Grímulausir ráðgjafar og fjölskylda Trump útsett fyrir smiti Donald Trump Bandaríkjaforseti var í samskiptum við fjölda ráðgjafa, ættingja, bakhjarla og stuðningsmanna sem gæti nú verið útsettur fyrir kórónuveirusmiti eftir að forsetinn og eiginkona hans greindust smituð. Erlent 2. október 2020 10:09
Bandarísku forsetahjónin smituð af kórónuveirunni Donald Trump, Bandaríkjaforseti, og Melania Trump, eiginkona hans, eru smituð af kórónuveirunni sem veldur sjúkdómnum Covid-19. Erlent 2. október 2020 05:58
Kim Jong Un sendi Donald Trump „ástarbréf“ Í leynilegu bréfi sem Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, sendi Donald Trump Bandaríkjaforseta í desember 2018 líkir hann sambandi þeirra félaga við blómstrandi Hollywood-ástarsamband. Erlent 1. október 2020 18:40
Trump-liðar ósáttir við áætlaðar breytingar á kappræðum Í kappræðunum gekk Trump fram af mikilli hörku og hunsaði margar þeirra reglna sem hann hafði samþykkt að fara eftir. Þær snúa meðal annars að framíköllum og tímalengd ummæla. Erlent 1. október 2020 12:39
Bandaríkin: Fyrstu kappræðurnar vöktu mikla athygli Fyrstu kappræður forsetakosninga Bandaríkjanna fóru fram aðfaranótt miðvikudagsins. Þar mættust þeir Donald Trump, forseti, og Joe Biden, frambjóðandi Demókrataflokksins, á sviði í fyrsta sinn. Óhætt er að segja að úrkoman hafi verið sérstök. Erlent 1. október 2020 09:07
Skipuleggjendurnir lofa minni óreiðu næst Skipuleggjendur kappræðnanna fyrir bandarísku forsetakosningarnar hafa heitið því að breyta skipulagi þeirra svo koma megi í veg fyrir stöðug frammígrip, líkt og gerðist ótt og títt í fyrstu kappræðum kosningabaráttunnar í nótt. Erlent 30. september 2020 23:00
Ofsafengin vandlæting færir þeim vopn í hendur sem spjót beinast að Ásmundur Friðriksson segist hafa fengið yfir sig holskeflu svívirðinga vegna nýlegar Facebook-færslu en ekki síður stuðningsyfirlýsingar. Innlent 30. september 2020 10:29
„Snjóflóð“ lyga frá forsetanum Frammistöðu Trumps hefur verið líkt við framgöngu hans á kosningafundum hans, þar sem forsetinn hefur sjaldan látið sannleikann standa í vegi fyrir sér. Erlent 30. september 2020 09:25
Framíköll, óreiða og deilur einkenndu kappræðurnar Fyrstu kappræður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna og frambjóðanda Repúblikana, og Joe Biden, fyrrverandi varaforseta og frambjóðanda Demókrata, fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum fóru fram í Cleveland í nótt. Kappræðurnar einkenndust af framíköllum og deilum. Erlent 30. september 2020 07:30
Fyrstu kappræður Trumps og Bidens Í nótt fara fram fyrstu kappræður Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna og frambjóðanda Repúblikana, og Joe Biden, fyrrverandi varaforseta og frambjóðanda Demókrata, fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum. Erlent 29. september 2020 23:31
Ólíklegt að kappræðurnar í nótt skipti verulegu máli Mikill meirihluti kjósenda í Bandaríkjunum segist ætla að horfa en sérfræðingar og greinendur eru sammála um að kappræðurnar muni í raun litlu breyta. Nema Trump eða Biden misstígi sig verulega. Erlent 29. september 2020 21:01
Dómaraefni Trump tilheyrir trúarhópi sem er sagður kúga konur Amy Coney Barrett, áfrýjunardómari sem Donald Trump Bandaríkjaforseti tilnefndi til hæstaréttar um helgina, er sögð tilheyra kristnum trúarhópi sem fyrrverandi félagar fullyrða að kenni að konur verði að vera undirgefnar eiginmönnum sínum. Erlent 29. september 2020 11:38
Skattamál Trump þjóðaröryggismál að mati Pelosi Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings og æðsti kjörni fulltrúi Demókrata á landsvísu segir að skattamál Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, varði þjóðaröryggi Bandaríkjanna. Erlent 28. september 2020 22:25
„Mógúllinn“ sem tapar og tapar Það að forsetinn hafi einungis greitt 750 dali í alríkistekjuskatt árið sem hann bauð sig fram til forseta, 2016, og hann hafi engan skatt greitt tíu af síðustu fimmtán árum gæti komið niður á stöðu hans meðal verkafólks í Bandaríkjunum. Erlent 28. september 2020 12:57
Fyrrverandi kosningastjóri Trump hótaði að skaða sig Brad Parscale, fyrrverandi kosningastjóri Donald Trump, var lagður inn á sjúkrahús í gær eftir að hann hótaði því að skaða sjálfan sig. Erlent 28. september 2020 11:01
