Jon Stewart snýr aftur: „Hvað erum við að gera?“ Sjónvarpsmaðurinn Jon Stewart sneri aftur í sett The Daily Show í gærkvöldi, í fyrsta sinn frá því hann hætti árið 2015. Fyrir það hafði hann og rithöfundar hans á sextán árum gert þáttinn að ákveðnu stórveldi á sviði pólitískrar satíru. Lífið 13. febrúar 2024 11:25
Segir það munu taka Evrópu tíu ár að ná vopnum sínum Armin Papperger, forstjóri vopnaframleiðandans Rheinmetall, segir það munu taka Evrópu tíu ár að ná vopnum sínum á ný. Hann segir skotfærabirgðir álfunnar á þrotum. Erlent 13. febrúar 2024 09:06
Trump harðlega gagnrýndur fyrir boð til Rússa um að ráðast gegn Nató Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, segir bandalagið reiðubúið og viljugt til að vernda alla bandamenn sína, eftir að greint var frá því að Donald Trump hefði eggjað Rússa til að ráðast á þau ríki sem ekki legðu nægt fjármagn til varnarmála. Erlent 12. febrúar 2024 07:24
Biden brást reiður við skýrslu um leyniskjöl Sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna sem rannsakað hefur opinber og leynileg skjöl sem fundust í vörslu Joes Biden, forseta Bandaríkjanna, frá þeim tíma er hann var óbreyttur borgari, birti í gær skýrslu um rannsókn sína. Þar sagði hann ekki tilefni til að ákæra Biden en sagði hann hafa vísvitandi haldið eftir leynilegum gögnum og jafnvel sýnt öðrum þau. Erlent 9. febrúar 2024 13:45
Kjörgengi Trumps rætt í Hæstarétti Málflutningur um það hvort ríki Bandaríkjanna hafi rétt til að meina Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, að vera á kjörseðlum þar í forsetakosningunum sem haldnar verða í nóvember, stendur nú yfir fyrir Hæstarétti Bandaríkjanna. Erlent 8. febrúar 2024 16:12
Óreiðan á þingi nær nýjum hæðum Óreiðan á bandaríska þinginu náði nýjum hæðum í gær. Á meðan Repúblikanar í öldungadeildinni gerðu útaf við samkomulag um hernaðaraðstoð og aðgerðir á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó, samkomulag sem þeir höfðu krafist um mánaða skeið, guldu Repúblikanar afhroð í tveimur atkvæðagreiðslum í fulltrúadeildinni. Erlent 7. febrúar 2024 11:49
Laut í lægra haldi fyrir valkostinum „Enginn af þessum frambjóðendum“ Nikki Haley, fyrrverandi ríkisstjóri Suður-Karólínu og sendiherra Bandaríkjanna við Sameinuðu þjóðirnar, mátti þola mikla niðurlægingu í gær þegar forval fyrir forsetakosningarnar fór fram í Nevada í gær. Erlent 7. febrúar 2024 07:23
Trump nýtur ekki friðhelgi, í bili Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, er ekki með friðhelgi gegn ákærum. Þetta er úrskurður áfrýjunardómstóls í Washington DC en málið fer líklega fyrir hæstarétt Bandaríkjanna. Erlent 6. febrúar 2024 15:25
Snerist hugur nokkrum tímum eftir að hann sagði aðgerðir nauðsynlegar Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, ráðlagði meðlimum þingflokks síns í gærkvöldi að greiða atkvæði gegn nýju frumvarpi um aukna gæslu og hertar aðgerðir á landamærunum við Mexíkó og hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum og Ísraelum, auk annars. Erlent 6. febrúar 2024 11:38
Haley biður um aukna vernd Nikki Haley, sem berst enn við Trump um tilnefningu Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar í nóvember, hefur óskað eftir vernd frá lífvarðasveit forseta Bandaríkjanna (e. Secret service). Ástæðan ku vera sú að henni hefur borist alvarlegar hótanir að undanförnu. Erlent 6. febrúar 2024 10:07
