Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 5-2 | Fimm Stjörnu frammistaða í Garðabænum Stjarnan tók Breiðabliki í kennslustund í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Leikurinn endaði 5-2 fyrir heimamenn en spilað var í Garðabænum. Ég er ekki viss um að Stjörnumenn hafi spilað betur í sumar og Blikar áttu bara hreinlega engin svör. Íslenski boltinn 7. ágúst 2022 22:08
Umfjöllun og viðtöl: FH 0-3 KA | KA eykur kvalir Hafnfirðinga FH-ingar eru búnir að skrá sig inn í fallbaráttu Bestu-deildarinnar eftir 0-3 tap gegn KA á heimavelli í kvöld. FH bíður enn þá eftir fyrsta sigur undir stjórn Eiðs Smára en liðið hefur nú leikið sjö leiki undir stjórn Eiðs án sigurs. Íslenski boltinn 7. ágúst 2022 21:00
Eiður Smári: „Það er pressa á okkur öllum“ Eftir 0-3 tap gegn KA á heimavelli eru FH-ingar að stimpla sig inn í fallbaráttu Bestu-deildarinnar, staða sem Hafnfirðingar eru ekki vanir að sjá. Í sjö leikjum undir stjórn Eiðs Smára Guðjohnsen hefur FH einungis safnað 0,43 stigum á leik. Fótbolti 7. ágúst 2022 20:01
Umfjöllun: KR - ÍBV 4-0 | Atli setti upp sýningu á Meistaravöllum KR-ingar unnu sannfærandi 4-0 sigur þegar liðið fékk ÍBV í heimsókn á Meistaravelli í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Atli Sigurjónsson skoraði þrennu í leiknum eftir að Sigurður Bjartur Hallsson hafði komið KR á bragðið. Íslenski boltinn 7. ágúst 2022 18:52
Þriðji sigur Þórsara í röð Þór Akureyri vann 1-0 sigur á Vestra í síðasta leik 15. umferð í Lengjudeild karla í fótbolta í dag. Austankonur lögðu þá Grindavík í Lengjudeild kvenna. Íslenski boltinn 6. ágúst 2022 17:30
HK og Fylkir skrefi nær Bestu deildinni | Sjáðu ótrúlegt mark Emils Fjórir leikir voru á dagskrá í 15. umferð Lengjudeildar karla í fótbolta í kvöld og þrír leikir í Lengjudeild kvenna. HK er í góðri stöðu til að fara upp í báðum. Íslenski boltinn 5. ágúst 2022 21:51
Öruggt hjá Blikakonum sem halda í við Val Breiðablik vann sinn sjötta sigur í röð í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld er Keflavík var í heimsókn í Kópavogi. Íslenski boltinn 5. ágúst 2022 21:05
Þjálfari Gróttu í bann fyrir að ógna dómara Chris Brazell, þjálfari karlaliðs Gróttu í fótbolta, missir af næstu þremur leikjum liðsins í Lengjudeildinni eftir að hafa verið úrskurðaður í bann af aga- og úrskurðanefnd KSÍ. Íslenski boltinn 5. ágúst 2022 09:56
Kom inn af bekknum ári eftir að hún tilkynnti að skórnir væru farnir á hilluna Knattspyrnukonan Hólmfríður Magnúsdóttir var óvænt í liði Selfyssinga í Bestu-deild kvenna í kvöld. Liðið gerði markalaust jafntefli gegn ÍBV, en Hólmfríður lagði skóna á hilluna fyrir tæpu ári síðan. Íslenski boltinn 4. ágúst 2022 23:00
„Þetta voru bestu 90 mínútur sem við höfum átt í sumar“ „Ég er mjög ánægður. Við vorum betra liðið í leiknum. Við gerðum réttu hlutina, héldum boltanum á hreyfingu, fundum góðar lausnir og náðum loksins að brjóta þær niður,“ sagði Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar R., eftir 2-0 sigur á Aftureldingu í kvöld. Fótbolti 4. ágúst 2022 22:53
