

Dómsmál
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.

Sakamálin sem skóku þjóðina
Gríðarlega mörg sakamál voru til umfjöllunar hér á landi árið 2024. Sjö manndrápsmál komu upp á árinu, þar sem samanlagt átta létu lífið. Af þessum átta voru þrjú mál þar sem barn lést.

Innan marka að kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“
Hjálmar Friðriksson blaðamaður á Samstöðinni hefur verið sýknaður af stefnu þriggja fjárfesta og félags þeirra vegna ummæla í fréttum í tengslum við andlát sextugs Pólverja í bruna á Funahöfða í október 2023.

Hæstiréttur fer beint í búvörulagamálið
Hæstiréttur hefur samþykkt að taka fyrir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem komist var að þeirri niðurstöðu að búvörulög sem voru samþykkt á Alþingi í mars hefðu strítt gegn stjórnarskrá. Málið mun því fara beint fyrir Hæstarétt, en ekki koma við hjá áfrýjunardómstólnum Landsrétti.

Brást of harkalega við dyraati
Kona hefur verið sakfelld fyrir að draga ungan dreng sem hafði gert dyraat hjá henni frá leikvelli og upp tröppur að heimili hennar gegn vilja drengsins. Konan sagði háttsemina eins og þá sem viðhöfð sé í grunnskóla þar sem hún starfi en héraðsdómur sagði aðstæður ekki samanburðarhæfar.

Ummælin hörð gagnrýni sem ekki eigi að flokka sem hatursorðræðu
Helga Vala Helgadóttir lögmaður segir að með ummælum sínum um trans fólk sé Eldur Smári Kristinsson að ráðast á minnihlutahóp með markvissum aðgerðum. Það sé hatursorðræða sem hvetji til ofbeldis og það megi sjá þá þróun í samfélaginu um allan heim. Brynjar Níelsson lögmaður segist ekki sammála. Ummælin séu hörð gagnrýni en eigi ekki að flokka sem hatursorðræðu.

Fundu fíkniefni í gámi sama dag og stúlkan fannst látin
Ákveðið verður 17. janúar næstkomandi hvort þinghald í Krýsuvíkurmálinu svokallaða verði opið eða lokað. Í málinu er sætir Sigurður Fannar Þórsson, maður á fimmtugsaldri ákæru um að hafa ráðið dóttur sinni bana í september síðastliðnum.

Jóhannes Þór svekktur og sár vegna skrifa þingmanns Miðflokksins
Heitar umræður hafa nú sprottið á síðu Snorra Mássonar þingmanns Miðflokksins eftir að hann birti þar grein sem hann skrifaði í Morgunblaðið og birti í morgun. Jóhannes Þór Skúlason hefur stigið fram og lýst yfir vanþóknun á skrifunum.

Brjálaðist út í barn í bíó
Karlmaður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára, fyrir líkamsárás og brot gegn barnaverndarlögum vegna atviks sem átti sér stað í bíósal í júlí á þessu ári, nánar tiltekið í Sambíóunum í Kringlunni.

Hótaði dóttur sinni svo miklum barsmíðum að hún gæti ekki andað
Landsréttur staðfesti í vikunni átta mánaða skilorðsbundinn dóm karlmanns fyrir ofbeldi og hótanir gagnvart dóttur sinni, en líka hótanir gagnvart syni sínum.

TikTok fær síðasta séns fyrir Hæstarétti
Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur ákveðið að taka fyrir mál bandaríska ríkisins gegn samfélagsmiðlinum TikTok, sem að öllu óbreyttu verður bannaður í landinu þann 19. janúar næstkomandi.

Öryggi verði minna í fangelsinu og dómar muni fyrnast
Stjórn Fangavarðafélags Íslands, FVFÍ, harmar í yfirlýsingu að enn sé gerð hagræðingarkrafa á Fangelsismálastofnun. Stjórn félagsins skorar á stjórnvöld að draga hagræðingarkröfu til baka og tryggja Fangelsismálastofnun það fjármagn sem þarf til að tryggja lágmarks öryggi og velferð starfsfólks og skjólstæðinga í fangelsiskerfinu.

Lykilstjórnendur fá skell vegna tugmilljóna hagnaðar
Ríkið hafði betur gegn sex lykilstjórnendum Kviku banka fyrir héraðsdómi í dag, í deilu sem snerist um skattlagningu hagnaðar af áskriftarréttindum sem nam á bilinu 30 til 95 milljónum króna.

Réðst á dóttur sína sem var sú eina sem þorði að mótmæla honum
Karlmaður hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi, skilorðsbundið til þriggja ára, í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir ofbeldi gegn dóttur sinni.

Matsgerð sem Þorsteinn Már vildi sögð tilgangslaus
Matsgerð sem Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, óskaði eftir að yrði gerð í einkamáli hans á hendur Seðlabankanum yrði „bersýnilega tilgangslaus” til sönnunar í málinu.

Ók ölvaður og svefnlaus á gangandi vegfarendur
Héraðsdómur Suðurlands hefur dæmt karlmann í sextíu daga fangelsi fyrir að hafa ekið bíl undir áhrifum áfengis og svefnleysis og á tvo gangandi vegfarendur sem slösuðust. Þá hafi hann hvorki komið hinum slösuðu til aðstoðar eða tilkynnt málið til lögreglu, en þess í stað flutt þau sem slösuðust af vettvangi.

