San Antonio lagði Dallas Tveir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. San Antonio Spurs lagði Dallas Mavericks á útivelli 92-90. Tony Parker skoraði 30 stig fyrir Spurs, en Marquis Daniels skoraði 24 stig fyrir Dallas. Þá vann LA Lakers góðan sigur á Utah Jazz í framlengingu 105-101 í Utah. Kobe Bryant skoraði 30 stig fyrir Lakers, en Deron Williams skoraði 20 fyrir Jazz. Sport 2. desember 2005 13:15
Fær tveggja leikja bann fyrir kjaftbrúk George Karl, þjálfari Denver Nuggets í NBA deildinni, hefur verið dæmdur í tveggja leikja bann fyrir að lesa dómurum pistilinn eftir að lið hans tapaði á heimavelli fyrir New Orleansí fyrrakvöld. Denver ætlar ekki að áfrýja dómnum. Sport 1. desember 2005 18:15
Nash heitur í sigri Phoenix á Indiana Verðmætasti leikmaður NBA deildarinnar í fyrra, Steve Nash hjá Phoenix Suns, skoraði sjö þriggja stiga körfur þegar lið hans lagði Indiana Pacers í nótt og vann fjórða leik sinn í röð. Allen Iverson hélt uppteknum hætti og skoraði 40 stig gegn Boston, en það nægði ekki til sigurs. Sport 1. desember 2005 08:30
Vill spila meira eða ekki neitt Vandræðagemlingurinn Ruben Patterson hjá Portland Trailblazers á í harðvítugum deilum við þjálfara sinn og forráðamenn félagsins þessa dagana. Nate McMillan, þjálfari liðsins, gróf Patterson á varamannabekk liðsins í byrjun tímabils, sem varð til þess að leikmaðurinn bölvaði honum í sand og ösku og var settur í bann í kjölfarið. Sport 30. nóvember 2005 17:45
McGrady sneri aftur og færði Houston sigur Átta leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Tracy McGrady sneri aftur með liði Houston Rockets, sem hafði tapað sjö leikjum í röð og það var ekki að sökum að spyrja, liðið vann stórsigur á Atlanta Hawks. Sport 30. nóvember 2005 14:00
Orlando vann fjórða leikinn í röð Fimm leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Orlando Magic vann fjórða leik sinn í röð þegar liðið skellti Boston á útivelli, en Dallas Maverics vann mjög nauman sigur á botnliði Toronto Raptors og þurfti flautukörfu í lokin til að tryggja sigurinn. Sport 29. nóvember 2005 15:00
Stórleikur Kobe Bryant dugði skammt Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt sem leið og þar bar hæst einvígi Los Angeles Lakers og New Jersey Nets, þar sem Kobe Bryant skoraði 38 stig í síðari hálfleik fyri Lakers og 46 stig alls, en það dugði ekki til sigurs eins og oft áður í vetur. Sport 28. nóvember 2005 17:15
Íhugar að leggja skóna á hilluna Doug Christie er nú í viðræðum við Dallas Mavericks um að ganga frá samningi hans við félagið, þar sem hann er að íhuga að leggja skóna á hilluna vegna þrálátra ökklameiðsla. Christie hefur spilað bæði sem framherji og bakvörður og er á sínu fjórtánda tímabili í deildinni. Hann er 35 ára gamall og hefur meðal annars spilað með New York, LA Lakers og Sacramento áður en hann gekk í raðir Dallas. Sport 25. nóvember 2005 17:00
Indiana stöðvaði sigurgöngu Cleveland Tveir leikir voru á dagskrá að kvöldi þakkargjörðardagsins í NBA deildinni í körfubolta í gær. Indiana stöðvaði átta leikja sigurhrinu Cleveland og Los Angeles Lakers unnu góðan sigur á Seattle á heimavelli sínum. Sport 25. nóvember 2005 14:30