Umfjöllun og viðtöl: KR-Stjarnan 1-2 | Stjarnan stal sigrinum með seinustu spyrnu leiksins Stjarnan vann í kvöld 1-2 sigur á KR með flautumarki á Meistaravöllum í 12. umferð Bestu deildar kvenna. Bæði mörk Stjörnunnar skoraði Málfríður Erna Sigurðardóttir. Íslenski boltinn 4. ágúst 2022 22:50
Umfjöllun og Viðtöl: Valur-Þór/KA 3-0 | Valskonur kláruðu leikinn snemma Topplið Vals vann öruggan 3-0 sigur er liðið tók á móti Þór/KA í Bestu-deild kvenna í kvöld. Valskonur skoruðu tvö á fyrstu tíu mínútum leiksins. Íslenski boltinn 4. ágúst 2022 20:33
Anna Rakel Pétursdóttir: Þetta gleymist allt þegar maður kemur inn á völlinn Valur vann góðan 3-0 sigur á Þór/KA á heimavelli í Bestu deild kvenna í kvöld. Anna Rakel Pétursdóttir tók þar á móti uppeldisfélagi sínu. Hún var að vonum ánægð með leikinn. Sport 4. ágúst 2022 19:56
Umfjöllun: Selfoss-ÍBV 0-0 | Markalaust í suðurlandsslagnum Selfoss tók á móti ÍBV í sannkölluðum suðurlandsslag í kvöld. Leikurinn var kaflaskiptur þar sem að Selfyssingar voru töluvert betri aðilinn í fyrri hálfleik en ÍBV í þeim síðari. Bæði lið björguðu á línu í markalausu jafntefli í kvöld þar sem að mörg færi litu dagsins ljós. Íslenski boltinn 4. ágúst 2022 19:43
Umfjöllun og viðtöl: Afturelding-Þróttur R. 0-2| Þróttur sigraði í Mosfellsbæ Afturelding tók á móti Þrótti í Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld. Afturelding er neðst í deildinni og þurfi á sigri að halda, ekki kom hann í dag þar sem Þróttur vann með tveimur mörkum. Lokatölur 0-2. Íslenski boltinn 4. ágúst 2022 19:15
Furðuðu sig á valdapýramídanum hjá FH: „Þetta er rosalega íslenskt“ Í Stúkunni í gær furðaði Guðmundur Benediktsson sig á valdapýramídanum hjá FH sem hefur átt afar erfitt sumar. Íslenski boltinn 4. ágúst 2022 12:30
Upphitun fyrir elleftu umferð: „Þetta var svolítið dýrt þarna fyrir norðan“ Helena Ólafsdóttir hitaði upp fyrir 11. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta með EM-förunum Söndru Sigurðardóttur og Áslaugu Mundu Gunnlaugsdóttur. Íslenski boltinn 4. ágúst 2022 12:01
Frábær Gandri, FH í klandri og Þórarinn á óþarfa flandri Portúgalinn Tiago Fernandes og Guðmundur Andri Tryggvason skoruðu tvennu hvor um sig í gærkvöld þegar tveir leikir fóru fram í Bestu deildinni í fótbolta. Öll mörkin úr leikjunum má nú sjá hér á Vísi. Íslenski boltinn 4. ágúst 2022 08:31
Umfjöllun og viðtal: Valur-FH 2-0 | Óli Jó lagði fyrrverandi lærisveina sína að velli Valur bar sigur úr býtum þegar liðið fékk FH í heimsókn á Origo-völlinn að Hlíðarenda Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Guðmundur Andri Tryggvason skoraði bæði mörk Vals í 2-0 sigri liðsins. Íslenski boltinn 3. ágúst 2022 22:47
Helgi Sigurðsson: Við getum farið allt sem við viljum Valsmenn unnu góðan 2-0 sigur á FH í Bestu deild karla í kvöld. Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, hafnaði því að mæta í viðtöl eftir leik af virðingu við leikmenn FH sem hann þjálfaði aðeins fyrir nokkrum vikum. Helgi Sigurðsson, aðstoðarþjálfari, var gríðarlega sáttur í leikslok. Sport 3. ágúst 2022 22:09
