Sögð of þung til að ættleiða barn Kona hefur höfðað mál á hendur íslenska ríkinu vegna þess að dómsmálaráðuneytið synjaði henni um að ættleiða barn frá Kína. Synjunin byggði meðal annars á því að konan væri of þung. Í stefnunni er ráðuneytið sakað um geðþóttaákvarðanir og fordóma. </font /></b /> Innlent 18. maí 2005 00:01
Reynir á stefnumótun spítalans "Meginmálið er að það reynir á hvort þessi stefnumótun spítalans sé lagalega réttmæt eða ekki," sagði Jóhannes M. Gunnarsson lækningaforstjóri Landspítala háskólasjúkrahúss um málshöfðun fyrrverandi yfirlæknis á geðsviði LSH á hendur spítalanum. Innlent 18. maí 2005 00:01
Dettifossmálið þingfest Dettifossmálið svokallaða var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur rétt fyrir hádegi. Fimm eru ákærð í málinu. Þremur þeirra er gefið að sök stórfelld brot gegn lögum um fíkniefni,með því að hafa, í júní og júlí á síðasta ári, flutt inn tæp átta kíló af amfetamíni. Innlent 17. maí 2005 00:01
6 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás Tuttugu og tveggja ára karlmaður var dæmdur í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag fyrir að hafa slegið mann í andlitið með flösku fyrir utan skemmtistað í Reykjavík í desember árið 2003. Flaskan brotnaði á andliti mannsins með þeim afleiðingum að hann hlaut djúpan skurð í andlitið auk fjölda skurða á enni. Innlent 12. maí 2005 00:01
Lögreglumaður sýknaður Lögreglumaður var sýknaður í Hæstarétti í dag af ákæru um fjárdrátt og brot í opinberu starfi. Héraðsdómur hafði áður dæmt manninn í níu mánaða fangelsi, þar af voru sex skilorðsbundir. Innlent 12. maí 2005 00:01
Í mál við ríkið vegna eignaupptöku Lögmaður hóps manna sem eiga og reka fasteignasölur undirbýr nú málshöfðun á hendur ríkinu. Þeir telja að í nýjum lögum um fasteigasölur felist brot á ákvæðum stjórnarskrárinnar um eignarrétt og atvinnufrelsi. Innlent 11. maí 2005 00:01
5 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás Karlmaður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í Héraðsdómi Norðurlands eystra í fimm mánaða fangelsi, þar af þrjá mánuði skilorðsbundið, fyrir líkamsárás. Maðurinn var einnig ákærður fyrir aðild að annarri líkamsárás en var sýknaður af þeirri ákæru. Innlent 11. maí 2005 00:01
Ástþór sýknaður af eignaspjöllum Ástþór Magnússon, sem þekktastur er sem forsetaframbjóðandi, var sýknaður í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag vegna ákæru um eignaspjöll. Honum var gefið að sök að hafa á síðasta ári tekið myndavél úr höndum annars gests á skemmtistaðnum Glaumbar, slegið henni nokkrum sinnum í barborð og síðan hent henni frá sér þannig að hún týndist. Innlent 6. maí 2005 00:01
Hæstiréttur mildaði dómana Hæstiréttur mildaði dómana yfir sakborningunum þremur í Landssímamálinu rétt í þessu. Árni Þór Vigfússon var dæmdur í 15 mánaða fangelsi og Kristján Ragnar Kristjánsson í 18 mánuði. Báðir voru dæmdir í tveggja ára fangelsi fyrir Héraðsdómi síðastliðið sumar. Innlent 28. apríl 2005 00:01
Út í hött, segir Grétar Hæstiréttur staðfesti í dag tveggja og hálfs árs fangelsisdóm yfir þremenningunum í líkfundarmálinu í Neskaupstað. Einn sakborninga, Grétar Sigurðsson, segir út í hött að hann skuli fá jafn þungan dóm og hinir tveir sakborningarnir, Jónas Ingi Ragnarsson og Tomas Malakauskas. Innlent 28. apríl 2005 00:01
