Ríkasti Rússinn ætlar að hjálpa Nets að byggja nýja höll í Brooklyn Rússneski milljarðarmæringurinn Mikhail Prokhorov er að íhuga það að koma nýju körfuboltahöll New Jersey Nets til bjargar. Bruce Ratner, eigandi Nets-liðsins í NBA-deildinni í körfubolta, þarf að vera búinn fjármagna og hefja framkvæmdir við höllina fyrir desember. Körfubolti 18. september 2009 13:00
Bryon Russell vill fá að spila við Jordan einn á einn Michael Jordan gerði grín að Bryon Russell, fyrrum leikmanni Utah Jazz, í ræðu sinni þegar hann var tekinn inn í Frægðarhöll bandaríska körfuboltans á föstudaginn. Russell var að dekka Jordan þegar hann skoraði sigurkörfuna í síðasta leiknum sínum fyrir Chicago Bulls árið 1998. Russell flaug á rassinn eftir að hafa fengið smá hjálp frá Jordan og Jordan tryggði Bulls sjötta meistaratitilinn á átta árum. Körfubolti 14. september 2009 08:30
Jordan skaut föstum skotum að Jerry Krause í þakkaræðunni Michael Jordan var tekinn inn í Frægðarhöll bandaríska körfuboltans á föstudagskvöldið og hélt við það tækifæri mikla ræðu þar sem að hann fór yfir ferill sinn og það fólk sem hefur haft mest áhrif á sig. Körfubolti 13. september 2009 20:00
Wade ekki tilbúinn að framlengja hjá Miami Heat Stjörnubakvörðurinn Dwyane Wade hjá Miami Heat hefur staðfest að hann sé ekki lengur í viðræðum við félagið um framlengingu á núverandi samningi sínum. Körfubolti 11. september 2009 19:15
Barkley: Michael Jordan er besti körfuboltamaður allra tíma Michael Jordan verður í dag tekinn inn í Frægðarhöll bandaríska körfuboltans ásamt þeim John Stockton, David Robinson og þjálfurunum Jerry Sloan og Vivian Stringer. Flestir eru á því að Jordan sé besti körfuboltamaður allra tíma og einn af þeim er Charles Barkley. Körfubolti 11. september 2009 12:30
Iverson áfram í NBA-deildinni - samdi við Memphis Grizzlies Allen Iverson er loksins búinn að finna sér samning í NBA-deildinni en hann gerði í gær eins árs samning við Memphis Grizzlies en mikil óvissa hefur verið um framtíð Iverson í allt sumar. Iverson fær 3,5 milljónir dollara fyrir tímabilið en auk þess fær hann stóran bónus ef Grizzlies kemst í úrslitakeppnina í vor. Körfubolti 10. september 2009 11:30
Iverson staðfestir áhuga Grizzlies á Twitter-síðu sinni Stjörnubakvörðurinn Allen Iverson er enn ekki búinn að ná lendingu í sínum málum og alls óvíst er hvar leikmaðurinn, sem er fáanlegur á frjálsri sölu frá Detroit Pistons, muni leika á næsta keppnistímabili í NBA-deildinni. Körfubolti 27. ágúst 2009 10:30
Beasley horfinn í meðferð Michael Beasley, leikmaður Miami Heat, er farinn í meðferð í Houston en málið er allt afar undarlegt. Körfubolti 25. ágúst 2009 22:45
Donaghy aftur hent í steininn Körfuboltadómarinn Tim Donaghy á erfitt með að halda sig réttu megin við lögin því það er aftur búið að kasta honum í steininn. Körfubolti 25. ágúst 2009 16:15
Iverson vill spila aftur fyrir Brown - búinn að semja við Bobcats? Stjörnubakvörðurinn Allen Iverson er sagður nálægt því að ná lendingu í sínum málum en hann hefur verið að leita að nýju liði til þess að spila með næsta vetur í NBA-deildinni. Körfubolti 23. ágúst 2009 13:30
