Miklar breytingar hjá San Antonio Spurs Elsta lið NBA-deildarinnar, San Antonio, Spurs lofaði stuðningsmönnum sínum því að yngja liðið upp í sumar og mæta sterkari til leiks næsta vetur. Forráðamenn liðsins hafa ekki setið auðum höndum það sem af er sumri. Körfubolti 24. júní 2009 11:45
Fjársterkir aðilar bjarga sigurhátíð Lakers Borgarstjóri Los Angeles, Antonio Villaraigosa, hefur staðfest að það verði skrúðganga í borginni þar sem borgarbúar geti hyllt nýkrýnda NBA-meistara, LA Lakers. Körfubolti 16. júní 2009 21:57
Shaq óskar Kobe til hamingju Það tók lengri tíma en margir áttu von á en Kobe Bryant hefur loksins stigið út úr hinum stóra skugga Shaquille O´Neal. Körfubolti 15. júní 2009 18:30
15. meistaratitill LA Lakers Los Angeles Lakers vann í nótt sinn 15. NBA-meistaratitil í sögu félagsins eftir sigur á Orlando Magic, 99-86, í úrslitarimmu liðanna í nótt. Þar með vann Lakers rimmuna með fjórum leikjum gegn einum. Körfubolti 15. júní 2009 08:59
Phil Jackson sektaður fyrir ummæli sín Phil Jackson þjálfari Los Angeles Lakers hefur verið sektaður um 25 þúsund dollara, rúmar þrjár milljónir króna vegna niðrandi ummæla í garð dómara í fjórða leik Lakers og Orlando í úrslitaeinvíginu um NBA titilinn í körfubolta. Körfubolti 14. júní 2009 13:15
Howard: Við förum í sjötta leikinn í Los Angeles Miðherjinn kröftugi Dwight Howard hjá Orlando Magic er ekki tilbúinn að afhenda LA Lakers fimmtánda NBA titil sinn á gullfati og hefur fulla trú á því að Magic vinni fimmta leik liðanna á heimavelli sínum í Orlando í nótt. Körfubolti 14. júní 2009 11:30
Rose: Klíkumerkið var lélegur brandari Nýliði ársins í NBA-deildinni, Derrick Rose hjá Chicago Bulls, hefur gefið frá sér yfirlýsingu vegna ljósmyndar af honum sem hefur flogið um netheima síðustu daga. Körfubolti 12. júní 2009 20:30
Pietrus sleppur með skrekkinn NBA-deildin mun ekki aðhafast frekar yfir ruddaskap Mickael Pietrus, leikmanns Orlando Magic, í garð Pau Gasol hjá Lakers í leik liðanna í nótt. Körfubolti 12. júní 2009 19:45
Ráðist á NBA-dómara í fangelsi Fyrrum NBA-dómarinn Tim Donaghy á ekki sjö dagana sæla í fangelsi í Flórída. Þar var ráðist á dómarann og honum hótað lífláti. Körfubolti 12. júní 2009 15:15
Fisher: Besta karfan mín til þessa á ferlinum Derek Fisher reyndist betri en enginn fyrir LA Lakers á ögurstundu gegn Orlando Magic í nótt og sá til þess að liðið náði að tryggja sér framlengingu þegar hann jafnaði leikinn 87-87 með þriggja stiga körfu þegar 4,6 sekúndur voru eftir í fjórða leikhluta í nótt. Körfubolti 12. júní 2009 10:00
Lakers komið í þægilega stöðu eftir sigur í framlengdum leik Fjórði leikur NBA úrslitanna fór fram síðustu nótt þar sem LA Lakers vann 99-91 sigur gegn Orlando Magic í framlengdum leik í Amway-höllinni í Orlando. Körfubolti 12. júní 2009 09:00
Mike Brown heldur áfram með Cleveland Sögusagnir um óeiningu innan herbúða NBA liðsins Cleveland Cavaliers fóru víða í dag og þar var meðal annars talað um að þjálfarinn Mike Brown myndi hætta hjá félaginu. Innanbúðarmaður hjá Cleveland hefur nú borið þessar fréttar til baka. Körfubolti 11. júní 2009 19:00
Abdul-Jabbar: Howard er dálítið fyrirsjáanlegur Körfuboltagoðsögnin Kareem Abdul-Jabbar sér ekki bjarta framtíð fyrir miðherjann Dwight Howard hjá Orlando Magic ætli hann sér bara að byggja leik sinn á tröllatroðslum og líkamlegum styrk. Körfubolti 11. júní 2009 10:45
Westphal tekur við Kings Sacramento Kings hefur ráðið reynsluboltann Paul Westphal sem næsta þjálfara liðsins. Hann er fjórði þjálfarinn hjá félaginu á fjórum árum. Körfubolti 10. júní 2009 14:45
Pau Gasol kvartar undan Dwight Howard Orlando Magic minnkaði muninn í 2-1 í úrslitaeinvígi sínu við LA Lakers í nótt með 108-104 sigri á heimavelli sínum. Hinn kröftugi Dwight Howard fór mikinn fyrir Orlando og skoraði 21 stig og tók 14 fráköst en Kobe Bryant skoraði 31 stig fyrir LA Lakers og Pau Gasol var með 23. Körfubolti 10. júní 2009 10:00
