Frelsi til að vera ósammála Stundum velti ég fyrir mér hvernig okkur tókst að móðgast fyrir tíma samfélagsmiðla. Getur verið að allir hafi bara verið meira og minna sammála og í mesta lagi hafi einn eða tveir rokið í fússi úr heita pottinum eða fermingarveislunni? Fastir pennar 29.9.2017 16:57
Pistill sem er ekki um pólitík Ef við hefðum einhvers konar manndómsvígslur, eins og voru svo algengar í gamla daga, þá mæli ég með einni. Að taka til í bílskúrnum. Ég er semsagt búinn að vera að því svo lengi að mig grunar að stór hluti vinnufélaga minna haldi að ég búi í bílskúr. Þau segja að ég tali ekki um neitt annað. Sem er alls ekki rétt. Ég held þó að orðið bílskúr komi ekki nema í þriðju hverri setningu hjá mér. Fastir pennar 15.9.2017 21:46
Hugsum í lausnum Um daginn sá ég viðtal við leigubílstjóra sem var algjörlega brjálaður (og ég held að það verði enginn jafn brjálaður og pirraður leigubílstjóri) yfir því að borgin byggði ekki upphituð skýli fyrir fólk sem væri að bíða eftir leigubíl. Eins og það væri ekki nóg, þá áttu líka að vera þar öryggisverðir svo hægt væri að hafa hemil á drukknu fólki, fjúkandi í haustlægðunum að bíða eftir að röðin kæmi að því. Fastir pennar 1.9.2017 16:56
Kaupmaðurinn útí rassgati Ég ólst upp í Smáíbúðahverfinu. (Ég veit! Fáránlegt nafn á hverfi!) En næsta gata við mig var Búðagerði. Það var einstaklega viðeigandi nafn. Þar voru tvær matvöruverslanir: Austurborg og Söbechsverzlun. Þar var líka mjólkurbúð og kjötbúð og líklega bakarí eða fiskbúð. Fastir pennar 27. maí 2017 07:00
Óður til gleðinnar? Maður verður að vera léttur. Ég er búinn að segja þetta milljón sinnum. Og þetta á alltaf við en alveg sérstaklega þessa viku. Eurovision. Það er allt skemmtilegt við þetta en okkur hættir til að taka þetta full alvarlega. Svona eins og þetta sé í alvöru keppni í tónlist. Fastir pennar 13. maí 2017 07:00
Flugvéladrama Kollegi minn Sólmundur Hólm lenti í hroðalegri lífsreynslu um daginn. Hann var sem sagt að koma heim frá Búdapest, en vélin lenti í rokinu í Keflavík svo hann komst ekki frá borði fyrr en tveimur tímum eftir lendingu. Hundrað og tuttugu mínútum! Fastir pennar 29. apríl 2017 07:00
Föstudagurinn laaaangi Í dag er laugardagur. Það er kannski ekkert fréttnæmt, enda er laugardagur um páskahelgi einhvern veginn algjört aukaatriði, klemmdur milli leiðinlegasta dags æsku minnar og páskadags. Fastir pennar 15. apríl 2017 07:00
Skilaðu dólgnum Stundum koma upp mál sem heltaka umræðuna í nokkra daga en deyja svo hægt og rólega út. Fastir pennar 1. apríl 2017 07:00
Játningar fyrrverandi fermingarbarns Að fermast er örugglega meiriháttar mál. Mér er að minnsta kosti sagt það. Ég get samt ekki sagt að mín upplifun hafi verið þannig. Fastir pennar 18. mars 2017 07:00
Afsakið mig Í fyrradag las ég merkilega færslu frá konu sem vildi biðja mig opinberlega afsökunar. Fastir pennar 4. mars 2017 07:00
Miðaldra músaveiðimaður Hvað gerir nýorðinn fimmtugur maður þegar hann kemst að því að hann er með mús í bílskúrnum? Fer á taugum. Staðfest. Fastir pennar 18. febrúar 2017 07:00
Einfalda leiðin Ef ég væri svona alvöru pistlahöfundur, sem tæki mig hátíðlega, væri ég núna að fara að skrifa pistil um Donald Trump. En vá hvað ég nenni því ekki. Fer hann ekki bara ef við hættum að tala um hann? Fastir pennar 4. febrúar 2017 07:00
