AC Milan sigraði Inter 2-0 AC Milan sigraði Inter 2-0 í Meistaradeild Evrópu í kvöld. Jaap Stam og Andrei Shevchenko skoruðu mörkin. Inter var betra liðið í fyrri hálfleik en Milan í þeim síðari. Varnarlínan var ótrúlega sterk hjá Milan í kvöld, en liðið spilaði varnarleikinn nánast óaðfinnanlega. Sport 6. apríl 2005 00:01
Shevchenko kemur Milan í 2-0 Knattspyrnumaður Evrópu, Úkraínumaðurinn Andrei Shevchenko var að koma AC Milan í 2-0 með marki á 74. mínútu í leik gegn Inter í Meistaradeild Evrópu. Pirlo tók aukaspyrnu, gaf fyrir og þar kom Andrei Shevchenko og skallaði framhjá Toldo í markinu. Í fagnaðarlátunum reif hann af sér treyjuna og fékk að launum gult spjald. Sport 6. apríl 2005 00:01
Hálfleikstölur í Meistaradeildinni Nú er hálfleikur í leikjunum tveimur í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Sport 6. apríl 2005 00:01
Ítalska pressan óánægð Ítalska pressan er ekki ánægð með hegðun Ítölsku áhorfendurna á leik Liverpool og Juventus á Anfield í gærkvöldi. Stuðningsmenn Liverpool stóðu fyrir minningarathöfn vegna þeirra 39 sem létust, þar af 38 stuðningsmenn Juventus, á Heysel leikvanginum þegar liðin mættust í úrslitaleik Evrópukeppninnar fyrir tuttugu árum. Sport 6. apríl 2005 00:01
Chelsea sigrar Bayern 4-2 Chelsea sigraði Bayern Munchen á Stamford Bridge í Meistaradeild Evrópu í kvöld með fjórum mörkum gegn tveimur. Joe Cole kom Chelsea yfir strax á fjórðu mínútu og og þannig var staðan í hálfleik. Sport 6. apríl 2005 00:01
Eiður í byrjunarliðinu Eiður Smári er í byrjunarliði Chelsea sem tekur á móti Bayern Munchen í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á Stamford Bridge í kvöld. Eiður er í fremstu víglínu ásamt Frakkanum Didier Drogba. Sport 6. apríl 2005 00:01
Bayern búið að jafna Bastian Schweinsteiger var rétt í þessu að jafna fyrir Bayern Munchen gegn Chelsea í Meistaradeild Evrópu. Sport 6. apríl 2005 00:01
Mellberg fór í aðgerð í dag Fyrirliði Aston Villa, Svíinn Olof Mellberg, fór í aðgerð í morgun vegna hnémeiðslanna sem hann varð fyrir í 3-0 sigurleiknum gegn Newcastle á St James Park á laugardaginn. Ekki er ennþá vitað hvað hinn 27 ára gamli varnarmaður verður lengi frá keppni. Sport 6. apríl 2005 00:01
Bowyer og Dyer með gegn Sporting Stjóri Newcastle, Skotinn Graeme Souness, hefur nefnt slagsmálahundana tvo, Lee Bowyer og Kieron Dyer, í hópinn sinn í Uefa keppninni fyrir leikinn í 8-liða úrslitum gegn Sporting Lisbon. Sport 6. apríl 2005 00:01
PSV búið að jafna Phillip Cocu var að jafna fyrir PSV gegn Lyon á Stade de Gerland í Frakklandi í Meistaradeild Evrópu. Florent Malouda hafið áður komið Lyon yfir strax á 13. mínútu. Sport 5. apríl 2005 00:01
Hálfleikstölur í Meistaradeildinni Það er kominn hálfleikur í leikina tvo í Meistaradeild Evrópu sem fram fara í kvöld. Á Anfield er Liverpool 2-0 yfir gegn Juventus. Sami Hyypia kom þeim rauðu yfir á 11. mínútu með góðu skoti eftir hornspyrnu. Luis Garcia tvöfaldaði síðan forystuna með frábæru marki. Sport 5. apríl 2005 00:01
Lyon komið yfir gegn PSV Lyon frá Frakklandi er komið yfir gegn PSV á heimavelli sínum Stade de Gerland í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Það var Florent Malouda sem gerði markið á þrettándu mínútu. Sport 5. apríl 2005 00:01
Samhugur á Anfield Mikil viðhöfn verður á leik Liverpool og Juventus í Meistaradeildinni í kvöld, til að minnast fórnarlambanna á Heysel leikvangnum fyrir réttum 20 árum, þegar veggur hrundi á úrslitaleik liðanna í keppninni og varð 39 manns að bana. Sport 5. apríl 2005 00:01
Liverpool sigraði Juventus Liverpool sigraði Juventus í fyrri leik liðana í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á Anfield í kvöld með tveimur mörkum gegn einu. Leikurinn var mjög kaflaskiptur en Liverpool sýndi allar bestu hliðar fótboltans í fyrri hálfleik, en Juventus sýndi hvers vegna þeir eru eitt af bestu liðum álfunar í þeim seinni. Sport 5. apríl 2005 00:01
Lehmann fær tveggja leikja bann Þýski markvörðurinn Jens Lehmann hjá Arsenal hefur verið úrskurðaður í tveggja leikja bann í Evrópukeppni fyrir hegðun sína eftir tapið gegn löndum sínum í Bayern Munchen á dögunum. Sport 5. apríl 2005 00:01