Iverson: Gríðarlega spenntur að heyra hvar ég enda Stjörnubakvörðurinn Allen Iverson er nú nálægt því að ná lendingu í sínum málum ef marka má Twitter-heimasíðu kappans en hann hefur verið orðaður við fjöldan allan af liðum í NBA deildinni í sumar. Körfubolti 20. ágúst 2009 14:30
Troðslukóngur handtekinn fyrir að keyra án ökuleyfis NBA-leikmaðurinn og troðslukóngurinn Nate Robinson hjá New York Knicks var handtekinn í Bronx í gær þegar uppgvötaðist að hann var að keyra án ökuréttinda þar sem ökuleyfið hans var ekki í gildi. Körfubolti 19. ágúst 2009 23:30
Shaquille O'Neal mætir Oscar de la Hoya í hringnum NBA-tröllið og skemmtikrafturinn Shaquille O'Neal hefur náð samkomulagi við fyrrum hnefaleikamanninn Oscar de la Hoya um að mæta sér í hringnum í nýjum raunveruleikaþætti ABC-sjónvarpsstöðvarinnar sem ber hetið „Shaq VS.“. Körfubolti 18. ágúst 2009 17:45
Ricky Rubio ætlar að spila áfram á Spáni - fer ekki í NBA Spænski bakvörðurinn Ricky Rubio var valinn númer fimm af Minnesota Timberwolves í nýliðavali NBA-deildarinnar í sumar en hann mun þó ekki spila með liðinu á næsta tímabili. Rubio á enn eftir tvö ár af samningi sínum við DKV Joventut og ætlar að spila áfram á Spáni næsta vetur. Körfubolti 9. ágúst 2009 10:00
Sænskur leikmaður fær samning í NBA-deildinni NBA-liðið Detroit Pistons hefur gert samning við Svíann Jonas Jerebko sem félagið valdi númer 35 í nýliðavalinu í sumar. Jerebko hefur spilað á Ítalíu undanfarin tvö tímabil og var með 9,0 stig og 5,5 fráköst í 23 leikjum með Angelico Biella á síðasta tímabili. Körfubolti 8. ágúst 2009 22:30
Rashard Lewis féll á lyfjaprófi en fær bara 10 leikja bann Rashard Lewis, stjörnuleikmaður Orlando Magic í NBA-deildinni, féll á lyfjaprófi á síðasta tímabili en of mikið af karlmannshormóninu testosterone fannst í sýni hans. Lewis fékk tíu leikja launalaust bann og mun missa af upphafi tímabilsins. Körfubolti 7. ágúst 2009 09:00
Kurt Rambis að verða þjálfari í NBA-deildinni - tekur við Minnesota Kurt Rambis, fyrrum leikmaður Los Angeles Lakers og nú síðasta aðstoðarþjálfari Phil Jackson hjá Lakers, er væntanlega að fara að taka við þjálfun Minnesota Timberwolves samkvæmt heimildum bandarískra fjölmiða. Körfubolti 6. ágúst 2009 13:30
Líklegast að Iverson spili í Evrópu í vetur Það gengur ekkert hjá Allen Iverson að finna sér nýtt lið í NBA-deildinni eftir að samningur hans rann út í sumar. Iverson gerði samninginn upprunalega við Philadelphia 76ers en honum var síðan skipt til Denver og seinna Detroit þar sem hann lék hugsanlega lokaárið sitt í NBA-deildinni í vetur. Körfubolti 5. ágúst 2009 13:00
Kobe og Shaq mætast á jóladag í fjórða sinn á fimm árum NBA-deildin í körfubolta er búin að gefa út leikjadagskránna fyrir næsta tímabil og þar varð það ljóst að Kobe Bryant og Shaquille O’Neal munu enn einu mætast á jóladag síðan að upp úr slitnaði á milli á sínum tíma. Körfubolti 5. ágúst 2009 10:00
Spurs-liðið var á taugum yfir meiðslum Tony Parker Tony Parker er þessa daganna á fullu að undirbúa sig undir Evrópukeppnina með franska landsliðinu en Frakkar taka þátt í undankeppni um síðustu sætin inn í úrslitamót EM sem fram fer í Póllandi í september. Parker varð fyrir meiðslum á ökkla og á mjöðm í æfingaleik á móti Austurríki. Körfubolti 3. ágúst 2009 15:15