LA Lakers komið í 2-0 eftir sigur í framlengdum leik Los Angeles Lakers er komið í þægilega stöðu gegn Orlando Magic í úrslitaeinvígi liðanna í NBA deildinni eftir 101-96 sigur í framlengdum leik í Staples Center í nótt og leiðir nú 2-0. Körfubolti 8. júní 2009 09:00
Kobe er ekki að íhuga að hætta Bandarískir fjölmiðlar eru afar duglegir að fjalla um Kobe Bryant og löngun hans til þess að vinna sinn fjórða NBA-titil. Bryant er að klára sitt 13 tímabil í deildinni og er enn hungraður. Körfubolti 7. júní 2009 14:00
Orlando Magic getur ekki spilað verr Los Angeles Lakers tekur á móti Orlando Magic á miðnætti í kvöld í öðrum leik liðanna um NBA-meistaratitilinn. Lakers vann fyrsta leikinn örugglega með 100 stigum gegn 75 og vita sem er að Orlando getur vart spilað verr en í þeim leik. Körfubolti 6. júní 2009 13:45
LeBron James sektaður um þrjár milljónir Körfkuknattleikskappinn LeBron James fékk þunga sekt fyrir virðingarleysi eftir að lið hans tapaði í úrslitarimmu Austurdeildar NBA-deildarinnar fyrir Orlando Magic. Körfubolti 5. júní 2009 19:00
Kobe Bryant hefur aldrei liðið betur Kobe Bryant var yfirburðarmaður á vellinum þegar Los Angeles Lakers saltaði Orlando Magic í fyrsta leik liðanna um NBA-meistaratitilinn í nótt. Hann skoraði 40 stig, tók átta fráköst, sendi átta stoðsendingar, varði tvo skot og stal tveimur boltum. Körfubolti 5. júní 2009 15:00
Lakers fór létt með Orlando LA Lakers átti ekki í miklum vandræðum með Orlando Magic í fyrsta leik liðanna í lokaúrslitum NBA-deildarinnar í nótt. Lakers vann, 100-75. Körfubolti 5. júní 2009 08:58
Shaq heldur með Kobe Samband þeirra Shaquille O´Neal og Kobe Bryant hefur löngum verið stormasamt þó svo samvinna þeirra á vellinum hafi fært Lakers titla á sínum tíma. Körfubolti 4. júní 2009 10:45
Pietrus ætlar ekki að spila í Kobe-skónum Orlando-maðurinn Mickael Pietrus mun skipta um skó fyrir leikina gegn LA Lakers í úrslitum NBA-deildarinnar enda hefur hann verið að leika í Kobe Bryant-skóm hingað til. Körfubolti 3. júní 2009 20:15
Obama spáir Lakers titlinum Barack Obama Bandaríkjaforseti er mikill áhugamaður um körfubolta og þykir liðtækur spilari sjálfur. Blaðamenn ytra eru þess utan duglegir að spyrja hann spurninga um íþróttalífið í landinu og að sjálfsögðu er búið að spyrja hann að því hverju hann spái í úrslitarimmu Lakers og Magic. Körfubolti 3. júní 2009 18:15
Nelson mun spila gegn Lakers Leikmenn Orlando Magic hafa tjáð fjölmiðlamönnum að Jameer Nelson muni spila með Magic gegn LA Lakers í úrslitum NBA-deildarinnar. Körfubolti 3. júní 2009 15:00
LeBron tjáir sig loksins LeBron James er loksins búinn að opna sig eftir að lið hans, Cleveland Cavaliers, féll úr leik gegn Orlando í úrslitum Austurdeildar í NBA-körfuboltanum. Körfubolti 1. júní 2009 17:15
Kemur Jameer Nelson inn í Orlando-liðið fyrir lokaúrslitin? Orlando Magic er komið í lokaúrslit NBA-deildarinnar í fyrsta sinn í 14 ár og mætir þar liði Los Angeles Lakers. Fyrsti leikurinn er á fimmtudaginn og svo gæti farið að Orlando Magic væri búið að fá góðan liðstyrk fyrir þann leik. Körfubolti 1. júní 2009 08:45
LeBron talaði ekki við neinn eftir tapið í nótt LeBron James hjá Cleveland Cavaliers var allt annað en sáttur eftir að lið hans féll úr leik í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í nótt. Orlando Magic fór illa með James og félaga sem allir bjuggust við að færu alla leið í lokaúrslitin. Þar mætast hinsvegar Orlando og Los Angeles. Körfubolti 31. maí 2009 15:15
Orlando í lokaúrslitin - sló Cleveland út með stæl Orlando Magic tryggði sér sæti í lokaúrslitum NBA-deildarinnar á móti Los Angeles Lakers með auðveldum þrettán stiga sigri á Cleveland, 103-90, í úrslitum Austurdeildarinnar í nótt. Orlando vann einvígið 4-2. Dwight Howard átti frábæran leik og var gjörsamlega óstöðvandi inn í teig. Körfubolti 31. maí 2009 09:00
Los Angeles Lakers komst í NBA-úrslitin í nótt Los Angeles Lakers vann sannfærandi og auðveldan 119-92 sigur á Denver Nuggets í sjötta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildar NBA-deildarinnar. Lakers vann því einvígið 4-2 og er komið í lokaúrslitin annað árið í röð. Körfubolti 30. maí 2009 09:00