Eyþór segir það enga ögrun við Rússa að leggja til Kænugarðsstræti Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, segir það á engan hátt ögrun við Rússa að leggja til að nafni Garðastrætis verði breytt í Kænugarðsstræti, þrátt fyrir að sendiráð þeirra standi við Garðastræti 33. Fyrst og fremst sé um stuðning við Úkraínu að ræða. Innlent 2. mars 2022 11:57
Grunnskólabörn handtekin í Moskvu fyrir að leggja blóm við úkraínska sendiráðið Að minnsta kosti fjögur grunnskólabörn og foreldrar þeirra voru handtekin í Moskvu í gær þegar þau lögðu blóm við úkraínska sendiráðið og héldu á skiltum sem á stóð „Nei við stríði“. Erlent 2. mars 2022 11:37
Bein útsending: Innrásin og afleiðingarnar fyrir öryggi í Evrópu Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands, Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála og Félag stjórnmálafræðinga standa fyrir opnum fundi um innrás Rússlands í Úkraínu og þær afleiðingar sem innrásin hefur fyrir öryggi í Evrópu. Innlent 2. mars 2022 11:31
Navalní kallar eftir mótmælum: „Pútín er ekki Rússland“ Rússneski andófsmaðurinn Alexei Navalní kallar eftir því að Rússar haldi umfangsmikil mótmæli gegn innrásinni í Úkraínu. Þetta segir Navalní í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér þar sem hann situr í fangelsi í Rússlandi. Erlent 2. mars 2022 11:02
Það gilda lög í stríði Fæst okkar muna eftir vopnuðum átökum jafn nálægt okkur og nú og sjaldan eða aldrei hefur verið jafn auðvelt að setja sig í spor flóttafólks og þegar þúsundir manna flýja heimili sín í Úkraínu. Skoðun 2. mars 2022 11:00
Evrópusambandið boðar hertar refsiaðgerðir gegn Hvíta-Rússlandi Evrópusambandið hefur samþykkt að beita Hvítrússa hertum refsiaðgerðum vegna hlutverks þeirra í innrás Rússa í Úkraínu. Þegar eru í gildi fjöldi þvingana á landið vegna mannréttindabrota sem stjórnvöld hafa framið gegn andstæðingum sínum undanfarin tæp tvö ár. Erlent 2. mars 2022 10:16
Pútín sagður einangraður og með ofsóknaræði Starfsmenn leyniþjónusta í Bandaríkjunum og Evrópu vinna hörðum höndum þessa dagana að því að átta sig á hugarástandi Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Erlent 2. mars 2022 09:52
Feginn að vera á Ítalíu en með áhyggjur af vinum og liðsfélögum „Þetta er fyrst og fremst ömurlegt eins og ég reikna með að langflestir séu sammála um,“ segir Arnór Sigurðsson, landsliðsmaður í fótbolta, um stríðið í Úkraínu. Arnór er samningsbundinn CSKA Moskvu og viðurkennir að miðað við núverandi ástand sé ekki góð tilhugsun að snúa aftur til Rússlands í sumar. Fótbolti 2. mars 2022 09:00
Vill breyta Garðastræti í Kænugarðsstræti Eyþór Laxdal Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, mun í dag leggja fram tillögu í skipulagsráði borgarinnar þess efnis að nafnanefnd verði falið að breyta heiti Garðastrætis í Kænugarðsstræti. Innlent 2. mars 2022 08:39
Innrásin í Úkraínu hefur víðtæk áhrif á hrávörumarkaði Áhrifin sem innrás Rússa í Úkraínu hefur á hrávörumarkaði eru víðtæk og einkennast af töluverðri óvissu sem endurspeglast í miklum sveiflum. Þetta segir Brynjólfur Stefánsson, sjóðstjóri hjá Íslandssjóðum, en hann var áður yfir afleiðubók hráolíu hjá fjárfestingabankanum Morgan Stanley. Innherji 2. mars 2022 08:01