Michael Jordan fær einkasýningu í Frægðarhöllinni Frægðarhöll NBA-deildarinnar í körfubolta býr sig núna undir það að taka á móti einum allra besta körfuboltamanni allra tíma - Michael Jordan. Jordan verður tekinn inn í Frægðarhöllina 11. september næstkomandi og að því tilefni fær hann sérstaka einkasýningu í höllinni þar sem finna má allskyns hluti tengdum ferli hans. Körfubolti 3. ágúst 2009 14:00
Iverson enn ekki búinn að ná lendingu í sínum málum Stjörnubakvörðurinn Allen Iverson er enn samningslaus eftir að hafa yfirgefið herbúðir Detroit Pistons í lok síðustu leiktíðar en hann hefur verið sterklega orðaður við fjölda liða í sumar. Körfubolti 1. ágúst 2009 22:15
Ben Wallace gæti verið á leiðinni aftur til Detroit NBA-liðið Detroit Pistons er enn að leita sér af stórum leikmanni til að fullkoma leikmannahóp sinn fyrir næsta tímabil og svo gæti farið að þeir til mannsins sem átti miðjuna í Detroit á árunum 2000 til 2006. Körfubolti 31. júlí 2009 21:45
Lamar Odom verður áfram hjá Lakers eftir allt saman Það leit allt út fyrir að Lamar Odom væri að yfirgefa meistaralið Los Angeles Lakers í NBA-deildinni í körfubolta en af því varð ekki því odom náði samkomulagi við Lakers um að spila áfram með liðinu. Það er talað um að hann hafi gert þriggja ára samning með möguleika á fjórða árinu. Körfubolti 31. júlí 2009 14:30
Toronto Raptors að verða Evrópumannanýlenda í NBA-deildinni NBA-liðið Toronto Raptors er búið að næla í enn einn Evrópumanninn eftir að liðið fékk bakvörðinn Marco Belinelli í skiptum frá Golden State Warriors fyrir Devean George og pening. Körfubolti 30. júlí 2009 14:00
Steve Nash: Shaq mun passa vel inn í Cleveland-liðið Steve Nash er viss um að fyrrum félagi hans hjá Phoenix Suns, Shaquille O'Neal, komi til með að standa sig vel við hliðina á LeBron James hjá Cleveland Cavaliers. Körfubolti 29. júlí 2009 23:30
Kobe Bryant vill klára ferilinn með Lakers Kobe Bryant ætlar sér að enda NBA-ferillinn þar sem hann byrjaði eða sem leikmaður Los Angeles Lakers. Kobe sem er 30 ára gamall varð NBA-miestari með liðinu í fjórða sinn í júní. Körfubolti 23. júlí 2009 13:00
Bryant bjartsýnn á að Odom semji við Lakers Kobe Bryant vonast til þess að Lamar Odom verði áfram hjá NBA-meisturum Los Angeles Lakers en samningamálin fóru upp í loft á dögunum. Odom hefur verið orðaður við Miami upp á síðkastið. Körfubolti 22. júlí 2009 15:30
Yao Ming ekkert með næsta tímabil Yao Ming, leikmaður Houston Rocket, er á leið í aðgerð vegna ristarbrotsins sem hann hlaut í rimmunni gegn Los Angeles Lakers. Meðferð sem hann hefur undirgengst í sumar hefur ekki virkað. Körfubolti 20. júlí 2009 09:01
Marquis Daniels spilar með Boston næsta vetur Marquis Daniels, fyrrum bakvörður Indiana Pacers og Dallas Mavericks, hefur náð samkomulagi við Boston Celtics um að spila með liðinu á næsta tímabili. Umboðsmaður kappans er búinn að staðfesta þetta í bandarískum fjölmiðlum. Körfubolti 19. júlí 2009 09:00