Sáðlát yfir andlit með valdi nauðgun eftir allt saman
Hæstiréttur hefur staðfest dóm Landsréttar þess efnis að háttsemi sem Gareese Joshua Gray var ákærður fyrir hafi verið nauðgun.

Trjádeila í Kópavogi fer fyrir Hæstarétt
Hæstiréttur hefur veitt eigendum parhúss í Hjallahverfi Kópavogi áfrýunarleyfi í máli sem snýr að deilu um tré á lóð konu í hverfinu. Í Landsrétti var konunni gert að klippa af hluta trjáa á lóð sinni en nágrannarnir vildu að lengra yrði gengið.

Þorsteinn banaði konu sinni á Akureyri
Maðurinn sem fékk á dögunum tólf ára fangelsisdóm fyrir brot í nánu sambandi sem leiddi til dauða konu hans heitir Þorsteinn Hermann Þorbjörnsson.

Féllst á að greiða tugi milljóna vegna áramótaíkveikju á Akranesi
Björgvin Ó. Melsteð Ásgeirsson hefur verið dæmdur til tveggja ára skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að kveikja í skemmtistaðnum Útgerðinni á Akranesi á gamlárskvöld árið 2023. Þá hefur honum verið gert að greiða tæplega 43 milljónir króna í skaðabætur.

Sjóvá bótaskylt vegna slyss á flugslysaæfingu
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur viðurkennt bótaskyldu Sjóvá vegna slyss sem flugliði Icelandair lenti í árið 2020 er hún renndi sér niður neyðarrennu á námskeiði á vegum félagsins og slasaðist.

Sagðist þekkja piltana og foreldra þeirra áður en hún braut á þeim
Landsréttur hefur þyngt skilorðsbundinn dóm sem kona hlaut í Héraðsdómi Norðurlands vestra fyrir brot gegn þremur sautján ára piltum. Hún var sakfelld fyrir að brjóta gegn blygðunarsemi þeirra allra með kynferðislegu og vanvirðandi tali. Hún var jafnframt sakfelld fyrir að áreita einn piltinn kynferðislega með því að fara með hendurnar inn fyrir nærbuxnastreng hans.

Ekki nauðgun heldur kynferðisleg áreitni í leigubíl
Landsréttur hefur dæmt erlendan leigubílstjóra í tólf mánaða fangelsi fyrir kynferðislega áreitni gagnvart sautján ára stúlku í leigubíl hans haustið 2022. Hann hafði áður hlotið tveggja ára dóm fyrir brotið í héraði en þá taldi dómurinn að um nauðgun væri að ræða.

Stakk mann þrisvar og reyndi svo að stela hjólinu hans
Ívar Aron Hill Ævarsson var í dag dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir stunguárás og önnur brot. Það er niðurstaða Landsréttar, en áður hafði Ívar Aron hlotið tveggja ára dóm í Héraðsdómi Reykjaness í málinu.

76 milljón króna sekt Símans stendur
Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag að fella niður 76,5 milljóna króna sekt fjármálaeftirlitsnefndar Seðlabankans á Símann vegna upplýsingagjafar varðandi söluna á Mílu.

Uppsagnarbréf á jóladag það eina sem hélt vatni fyrir dómi
Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag atvinnurekanda til að greiða fyrrum launþega sínum, matreiðslumanni, 1,4 milljónir króna vegna vangoldinna launa og orlofs.

Mistókst að sanna lán og fær 20 milljónir ekki endurgreiddar
Sigurður Gísli Björnsson, fyrrverandi eigandi Sæmarks, fær 20 milljónir ekki greiddar frá Elísabetu Erlu Dungal, fyrrverandi viðskiptafélaga hans. Sigurður Gísli hélt því fram að um peningalán til hennar hafi verið að ræða, sem henni hafi borið að endurgreiða, en var ekki talinn hafa fært nægilegar sönnur fyrir því.

Stakk samfanga ítrekað á meðan hann afplánaði átta ára dóm
Ingólfur Kjartansson hefur verið dæmdur til átta ára fangelsisvistar fyrir margvísleg brot framin í fangelsinu Litla-Hrauni, þar á meðal sérstaklega hættulega líkamsárás. Brotin framdi hann á meðan hann afplánaði annan átta ára dóm fyrir tilraun til manndráps. Ingólfur er 22 ára.

Játaði fjárdrátt hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur
Ari Hermóður Jafetsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Stangaveiðifélags Reykjavíkur, var í morgun dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt í starfi sínu fyrir félagið. Ari Hermóður játaði brot sín sem voru framin árin 2017 og 2018.

Dómurinn sé vonbrigði og sendi röng skilaboð
Framkvæmdastýra Kvennaathvarfsins segir dóm yfir manni í manndrápsmáli vera vonbrigði, og veltir fyrir sér hvort dómurinn hefði verið þyngri ef ekki væri um heimilisofbeldi að ræða.

Tveir mánuðir fyrir brot gegn barni í búningsklefa
Landsréttur hefur staðfest dóm yfir karlmanni fyrir kynferðisbrot og brot gegn barnaverndarlögum með því að hafa gengið inn í búningsklefa kvenna, gert athugasemdir um líkama nakins barns og girt niður um sig fyrir framan það.