Langar viðræður um landamærin og hernaðaraðstoð skila „dauðu“ frumvarpi Öldungadeildarþingmenn úr báðum flokkum Bandaríkjaþings birtu í gær nýtt frumvarp um öryggi á landamærunum við Mexíkó og hernaðaraðstoð til Úkraínu og Ísrael. Frumvarpið var samið eftir langar viðræður en ef þingmönnum tekst að fá það samþykkt í öldungadeildinni þykir líklegt að það verði ekki svo gott sem tekið til umfjöllunar í fulltrúadeildinni. Erlent 5. febrúar 2024 15:02
Fimm ára fangelsi fyrir að stela og leka skattskýrslum auðmanna Charles Littlejohn, fyrrverandi verktaki hjá bandaríska Skattinum, hefur verið dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir að stela og leka skattskýrslum margra af auðugustu mönnum Bandaríkjanna og Donald Trump, fyrrverandi forseta. Brot hans er sagt einstakt í sögu Skattsins í Bandaríkjunum. Erlent 29. janúar 2024 23:46
Trump gert að greiða E. Jean Carroll 83,3 milljónir dala Donald Trump fyrrverandi forseta Bandaríkjanna verður gert að greiða E. Jean Carroll 83,3 milljónir bandaríkjadala í fyrir ærumeiðingar sem nemur rúmum ellefu milljörðum íslenskra króna. Erlent 26. janúar 2024 22:57
Áfram samið á þingi þó Trump mótmæli Samningaviðræðum um mögulegar aðgerðir á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó annars vegar og hernaðaraðstoð handa Úkraínu og öðrum ríkjum hefur ekki verið hætt á bandaríska þinginu. Talið er að koma muni í ljós á næstu dögum hvort samkomulag sé mögulegt. Erlent 26. janúar 2024 14:01
Semja ekki um landamærin til að grafa ekki undan Trump Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, tilkynnti þingflokki sínum í gær að leiðtogar flokksins væru hættir að reyna að ná samkomulagi við Demókrata um aðgerðir á landamærum ríkisins og Mexíkó. Hann sagði Donald Trump, væntanlegan forsetaframbjóðanda flokksins, vilja keyra á vandanum á landamærunum í baráttunni fyrir forsetakosningarnar í nóvember. Erlent 25. janúar 2024 10:50
Endurtekning á síðustu kosningum í kortunum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, vann nokkuð öruggan sigur gegn Nikki Haley í forvali Repúblikanaflokksins í New Hampshire í gær. Kjósendur í ríkinu eru þekktir fyrir að vera óútreiknanlegir en þeir komu ekki á óvart og eru líkurnar á því að Trump mæti Joe Biden, forseta, í kosningunum í nóvember orðnar töluvert meiri. Erlent 24. janúar 2024 16:54
Trump með öruggan sigur í New Hampshire Donald Trump sigraði forval Repúblikana í New Hampshhire með rúmum helmingi atkvæða. Það færir hann nær því að verða aftur frambjóðandi flokksins til forsetakosninga sem fara fram í nóvember á þessu ári. Erlent 24. janúar 2024 06:24
Vonast eftir afgerandi sigri gegn Haley Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, vonast eftir yfirgnæfandi sigri í forvali Repúblikanaflokksins í New Hampshire í dag. Hann vonast til þess að sigurinn verði svo afgerandi að hann geri út af við mótframboð Nikki Haley og annarra frambjóðenda. Erlent 23. janúar 2024 15:32
Meint framhjáhald gæti tafið málaferli gegn Trump um ár Fani Willis, héraðssaksóknari í Fulton-sýslu i Georgíu í Bandaríkjunum, hefur verið sökuð um að halda við saksóknarann sem hún réð til að halda utan um málaferli ríkisins gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta. Ásakanirnar gætu leitt til margra ára tafa á málaferlunum gegn Trump og öðrum sem voru ákærðir með honum. Erlent 23. janúar 2024 13:48