Dómur í líkfundarmáli óbreyttur Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms yfir sakborningunum þremur í Líkfundarmálinu svokallaða fyrir stundu. Þeir fengu allir tveggja og hálfs árs dóm í héraði á síðasta ári. Innlent 28. apríl 2005 00:01
Staðfestir sekt en mildar refsingu Hæstiréttur mildaði í dag refsingu fyrrverandi forsvarsmanna Skjás eins fyrir að veita viðtöku og ráðstafa í eigin þágu yfir hundrað og sextíu milljónum af stolnu fé frá Landssímanum og hylma yfir glæpinn. Hæstiréttur telur algjörlega útilokað að þeir hafi ekki vitað að féð var illa fengið. Innlent 28. apríl 2005 00:01
Annþór fékk 3 ára dóm Dómur féll í Hæstarétti í dag yfir Annþóri Kristjáni Karlssyni og Ólafi Valtý Rögnvaldssyni fyrir hrottalega árás á mann á heimili hans; hann var meðal annars barinn með kylfu svo að hann handleggsbrotnaði. Annþór fékk þriggja ára dóm, Ólafur tveggja ára dóm. Dómurinn tekur mið af löngum ofbeldisferli hinna dæmdu. Innlent 28. apríl 2005 00:01
Kæra Reynis tekin fyrir Jón Trausti Lúthersson hefur verið ákærður fyrir að hafa ráðist á Reyni Traustason, fyrrverandi fréttastjóra DV, á skrifstofu blaðsins í október síðastliðnum. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Innlent 27. apríl 2005 00:01
Gæsluvarðhald fyrir líkamsárás Karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald í fjórar vikur fyrir að ráðast á annan mann á föstudag og misþyrma honum. Að sögn Harðar Jóhannessonar yfirlögregluþjóns er maðurinn sem varð fyrir ofbeldinu læknir og hefur meðal annars sinnt úrskurðarmálum af ýmsu tagi fyrir lögregluna. Innlent 24. apríl 2005 00:01
Nauðgunarfórnarlambi vísað frá Héraðsdómur Reykjavíkur gagnrýnir lögregluna í Reykjavík og telur ámælisvert að hún skuli ekki hafa, í nóvember síðastliðnum, tekið á móti nauðgunarkæru konu þegar í stað, eins og henni hafi borið að gera. Innlent 22. apríl 2005 00:01
Brasilísk kona í 2 ára fangelsi Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag 26 ára brasilíska konu í tveggja ára fangelsi fyrir að smygla til landsins 860 grömmum af kókaíni og tæplega 11 grömmum af LSD í desember í fyrra. Konan faldi fíkniefnin innanklæða og í leggöngum en efnin fundust við líkamsleit á Keflavíkurflugvelli. Hún var handtekin og hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan. Innlent 22. apríl 2005 00:01
2 ára fangelsi fyrir bílaíkveikju Rúmlega tvítugur karlmaður var dæmdur í tveggja ára fangelsi af Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að hafa hellt bensíni yfir og kveikt í bifreiðum á bílastæði fjölbýlishúss í Hafnarfirði í fyrra, með þeim afleiðingum að eldur barst í gluggakarma á jarðhæð hússins og stofnaði maðurinn með því í hættu lífi níu sofandi íbúa hússins. Innlent 20. apríl 2005 00:01
Dómur fyrir sölu á aflahlutdeild Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í morgun karlmann á fimmtugsaldri í níu mánaða fangelsi fyrir að hafa selt alla aflahlutdeild frá skipi, án samþykkis Sparisjóðs Keflavíkur, sem átti skuldabréf sem hvíldu á skipinu og aflakvóta þess. Innlent 20. apríl 2005 00:01