Miklar skuldir forsetans sagðar ógna öryggi Bandaríkjanna Donald Trump, Bandaríkjaforseti, er ábyrgur fyrir 421 milljón dala lánum. Gjalddagar flestra þessara lána eru á næstu fjórum árum. Erlent 28. september 2020 10:21
Segja Trump hafa greitt samtals 1.500 dollara í tekjuskatt á tveimur árum New York Times segist hafa undir höndum gögn um skattskil Donalds Trump Bandaríkjaforseta. Erlent 27. september 2020 22:17
Hugsanlegt að Roe gegn Wade verði tekið fyrir af Hæstarétti að nýju Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagt að það sé hugsanlegt að dómurinn Roe gegn Wade frá árinu 1973 verði tekinn upp að nýju hjá Hæstarétti verði Amy Coney Barrett, tilnefning hans til Hæstaréttar, kosin til dómsins af öldungadeild Bandaríkjanna. Erlent 27. september 2020 21:42
Mesta íhaldssveifla í hæstaréttinum í áratugi Hugmyndafræði Hæstaréttar Bandaríkjanna er líklegt til að taka skarpa hægribeygju til næstu áratuganna eftir að Donald Trump forseti tilnefndi Amy Coney Barrett, íhaldssaman áfrýjunardómara, til að taka sæti Ruth Bader Ginsburg í gær. Erlent 27. september 2020 10:06
Trump ætlar að tilnefna Barrett til Hæstaréttar Donald Trump Bandaríkjaforseti ætlar að tilnefna Amy Coney Barrett til Hæstaréttar Bandaríkjanna. Erlent 25. september 2020 23:25
Ginsburg fyrsta konan á viðhafnarbörum í þinghúsinu Opinber minningarathöfn um Ruth Bader Ginsburg, bandaríska hæstaréttardómaranna sem andaðist á föstudag, fer fram í Washington-borg í dag. Ginsburg er fyrsta konan og fyrsti gyðingurinn til að liggja á viðhafnarbörum í bandaríska þinghúsinu. Erlent 25. september 2020 12:09
Notar reynslu sína af fyrirmyndarskimun Íslendinga til að gagnrýna ríkisstjórn Trumps Bandaríski rithöfundurinn Roxane Gay segir kórónuveiruskimun Íslendinga við landamærin og aðrar sóttvarnarráðstafanir stjórnvalda til fyrirmyndar í samanburði við það sem viðhaft er í Bandaríkjunum. Erlent 25. september 2020 08:36
Segja Rittenhouse hetju og föðurlandsvin Samkvæmt lögmönnum Kyle Rittenhouse var hann ekki hræddur táningur sem skaut tvo til bana í sjálfsvörn í Kenosha í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Hann var föðurlandsvinur. Hann var verjandi frelsis síns og réttinda sinna til að bera vopn inn um óeirðir á götum borgarinnar. Erlent 24. september 2020 22:45
Leiðtogi repúblikana segir að valdaskiptin fari fram „skipulega“ Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikanaflokksins í öldungadeild Bandaríkjaþings, fullyrðir að valdaskipti eftir kosningar í nóvember fari fram á „skipulegan“ hátt þrátt fyrir að Donald Trump forseti hafi sagt að hann gæti ekki lofað að þau færu friðsamlega fram í gær. Erlent 24. september 2020 16:14
Trump neitar að lofa friðsömum valdaskiptum Áhyggjur af því að hörð átök verði um úrslit forsetakosninga í Bandaríkjunum í vetur jukust í gær þegar Donald Trump forseti vildi ekki skuldbinda sig til þess að valdaskipti verði friðsöm sama hver úrslitin verða. Erlent 24. september 2020 11:37
Bandaríkin: Hvers vegna skiptir Hæstiréttur svona miklu máli? Í nýjum þætti Bandaríkjanna, hlaðvarps fréttastofu Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar, ræðum við af hverju bandarískir íhaldsmenn leggja svo mikla áherslu á Hæstarétt. Erlent 24. september 2020 08:30
Telur að úrslit kosninganna fari fyrir Hæstarétt Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að hann teldi að Hæstiréttur Bandaríkjanna þyrfti að skera út um úrslit forsetakosninganna í nóvember. Þessa vegna segir hann mikilvægt að skipa nýjan dómara í sæti Ruth Bader Ginsburg eins hratt og auðið sé. Erlent 23. september 2020 22:00
Ekkja McCain styður Joe Biden til forseta Cindy McCain, ekkja bandaríska öldungadeildarþingmannsins Johns McCain, lýsti yfir stuðningi við forsetaframboð Joe Biden í gær. Erlent 23. september 2020 13:35
Xi tilkynnti óvænt um að Kína stefni að kolefnishlutleysi 2060 Kínverjar ætla að stefna að því að ná kolefnishlutleysi fyrir árið 2060 til að draga úr hættunni á verstu afleiðingum loftslagsbreytinga. Xi Jinping, forseti Kína, tilkynnti þetta óvænt í ávarpi á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Erlent 23. september 2020 10:57
200 þúsund dánir í Bandaríkjunum Fjöldi látinna í Bandaríkjunum vegna Covid-19 er kominn yfir 200 þúsund. Hvergi hafa fleiri dáið né smitast vegna kórónuveirunnar, svo vitað sé. Sérfræðingar segja þó að líklega sé raunverulegur fjöldi látinna mun hærri. Erlent 22. september 2020 19:58