Haley tryggði sér öll atkvæðin í Dixville Notch Bandaríski forsetaframbjóðandinn Nikki Haley tryggði sér öll atkvæði í forvali Repúblikana í bænum Dixville Notch í New Hampshire í nótt. Forvali flokksins í New Hampshire fer fram í dag. Erlent 23. janúar 2024 07:42
Ron DeSantis dregur framboð sitt til baka Ron DeSantis, ríkisstjóri Flórída, er hættur við að bjóða sig fram til embættis Bandaríkjaforseta. Hann lýsir yfir stuðningi við Donald Trump sem fulltrúa Repúblikana í forsetakosningunum sem fram fara í nóvember Erlent 21. janúar 2024 20:22
Skaut fast á Trump, sem ruglaðist á henni og Pelosi Nikki Haley, forsetaframbjóðandi í Repúblikanaflokknum, velti í gær vöngum yfir því hvort Donald Trump gæti setið annað kjörtímabil sem forseti Bandaríkjanna, eftir að hann ruglaðist ítrekað á henni og Nancy Pelosi, fyrrverandi þingforseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, í ræðu sem hann hélt á föstudagskvöldið. Erlent 21. janúar 2024 08:00
Segist tuttugu árum yngri, vitsmunalega séð Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi, stærði sig af því á kosningafundi í New Hampshire á miðvikudagskvöld að hafa þekkt hval frá öðrum dýrum, eins og gíraffa og tígrisdýri, þegar hann var forseti. Hann sagðist líða eins og hann væri 35 ára gamall, en ekki 77 ára. Erlent 19. janúar 2024 09:59
Trump vann stórsigur í Iowa Donald Trump fyrrverandi forseti Bandaríkjanna og núverandi forsetaframbjóðandi vann stórsigur í fyrstu forkosningunum í forvali Repúblikana fyrir komandi forsetakosningar í landinu sem fram fóru í Iowa í nótt. Erlent 16. janúar 2024 07:42
Trump sigurviss fyrir fyrsta forvalið í Iowa Fyrstu forkosningar Repúblikana fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í ár fara fram í Iowa ríki í nótt. Samkvæmt könnunum er Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, langlíklegasti sigurvegarinn. Erlent 16. janúar 2024 00:23
Trump talinn langvinsælastur í Iowa Fyrstu skref Repúblikanaflokksins í átt að forsetakosningunum í haust verða gengin í dag. Meðlimir flokksins í Iowa-ríki velja þá hvaða frambjóðanda þeir vilja sjá sem fulltrúa þeirra í haust. Erlent 15. janúar 2024 13:46
Christie dregur sig í hlé en biðlar til kjósenda að hafna Trump Chris Christie, fyrrverandi ríkisstjóri New Jersey, hefur dregið sig úr forkosningum Repúblikanaflokksins fyrir forsetakosningarnar. Valið mun þá stand á milli Donald Trump, Nikki Haley og Ron DeSantis. Erlent 11. janúar 2024 08:30
„Atlantshafsbandalagið er dautt“ Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti og núverandi forsetaframbjóðandi, er sagður hafa sagt við Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, að Atlantshafsbandalagið væri „dautt“. Erlent 11. janúar 2024 06:45
Andrés, Clinton og Trump nefndir til sögunnar í Epstein-skjölunum Andrés Bretaprins og Bill Clinton og Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforsetar, eru meðal þeirra sem eru nefndir í dómsskjölum í tengslum við athafna- og kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Erlent 4. janúar 2024 06:44
Þrýst á hæstarétt vegna kjörgengis Trumps Maine varð í gær annað ríki Bandaríkjanna þar sem Donald Trump, fyrrverandi forseta, var meinað að vera á kjörseðlum í nóvember á næsta ári. Hæstiréttur Colorado hafði áður komist að sömu niðurstöðu þar og hafa lögsóknir, sem ætlað er að koma í veg fyrir kjörgengi Trumps, verið höfðaðar í á annan tug ríkja til viðbótar. Erlent 29. desember 2023 16:00