Víkingur mætir liði frá Wales í Sambandsdeildinni Víkingur féll úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu eftir samanlagt 6-5 tap gegn sænska stórliðinu Malmö. Víkingar fara því næst í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu þar sem næsti mótherji er The New Saints frá Wales. Fótbolti 13. júlí 2022 23:01
Óskar Hrafn: Þurfum að stíga á bensíngjöfina Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, telur að liðið lærði mikið af fyrri leiknum við Santa Coloma sem Blikar unnu 0-1 í Andorra. Blikar þurfa að auka hraðann gegn þeim í næsta leik. Fótbolti 13. júlí 2022 22:01
Mörkin: Karl Friðleifur skoraði tvö er Víkingur skaut Malmö skelk í bringu Karl Friðleifur Gunnarsson skoraði sín fyrstu tvö mörk í sumar er Víkingur og Malmö gerðu 3-3 jafntefli í síðari leik liðanna í undankeppni Meistaradeildar Evrópu. Malmö fór áfram með 6-5 sigri samanlegt en Víkingar geta borið höfuðið hátt eftir tvo frábæra leiki. Hér að neðan má sjá mörkin úr leik gærdagsins. Fótbolti 13. júlí 2022 20:00
„Við teljum okkur vera með góðan mannskap en höfum ekki náð því besta út úr öllum” Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, segir sína menn ekki vera í leit að liðsstyrk þó svo að mikil meiðsli herji nú á leikmannahóp liðsins. Hann segir einfaldlega að allir hjá félaginu þurfi að líta í spegil og bæta sig. Íslenski boltinn 13. júlí 2022 18:36
Stúkan fór yfir varnarleik KA: „Vandræðagangurinn var töluverður hjá þeim“ Undanfarin ár hefur varnaleikurinn verið aðalsmerki KA-manna í Bestu-deild karla í fótbolta, en hann virðist ekki vera jafn sterkur og áður. Sérfræðingar Stúkunnar fóru yfir varnarleik liðsins í seinasta þætti. Íslenski boltinn 13. júlí 2022 17:01
Óli Valur mættur til Sirius Besta deild karla í fótbolta heldur áfram að missa skemmtikrafta úr deildinni. Fyrr í morgun var staðfest að Kristall Máni Ingason væri búinn að skrifa undir hjá Rosenborg og nú hefur sænska úrvalsdeildarfélagið IK Sirius staðfest komu Óla Vals Ómarssonar. Fótbolti 13. júlí 2022 09:30
Kristall Máni semur við Rosenborg: Nær tveimur leikjum í viðbót með Víkingum Norska stórliðið Rosenborg hefur staðfest að Kristall Máni Ingason er genginn í raðir félagsins. Tilkynning þess efnis og kynningarmyndband var birt á samfélagsmiðlum félagsins í morgun. Íslenski boltinn 13. júlí 2022 07:30
Víkingar allra landsmanna eiga erfitt verkefni fyrir höndum Víkingur mætir Malmö í síðari leik liðanna í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld. Víkingar eiga á brattan að sækja eftir fyrri leikinn gegn Svíþjóðarmeisturunum en einvígið er vel á lífi þökk sé marki ofur-varamannsins Helga Guðjónssonar undir lok leiks ytra. Íslenski boltinn 12. júlí 2022 12:00
Keflavík og Leiknir R. með óvænta en örugga sigra á meðan Fram tapar ekki í Úlfarsárdal Þrír leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta á mánudag. Keflavík vann öruggan 3-0 útisigur á Val og sömu sögu er að segja af Leikni Reykjavík sem heimsótti Stjörnuna í Garðabæ. Þá vann Fram 1-0 sigur á FH. Íslenski boltinn 12. júlí 2022 11:00
Heimir um hugarfar Valsmanna: „Sá hlutur sem er að skaða okkur hvað mest“ Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, gat ekki leynt vonbrigðum sínum er hann ræddi við Gunnlaug Jónsson eftir 0-3 tap sinna manna á heimavelli gegn Keflavík í Bestu deild karla í fótbolta á mánudag. Hann sagði Valsmenn vera sjálfum sér verstir. Íslenski boltinn 12. júlí 2022 10:01