Carson og Le Tallec byrja Markvörðurinn ungi, Scott Carson, og Frakkinn efnilegi Anthony Le Tallec eru báðir í byrjunarliði Liverpool sem mætir Juventus í fyrri leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á Anfield í kvöld. Þá er Xabi Alonso í hópnum Sport 5. apríl 2005 00:01
Lyon og PSV skyldu jöfn Lyon og PSV Eindhoven skyldu jöfn í fyrri leik liðana í Meistaradeild Evrópu í kvöld með einu marki gegn einu. Florent Malouda kom heimamönnum yfir á þrettándu mínútu en fyrrum Barcelona leikmaðurinn, Phillip Cocu, jafnaði ellefu mínútum fyrir leikslok. Liðin mætast að nýju, þá í Hollandi, eftir rúma viku. Sport 5. apríl 2005 00:01
Juventus búið að minnka muninn Fabio Cannavaro var rétt í þessu að minnka muninn í 2-1 með skallamarki á 64. mínútu. Spurningamerki verður þó að setja við markvörðinn unga Scott Carson sem hefði átt að gera betur. Juventus hafa verið mun sterkari í síðari hálfleik eftir frábæran fyrri hálfleik hjá Liverpool. Sport 5. apríl 2005 00:01
Mourinho verður víðs fjarri Baltemar Brito, aðstoðarmaður Jose Mourinho hjá Chelsea, hefur staðfest að Mourinho verði hvergi nærri Stamford Bridge þegar Chelsea mætir Bayern Munchen í Meistaradeildinni annað kvöld. Sport 5. apríl 2005 00:01
Liverpool komið yfir gegn Juventus Sami Hyypia var rétt í þessu að koma Liverpool í 1-0 gegn ítölsku risunum í Juventus. Milan Baros vann hornspyrnu hægra megin sem fyrirliðinn Steven Gerrard tók, sendi á nærstöng þar sem boltinn var skallaður yfir á fjær, þar var Hyypia, einn og óvaldaður, og þrumaði knettinum framhjá Buffon í markinu. Sport 5. apríl 2005 00:01
Garcia kemur Liverpool í 2-0 Luis Garcia var að koma Liverpool í 2-0 með hreint út sagt ótrúlegu mari. Garcia tók boltann á lofti af um 25 metra færi og þrumaði honum yfir Buffon og í bláhornið. Klárlega eitt af mörkum keppninnar hingað til. Sport 5. apríl 2005 00:01
Vinátta yfirskrift leiksins Hver einasti stuðningsmaður Juventus sem kemur á Anfield í kvöld fær armband sem er í litum Liverpool og Juventus með áletruninni „vinátta“, bæði á ensku og ítölsku. Þá ætla stuðningsmenn Liverpool að búa til mósaíkmynd í stúkunni með áletruninni „vinátta“. Sport 5. apríl 2005 00:01
Mourinho treystir leikmönnum sínum Jose Mourinho knattspyrnustjóri Chelsea, segist hafa fulla trú á að leikmenn sínir geti spjarað sig án hans gegn Bayern Munchen annað kvöld, en stjórinn tekur út bann í leiknum og má því eiga lítil sem engin afskipti af liðinu meðan á leik stendur. Sport 5. apríl 2005 00:01
Del Piero vill gleyma Heysel Alessandro del Piero vill nota Meistaradeildarleikinn gegn Liverpool annað kvöld til að ,,loka kafla" á mjög slæmri minningu. Eins og flestir vita mættust liðin tvö í úrslitum Evrópukeppninnar árið 1985 á Heysel leikvanginum þar sem 39 stuðningsmenn létust. Sport 4. apríl 2005 00:01
Slagur sem vekur upp minningar Átta liða úrslit meistaradeildarinnar hefjast með tveimur leikjum í kvöld. Franska liðið Lyon, sem tók Werder Bremen í bakaríið í sextán liða úrslitum, tekur á móti PSV frá Hollandi og Juventus sækir Liverpool heim á Anfield. Sport 4. apríl 2005 00:01
Benitez vill halda hreinu Rafa Benitez, knattspyrnustjóri Liverpool, segir það algjört lykilatriði fyrir lið sitt að halda hreinu á heimavelli sínum í fyrri leik sínum við Juventus í vikunni. Sport 4. apríl 2005 00:01
Chelsea ætlar ekki að áfrýja Chelsea ætlar ekki að áfrýja banni Jose Mourinho, en UEFA sektaði Chelsea um 33 þúsund pund og setti Mourinho í tveggja leikja bann eftir atvik sem upp kom í leik Chelsea gegn Barcelona í 16-liða úrslitunum. Sport 4. apríl 2005 00:01
Mourinho fær bann og sekt Jose Mourinho hefur verið fundinn sekur um lygar af evrópska knattspyrnusambandinu og fær fyrir vikið tveggja leikja bann og tæplega 9000 punda sekt. Sport 31. mars 2005 00:01
Oliver Kahn vill ná þrennunni Oliver Kahn, landsliðsmarkvörður Þjóðverja, er sannfærður um að lið sitt, Bayern Munchen, muni vinna þrjá titla á tímabilinu. Sport 30. mars 2005 00:01
Mourinho dregur orð sín til baka Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, sem hefur verið ákærður fyrir munnsöfnuð og dylgjur í garð Anders Frisks, dómara frá Svíþjóð, eftir leik Barcelona og Chelsea í Meistaradeildinni í knattspyrnu, hefur dregið orð sín til baka og segist ekki hafa séð Frisk dómara ræða við Frank Rijkaard, þjálfara Barcelona, í leikhléi í fyrri viðureign liðanna. Sport 29. mars 2005 00:01