Íslendingur í Kænugarði segir ýmis vandamál virðast plaga Rússa Óskar Hallgrímsson ljósmyndari, sem búsettur er í Kænugarði, segir síðasta sólahring hafa verið nokkuð rólegan í borginni, fyrir utan tvær stórar sprengingar í gær þar sem ráðist var á sjónvarpsturn annars vegar og minnisvarða um Helförina hins vegar. Erlent 2. mars 2022 07:45
Vaktin: Ísland á meðal ríkja sem vísa meintum stríðsglæpum Rússa til rannsóknar Alþjóðasakamáladómstólsins Vika er liðin frá því að Rússar réðust inn í Úkraínu. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar heldur áfram að fylgjast með þróun mála í vaktinni hér fyrir neðan. Erlent 2. mars 2022 06:49
Hart barist í Karkív eftir að rússneskar hersveitir lenda í borginni Rússneskar hersveitir lentu í Karkív um klukkan 3 í nótt og harðir bardagar standa nú yfir milli þeirra og úkraínska hersins. Úkraínsk yfirvöld greindu frá því í nótt að ráðist hefði verið á hersjúkrahús í borginni og að bardagar hefðu brotist út á milli „innrásarhermanna og úkraínskra varnaraðila“. Erlent 2. mars 2022 06:22
Jón Gnarr segist hafa verið innblástur fyrir feril Selenskí Jón Gnarr fyrrverandi borgarstjóri segist hafa verið innblástur fyrir pólitískan feril Vólódímir Selenskí Úkraínuforseta. Jón heimsótti Kænugarð í Úkraínu árið 2019 og er enn í einhverju sambandi við forsetann. Innlent 1. mars 2022 22:30
Úkraínumenn segjast ætla að endursmíða Drauminn Flugheimurinn virðist hafa misst stærstu flugvél heims, úkraínsku þotuna Antonov 225, sem fullyrt er að hafi eyðilagst í árás Rússa á heimaflugvöll hennar í Úkraínu. Ný gervihnattamynd virðist þó sýna stél hennar óskemmt. Risaþotan var aðeins til í einu eintaki og kom nokkrum sinnum til Íslands. Erlent 1. mars 2022 22:20
Tárvot þrumuræða úkraínskrar blaðakonu vekur heimsathygli Daria Kaleniuk, úkraínskur blaðamaður, grátbað Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, um aukna aðstoð til að berjast gegn innrás Rússa í Úkraínu á blaðamannafundi í dag. Myndband af þrumuræðu hennar hefur vakið heimsathygli. Erlent 1. mars 2022 21:37
Vínbúðin tekur rússneskan vodka úr sölu Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins hefur tekið ákvörðun um að taka fjórar tegundir af fimm af rússneskum vodka úr sölu vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Vodkinn verður fjarlægður úr hillum vínbúða á landinu þar til annað verður ákveðið. Viðskipti innlent 1. mars 2022 21:26
Segir það ósanngjarnt að banna rússnesku íþróttafólki að keppa Rússneski ökuþórinn Daniil Kvyat segir það ósanngjarna lausn að banna rússnesku íþróttafólki að keppa í sinni íþrótt vegna innrásar þjóðarinnar í Úkraínu. Formúla 1 1. mars 2022 20:46
Forseti Evrópuþingsins segir Putin verða dreginn til ábyrgðar Forseti Úkraínu sakar Rússa um hryðjuverk eftir eldflaugaárás á miðborg næst stærstu borgar landsins í dag. Forseti Evrópuþingsins segir forseta Rússlands og Hvítarússlands verða dregna til ábyrgðar vegna stríðsins í Úkraínu. Erlent 1. mars 2022 19:21