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan-Leiknir R. 0-3 | Leiknismenn völtuðu yfir Stjörnuna í fyrri hálfleik Leiknismenn sóttu þrjú stig í Garðabæinn í kvöld þegar þeir sigruðu Stjörnuna í Bestu deild karla í knattspyrnu. Lokatölur 3-0 en öll mörk Leiknis komu í fyrri hálfleik þar sem þeir léku við hvern sinn fingur. Íslenski boltinn 11. júlí 2022 22:08
„Þetta var iðnaðarsigur“ „Mér líður dásamlega, það er ekki annað hægt, 1-0 sigur í hörkuleik. Þetta gæti ekki byrjað betur,“ sagði Brynjar Gauti Guðjónsson, leikmaður Fram, í sínum fyrsta leik fyrir félagið þegar liðið vann FH 1-0. Fótbolti 11. júlí 2022 21:49
Umfjöllun og viðtal: Valur 0-3 Keflavík | Einum fleiri gengu Keflvíkingar á lagið Keflavík vann gríðarlega mikilvægan sigur á Valsmönnum að Hlíðarenda í kvöld, 0-3. Keflavík komst yfir í fyrri hálfleik úr vítaspyrnu sem kostaði heimamenn rautt spjald að auki. Gestirnir lokuðu leiknum svo í síðari hálfleik eftir mikla orrahríð að marki Vals. Íslenski boltinn 11. júlí 2022 21:30
Umfjöllun og viðtöl: Fram-FH 1-0 | FH-ingar sigraðir í Grafarholti Fram tók á móti FH í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Fyrir leikinn voru liðin jöfn að stigum í 8. og 9. sæti deildarinnar með aðeins 10 stig að loknum 11 umferðum. Eina mark leiksins kom eftir 50 mínútna leik og var það Tiago Manuel Da Silva Fernandes á skotskónum fyrir Framara. Lokatölur 1-0. Fótbolti 11. júlí 2022 20:53
Gummi Tyrfings mætti á rútunni aftur á Selfoss Knattspyrnumaðurinn Guðmundur Tyrfingsson skrifað í dag undir tveggja ára samning við uppeldisfélag sitt, Selfoss. Guðmundur mætti að sjálfsögðu á grænni rútu frá afa sínum. Íslenski boltinn 11. júlí 2022 17:31
Arftaki Kristals Mána fundinn: „Glaður og spenntur, það eru orðin tvö“ Danijel Dejan Djuric er genginn í raðir Íslands- og bikarmeistara Víkings. Hann kemur úr unglingastarfi Midtjylland í Danmörku en þessi ungi leikmaður lék með Blikum áður en hann fór út í atvinnumennsku árið 2019. Íslenski boltinn 11. júlí 2022 16:01
Umfjöllun og Viðtöl: Víkingur 3-2 ÍA | Íslandsmeistararnir hefndu fyrir tapið á Skaganum Íslands- og bikarmeistarar Víkings fengu Skagamenn í heimsókn í 12. umferð Bestu-deild karla í fótbolta. Eini sigurleikur Skagamanna hingað til í sumar kom gegn Víkingum í 2. umferð á Skipaskaga en meistararnir náðu að hefna fyrir það tap með 3-2 sigri í dag. Íslenski boltinn 9. júlí 2022 19:45
Umfjöllun: KA 4-3 ÍBV | Frábært sigurmark skilaði heimasigri í markaleik KA vann mikilvægan heimasigur á botnliði ÍBV á Akureyri í dag. Leikurinn var stórkostleg skemmtun og sjö mörk litu dagsins ljós en það var Elfar Árni Aðalsteinsson sem skoraði sigurmark heimamanna. Íslenski boltinn 9. júlí 2022 18:00
Ísak Snær fagnaði eins og Kristall Máni: „Smá æsing í þetta“ Ísak Snær Þorvaldsson, leikmaður Breiðabliks, fagnaði því sem reyndist sigurmark Breiðabliks gegn Santa Coloma með því að herma eftir fagni Kristals Mána Ingasonar, leikmanns Víkings, í Malmö. Íslenski boltinn 8. júlí 2022 15:01