Dæmdur fyrir sama brot Ungur bifhjólamaður, sem lögreglan stöðvaði með því að aka í veg fyrir hann, var í dag sýknaður af því að hafa brotið af sér á þeim tíma. Hann var hins vegar dæmdur fyrir brot fyrr um kvöldið sem annar maður hefur gengist við og gert dómsátt. Innlent 14. apríl 2005 00:01
Málið gegn Arngrími tekið fyrir Mál Norðmannsins Anders Saethers gegn Arngrími Jóhannssyni, eins stofnenda flugfélagsins Atlanta, verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Saether segir Arngrím hafa gert bindandi samning um kaup á helmingseignarhluta í fyrirtækinu Scandinavian Historic Flight, en hann hafi svo rofið þann samning einhliða. Innlent 13. apríl 2005 00:01
Dómstóllinn hafnaði beiðninni Yfirdeild Mannréttindadómstóls Evrópu hefur hafnað beiðni íslenska ríkisins um að taka fyrir bótaþátt í dómi Mannréttindadómstólsins í máli íslensks sjómanns gegn ríkinu. Innlent 13. apríl 2005 00:01
Uppsagnir varnarliðsins ólögmætar Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í dag að uppsagnir varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli, á hluta starfstengdra kjara félagsmanna hjá Rafiðnaðarsambandi Íslands, séu ólögmætar. Innlent 13. apríl 2005 00:01
50 sjómönnum greiddar bætur? Ríkið gæti þurft að greiða rúmlega fimmtíu sjómönnum bætur eftir þá niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu að íslenska ríkið hafi brotið gegn ákvæðum Mannréttindasáttmálans um friðhelgi eignarréttarins, með því að hafa bætur af sjómanni með lagasetningu fyrir ellefu árum. Innlent 13. apríl 2005 00:01
Líklegt að breyta þurfi lögum Líklegt er að breyta þurfi lögum eftir að Mannréttindadómstóll Evrópu komst að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hefði brotið ákvæði um friðhelgi eignarréttarins. Innlent 13. apríl 2005 00:01
Heimskuleg greiðasemi Heimskuleg greiðasemi Sveinbjörns Kristjánssonar, fyrrum aðalféhirðis Símans, varð til þess að ríflega 260 milljónir hurfu af rekstrarreikningum Símans án þess að eftir var tekið, sagði Ásgeir Þór Árnason, verjandi Kristjáns Ragnars Kristjánssonar, í Hæstarétti í gær. Innlent 13. apríl 2005 00:01
Bóndinn ábyrgur fyrir kindinni Héraðsdómur Reykjavíkur gerði með dómi sínum í gær bónda ábyrgan fyrir kind sem slapp upp á þjóðveg og olli tjóni á bíl sem ók á hana. Lausaganga búfjár er bönnuð þar sem atvikið varð og er bóndinn talinn bera ábyrgð á því að hún slapp upp á veg. Innlent 8. apríl 2005 00:01
6 mánuðir fyrir tvær líkamsárásir Maður á þrítugsaldri var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af fimm mánuði skilorðsbundna, fyrir tvær líkamsárásir. Maðurinn réðst á tvo menn í miðbæ Reykjavíkur í júlí árið 2003 og sló annan þeirra með flösku í höfuðið og réðst á hinn manninn með brotinni flösku og stakk hann í aftanverðan hálsinn með þeim afleiðingum að hann hlaut fjóra skurði. Innlent 5. apríl 2005 00:01
Lögreglumaður dæmdur í Héraðsdómi Lögreglumaður var í dag dæmdur til að greiða hátt í hálfa milljón króna í sektir og skaðabætur fyrir að hafa keyrt í veg fyrir ökumann bifhjóls á Ægisíðu í fyrravor. Innlent 31. mars 2005 00:01
Lögreglumaður greiði skaðabætur Lögreglumaður, sem stöðvaði bifhjól með því að aka í veg fyrir það á Ægissíðu síðastliðið vor, var dæmdur til að greiða ökumanni bifhjólsins skaðabætur í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Innlent 31. mars 2005 00:01