Sameinuð í sorg Mér finnst eins og ég hafi lært eitthvað um íslensku þjóðina síðustu daga. Þjóðin hefur í sameiningu upplifað kvíða, ótta, vantrú, reiði en fyrst og fremst sorg. Þannig hefur hún sameinast í viðbrögðum sínum við hvarfi Birnu Brjánsdóttur. Fastir pennar 21. janúar 2017 07:00
Völvuspá áratugarins Mér finnst áramót alltaf soltið spennandi. Nýtt upphaf og tími til að taka ákvarðanir um breytingar. Fastir pennar 7. janúar 2017 07:00
Bernsku minnar jól Það er svo merkilegt með minningar. Í þeim man maður eiginlega alltaf bara það besta og versta. Í minningunni var annaðhvort snjór eða sól. Meira eða minna allan ársins hring. Fastir pennar 24. desember 2016 07:00
Bjartir morgnar Stundum finnst mér eins og við séum fiskar í fiskabúri. Syndandi hring eftir hring, gleymandi öllu jafn óðum og verða svo spennt/glöð/reið yfir sömu hlutunum. Aftur og aftur og aftur og aftur. Ú! Kastali. Fastir pennar 10. desember 2016 07:00
Nútíminn er trunta Nú, þegar ég er að verða miðaldra, langar mig að skrifa vel miðaldra pistil. Svona "Það var allt betra í gamla daga“-pælingu. Það er reyndar mjög erfitt, því það var ekki allt betra í gamla daga. Fastir pennar 26. nóvember 2016 07:00
Skólaball Kennarar hafa verið að mótmæla alla vikuna. Ég held að flestir skilji það. Ég man þá tíð þegar þeir voru alltaf í verkföllum. Vá, hvað það var meiriháttar. Ég hef samt ekki alveg sömu afstöðu til verkfalla kennara nú og fyrir nokkrum áratugum. Merkilegt. Fastir pennar 12. nóvember 2016 07:00
Prófdagur Ég þekkti einu sinni mann sem tók ekki mark á skoðanakönnunum af því að hann var aldrei með í þeim. Hann hafði að vísu þá reglu að svara ekki í símann á kvöldin, en sá ekkert samhengi þarna á milli. Allar skoðanakannanir sem féllu ekki að skoðunum hans voru bara bull. Fastir pennar 29. október 2016 07:00
Fulli frændinn Það er svo ótrúlegt að fylgjast með kosningunum í Bandaríkjunum. Hvað sem menn geta sagt um þetta furðulega land, þá eru Bandaríkin mikið lýðræðisríki. Kannski ekki alveg jafn mikið og þeir sjálfir vilja meina, en fólk kýs leiðtoga sína og Fastir pennar 15. október 2016 07:00
Frelsið er yndislegt Ég er nú ekki svo gamall. En samt man ég eftir ýmsu sem okkur finnst fáránlegt í dag. Svo fáránlegt að við erum jafnvel farin að hlæja að því og spyrjum okkur: Hvernig var þetta hægt? Fastir pennar 1. október 2016 07:00
Helvítis túristar Við viljum endilega fá túrista. Við viljum bara ekki fá þessa sem við erum með núna. Við viljum fá túrista sem fara út á land og borga ógeðslega mikið fyrir hótel og bílaleigubíla og mat. Fastir pennar 17. september 2016 07:00
Kallakallarnir Nú eru flestir flokkar að koma sér í gírinn fyrir kosningar og orðið nokkuð ljóst að það verður kosið. Framboðslistar koma fram og allt að verða klárt. Meirihlutinn er örugglega voða fínt fólk sem hefur miklar hugsjónir og allt. Fastir pennar 3. september 2016 07:00
Bara á Íslandi Það er nefnilega þannig að við sjáum aldrei drasl. Hefur einhver flett upp í tímariti þar sem fólk var að sýna íbúð sem ekki leit út eins og þar hefði aldrei barn stigið inn fæti? Skoðun 20. ágúst 2016 10:00