Umfjöllun og viðtöl: Fram-Stjarnan | Annað fjögurra marka jafntefli Stjörnunnar í röð Fram og Stjarnan skildu jöfn í hörkuleik. Leikurinn byrjaði með látum og eftir fimmtán mínútur var staðan 2-1 fyrir heimamönnum.Allt stemmdi í Fram sigur en á 83. mínútu jafnaði Guðmundur Baldvin Nökkvason með skalla eftir hornspyrnu og annað 2-2 jafntefli Stjörnunnar í röð niðurstaðan. Íslenski boltinn 3. ágúst 2022 21:53
Beðið í fimmtán daga eftir að fá fyrsta markið sitt í Bestu deildinni skráð 19. júlí síðastliðinn gerðu KR og Fram 1-1 jafntefli í Bestu deild karla. Fram komst í 1-0 rétt fyrir hálfleik en KR-ingar jöfnuðu í byrjun seinni hálfleiks. Íslenski boltinn 3. ágúst 2022 13:00
Arnar sér bara rautt þegar hann mætir KR Arnar Grétarsson, þjálfari KA, fékk rauða spjaldið í leik liðsins á móti KR á Akureyri í gær. Þetta er í annað skiptið í sumar sem Arnar fær rautt í leik á móti Vesturbæjarliðinu. Íslenski boltinn 3. ágúst 2022 12:00
Sérfræðingar Stúkunnar skildu reiði KA-manna KA-menn voru vægast sagt ósáttir að fá ekki vítaspyrnu í uppbótartíma í leiknum gegn KR-ingum í Bestu deild karla í gær. Sérfræðingar Stúkunnar sögðu að Akureyringar hefðu ýmislegt til síns máls. Íslenski boltinn 3. ágúst 2022 10:00
Sjáðu markið sem færði KR-ingum fyrsta sigurinn í tvo mánuði Eftir rúmlega tveggja mánaða bið þá tókst KR-ingum loksins að fagna sigri í Bestu deild karla í gærkvöldi. Íslenski boltinn 3. ágúst 2022 09:00
Umfjöllun og viðtöl: KA-KR 0-1 | Fyrsti deildarsigur KR-inga í 66 daga KR vann loksins deildarleik í Bestu-deild karla er liðið heimsótti KA norður á Akureyri í kvöld. Leikurinn endaði 0-1 og var sigurinn kærkominn en KR vann síðast leik í deild 29. maí síðastliðinn. Íslenski boltinn 2. ágúst 2022 22:14
Sjáðu Blika klára Skagamenn á níu mínútna kafla Breiðablik lenti undir á móti botnliði Skagamönnum í Bestu deild karla í gær en toppliðið snéri leiknum við með þremur mörkum á níu mínútna kafla í seinni hálfleiknum. Íslenski boltinn 2. ágúst 2022 09:01
Óskar Hrafn: Dagur Dan frábær í algjörlega nýrri stöðu Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, var heilt yfir sáttur við lærisveina sína í 3-1 sigri liðsins á móti Skagamönnum í 15. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld. Fótbolti 1. ágúst 2022 22:14
Leik lokið: Breiðablik-ÍA 3-1 | Blikar komu til baka gegn Skagamönnum Breiðablik bar sigurorð af ÍA með þremur mörkum gegn einu þegar liðin áttust við í 15. umferðar í Bestu deild karla í fótbolta á Kópavogsvelli í kvöld. Skagamenn komust yfir í leiknum en þrjú mörk Blika á níu mínútna kafla tryggðu heimamönnum sigur og níu stiga forystu á toppi deildarinnar. Íslenski boltinn 1. ágúst 2022 21:04
„Strákarnir eiga skilið að njóta sín og skemmta sér í Dalnum“ Hermann Hreiðarsson, þjálfari ÍBV, sagði jafntefli líklega hafa verið sanngjörn úrslit í leik ÍBV og Keflavíkur sem fram fór í Bestu deildinni í fótbolta í dag. Íslenski boltinn 30. júlí 2022 16:42