undanúrslitum um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla. Staðan í einvíginu er þar með 2-1 fyrir KR. Körfubolti 1. apríl 2011 22:41
Hörður Axel: Enginn í Keflavík hafði áhuga á sumarfríi "Þetta er hrikalega sætur sigur. Við vorum með bakið upp við vegg og núna snúum við þessu einvígi við,“ sagði Hörður Axel Vilhjálmsson, leikmaður Keflavíkur, kátur í leikslok eftir frækinn sigur Keflavíkur á KR, 135-139, í mögnuðum leik í undanúrslitum Iceland Express deild karla í kvöld. Körfubolti 1. apríl 2011 22:29
Umfjöllun: Keflavík enn á lífi eftir sigur í framlengdum leik Stjarnan fær að hvíla í ágætan tíma fyrir úrslitaeinvígið í Iceland-Express deild karla því Keflavík vann magnaðan sigur, 135-139, á KR í framlengdum leik liðanna í Frostaskjólinu í kvöld. Staðan í einvígi liðanna er því 2-1 fyrir KR og næsti leikur fer fram í Keflavík. Leikur liðanna í kvöld var hreint út sagt stórkostlegur. Körfubolti 1. apríl 2011 21:27
Marculinskij er heitasta nýyrðið í íslenskum körfubolta Marculinskij er heitasta nýyrðið í íslenskum körfubolta því KR-ingarnir Pavel Ermolinskij og Marcus Walker fara á kostum þessa dagana í úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar. Þeir eru saman með 45,3 stig, 19.8 fráköst og 12,5 stoðsendingar að meðaltali í fyrstu fjórum leikjum KR í úrslitakeppninni og hafa skilað saman framlagi upp á 50 eða meira í öllum þessum leikjum. Meðalframlag þeirra í leik er upp á 56,8. Körfubolti 1. apríl 2011 17:15
Verða Suðurnesjalaus lokaúrslit í fyrsta sinn í sögunni? KR-ingar eiga möguleika á því að sópa út öðrum Reykjanesbæjarrisanum í röð með sigri í þriðja leik sínum á móti Keflavík í undanúrslitum Iceland Express deild karla í kvöld. Með því að slá út Keflavík myndu KR-ingar líka sjá til þess að lokaúrslitin yrðu í fyrsta sinn í sögunni án Suðurnesjaliðs en Stjörnumenn hafa þegar tryggt sér sæti í lokaúrslitunum. Körfubolti 1. apríl 2011 16:15
Justin Shouse: Blendnar tilfinningar Stjörnumaðurinn Justin Shouse var afar kátur eftir að hans lið hafði sópað hans gamla liði, Snæfell, í sumarfrí með sannfærandi sigri í Fjárhúsinu. Körfubolti 31. mars 2011 22:05
Nonni Mæju: Þetta er alveg ömurlegt "Þetta er alveg ömurlegt. Sérstaklega eftir síðasta tímabil og hvernig það gekk og hvernig þetta tímabil er búið að spilast. Það er búið að vera skemmtilegt og að enda þetta svona - það er þetta alveg ömurlegt,“ sagði súr og svekktur Nonni Mæju, leikmaður Snæfells, eftir leik Snæfells og Stjörnunnar í undanúrslitum Iceland Express-deildar karla. Körfubolti 31. mars 2011 21:51