Sendiherrann segir að barist verði til síðasta blóðdropa um Kænugarð Olga Dibrova hefur verið sendiherra Úkraínu á Íslandi með aðsetur í Helsinki í tvö ár en vegna Covid faraldursins gat hún fyrst í dag afhent forseta Íslands trúnaðarbréf sitt á Bessastöðum. Hún segir Rússa aldrei ná höfuðborginni Kænugarði á sitt vald vegna þess að þeir berjist ekki einungis við úkraínska herinn heldur alla úkraínsku þjóðina Innlent 1. mars 2022 18:33
Shakhtar Donetsk flytur brasilíska leikmenn úr landi Úkraínska knattspyrnufélagið Shakhtar Donetsk hefur flutt alla tólf brasilísku leikmenn liðsins yfir til Rúmeníu eftir að innrás Rússa í Úkraínu hófst. Fótbolti 1. mars 2022 17:45
Klitschko boxbræður sagðir vera á aftökulista Pútíns Valdimír Pútín sendir ekki aðeins hersveitir inn í Úkraínu því hann virðist líka vera búinn að gera út aftökusveit sem á að einbeita sér að losa hann við þá Úkraínumenn sem hann er sérstaklega ósáttur. Sport 1. mars 2022 17:01
Forseti Íslands fundaði með sendiherra Úkraínu Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, tók á móti Olgu Dibrova, sendiherra Úkraínu gagnvart Íslandi, á Bessastöðum í dag. Þetta kemur fram á vefsíðu forsetans. Innlent 1. mars 2022 16:28
Katrín fundar með Stoltenberg í Brussel Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra fundar með Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins (NATO), í höfuðstöðvum bandalagsins í Brussel á morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá NATO. Innlent 1. mars 2022 16:19
Bein útsending: Blaðamannafundur sendiherra Úkraínu Olga Dibrova, sendiherra Úkraínu gagnvart Íslandi, býður íslenskum fjölmiðlum til blaðamannafundar síðdegis í dag. Innlent 1. mars 2022 16:15
FIBA bannar Rússum keppni og Ísland gæti komist á HM Alþjóða körfuknattleikssambandið, FIBA, hefur ákveðið að banna Rússneskum landsliðum og dómurum að taka þátt í mótum á vegum sambandsins um óákveðinn tíma vegna innrásar Rússa í Úkraínu. Rússar eru með Íslendingum í riðli í undankeppni HM karla. Körfubolti 1. mars 2022 15:25
„Mamma, við erum eins og fólkið í seinni heimsstyrjöldinni“ „Mamma, við erum eins og fólkið í seinni heimsstyrjöldinni,“ sagði dóttir Juliu Petryk, íbúa í Kænugarði, þegar mæðgurnar tóku tvo ókunnuga stúdenta inn á heimili sitt um helgina. Stúdentarnir voru þeim alls ókunnugir áður en Rússar réðust inn í Úkraínu en eru nú eins og hluti af fjölskyldunni þeirra. Erlent 1. mars 2022 14:32
Torgið sprungið sem Blikakonur röltu um á Ekki eru nema fáeinir mánuðir síðan að leikmenn og fylgdarlið kvennaliðs Breiðabliks í fótbolta dvöldu í borginni Karkív í Úkraínu sem varð fyrir mannskæðri eldflaugaárás Rússa. Fótbolti 1. mars 2022 14:01
Ekki tímabært að slíta stjórnmálasambandi við Rússa Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir það ekki á dagskrá að svo stöddu að slíta stjórnmálasambandi við Rússa vegna innrásarinnar í Úkraínu þar sem slíkt væri síðasta úrræði. Hún telur að þær refsiaðgerðir sem kynntar hafi verið komi til með að setja þrýsting á rússnesk stjórnvöld og segir alþjóðasamfélagið samstíga í sinni afstöðu. Innlent 1. mars 2022 13:47
Diplómatar Sameinuðu þjóðanna snúa baki við Lavrov Diplómatar hjá Sameinuðu þjóðunum hafa margir neitað að hlusta á málflutning Sergei Lavrovs, utanríkisráðherra Rússlands, í dag. Erlent 1. mars 2022 13:36