Óli Valur mögulega á leið til Svíþjóðar Sænska úrvalsdeildarfélagið Sirius hefur mikinn áhuga á Óla Val Ómarssyni, hægri bakverði Stjörnunnar og einni skærustu stjörnu Bestu deildar karla í fótbolta. Fótbolti 6. júlí 2022 14:01
Segir að Kristall kunni ekki reglurnar Í 3-2 tapi Víkings gegn Malmö í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í gær lét Kristall Máni Ingason reka sig af velli eftir að hann jafnaði metin í 1-1 fyrir Íslandsmeistarana og sussaði á áhorfendur. Ola Toivonen, leikmaður sænska liðsins, segir að Kristall kunni líklega ekki reglurnar. Íslenski boltinn 6. júlí 2022 07:31
Náði góðum myndum af rauða spjaldi Guðmundar Andra Valsmenn misstu mann af velli í stöðunni 1-0 á móti KA í Bestu deildinni í gær og enduðu á því að fara bara með eitt stig suður til Reykjavíkur. Íslenski boltinn 5. júlí 2022 14:30
Loks vann Leiknir, Stjarnan bjargaði stigi líkt og KA Þrír leikir fóru fram í Bestu deild karla í fótbolta í gær. Hér að neðan má sjá mörkin úr leikjunum þremur. Íslenski boltinn 5. júlí 2022 10:31
Víkingar mæta til Malmö með sjálfstraustið í botni Íslands- og bikarmeistarar Víkings mæta Malmö ytra í undankeppni Meistaradeildar Evrópu í dag. Víkingar mæta fullir sjálfstrausts í leikinn, sem er sýndur beint á Stöð 2 Sport, eftir átta sigurleiki í röð. Íslenski boltinn 5. júlí 2022 08:01
Umfjöllun og viðtöl: Leiknir R.-ÍA 1-0 | 330 daga bið eftir deildarsigri Leiknis á enda Leiknir vann sinn fyrsta leik í Bestu-deildinni. Seinasti sigur Leiknis í deildinni kom þann 8. ágúst á síðasta ári gegn Val. 330 dögum síðar kom 1-0 sigur gegn ÍA þar sem Mikkel Elbæk Jakobsen reyndist hetja Breiðhyltinga. Íslenski boltinn 4. júlí 2022 22:38
Umfjöllun og viðtöl: FH-Stjarnan 1-1 | Enn eitt jafntefli liðanna eftir æsilegar lokamínútur FH og Stjarnan þurfa að deila stigunum sem voru í boði í dag eftir að hafa gert jafntefli 1-1 í Kaplakrika. Leikurinn var í hægara lagi og fá færi litu dagsins ljós þangað til í uppbótartíma en Stjarnan jafnaði metin þegar lítið var eftir og bæði lið hefðu getað skorað í uppbótartíma. FH komst tvisvar í góða skyndisókn og Stjarnan skaut í stöng. Íslenski boltinn 4. júlí 2022 22:00
Umfjöllun og viðtöl: KA-Valur 1-1 | KA og Valur skiptu stigunum á milli sín KA og Valur gerðu 1-1 jafntefli á Greifavellinum nú í kvöld þegar liðin mættust í 11. umferð Bestu deildar karla. Íslenski boltinn 4. júlí 2022 21:32
Matthías: Ég hef mikla trú á því að við verðum betri með tímanum Fyrirliði FH-inga var skiljanlega svekktur að fá á sig jöfnunarmark þegar þrjár mínútur voru eftir af leik liðsins á móti Stjörnunni í kvöld. Leikið var í Kaplakrika og var leikurinn hluti af 11. umferð Bestu deildar karla í fótbolta og endaði 1-1 en FH var betri aðilinn lengst af. Íslenski boltinn 4. júlí 2022 21:31
Heimir um markmannsstöðuna: Það má ekki nota orðið samkeppni í dag KA og Valur skildu jöfn, 1-1, á Greifavellinum á Akureyri nú í kvöld. Heimi Guðjónssyni, þjálfara Vals, fannst jafntefli vera sanngjörn niðurstaða . Íslenski boltinn 4. júlí 2022 20:55
Staðfesti leikskýrslu í Bestu deildinni en gleymdi að skrá mörkin Víkingar unnu 3-0 sigur á KR í fyrsta leik elleftu umferðar Bestu deildar karla á föstudagskvöldið. Nú hefur dómari leiksins skilað staðfestri leikskýrslu en hún er hins vegar meingölluð. Íslenski boltinn 4. júlí 2022 14:32