Indiana - Cleveland í beinni Það verður sannkallaður Austurdeildarslagur á dagskrá í NBA deildinni í nótt, en það er viðureign Indiana Pacers og Cleveland Cavaliers. Leikurinn verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV klukkan eitt eftir miðnætti, en þar má gera ráð fyrir hörkurimmu. Sport 24. nóvember 2005 22:30
Fyrsti sigur Atlanta Hawks Ellefu leikir voru á dagskrá í NBA í nótt sem leið og þar bar hæst að Atlanta Hawks vann fyrsta sigur sinn á tímabilinu þegar það skellti Boston. Detroit og San Antonio héldu sínu striki og burstuðu andstæðinga sína. Sport 24. nóvember 2005 13:45
Houston - Phoenix í beinni Leikur Houston Rockets og Phoenix Suns verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV klukkan hálf eitt í nótt. Bæði þessi lið hafa átt nokkuð erfitt uppdráttar vegna meiðsla lykilmanna, en Houston mun í nótt reyna að afstýra fimmta tapi sínu í röð. Sport 23. nóvember 2005 22:15
Áttundi sigur Cleveland í röð Cleveland Cavaliers vann nokkuð átakalítinn sigur á Boston Celtics í NBA deildinni í nótt, þar sem LeBron James fór á kostum og Dallas Mavericks er einnig á sigurbraut og vann sjötta leikinn í röð. Sport 23. nóvember 2005 15:00
LeBron James sýnir listir sínar Leikur Cleveland Cavaliers og Boston Celtics verður sýndur beint á NBA TV á miðnætti í kvöld. Cleveland er heitasta liðið í NBA í dag og hefur unnið sjö leiki í röð og hefur enn ekki tapað á heimavelli sínum. Þarna gefst körfuboltaunnendum gott tækifæri á að sjá sjálfan LeBron James hjá Cleveland sýna listir sínar, en hann hefur verið sjóðandi heitur undanfarið. Sport 22. nóvember 2005 22:30
San Antonio lagði Sacramento Fjórir leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. San Antonio lagði Sacramento á útivelli, Philadelphia lagði New Orleans, Utah sigraði Milwaukee og Golden State vann New Jersey, þar sem Vince Carter meiddist í baki og gat aðeins spilað hálfan leikinn. Sport 22. nóvember 2005 13:30
Besta byrjun Clippers í sögunni Sjö leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt og þar bar hæst að Los Angeles Clippers lagði Golden State og hefur því unnið átta af fyrstu tíu fyrstu leikjum sínum, sem er besta byrjun í sögu félagsins. Sport 21. nóvember 2005 14:45
Cleveland vann sjöunda leik sinn í röð Cleveland Cavaliers vann sigur á Philadelphia 76ers í NBA í nótt í æsilegum leik sem endaði 123-120 fyrir Cleveland. Larry Hughes hjá Cleveland og Allen Iverson hjá Philadelphia skoruðu báðir 37 stig í leiknum, en LeBron James náði þrennu með 36 stigum, 11 fráköstum og 10 stoðsendingum. Sport 20. nóvember 2005 17:45
Detroit hélt sigurgöngunni áfram í Texas Tólf leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Heitasta lið deildarinnar, Detroit Pistons, vann áttunda leik sinn í röð þegar liðið skellt Houston Rockets á útivelli og Dwayne Wade hélt troðsýningu fyrir áskrifendur NBA TV, þegar henn leiddi lið sitt Miami til sigurs gegn Philadelphia í skemmtilegum leik sem sýndur var beint á stöðinni. Sport 19. nóvember 2005 14:00
Miami - Philadelphia í beinni útsendingu Viðureign Miami Heat og Philadelphia 76ers verður sýnd beint á NBA TV klukkan hálf eitt í nótt og þar gefst tækifæri til að sjá tvo af betri skotbakvörðum NBA deildarinnar í essinu sínu, þá Dwayne Wade og Allen Iverson. Sport 18. nóvember 2005 23:00
Enn tapar Atlanta Þrír leikir voru á dagská í NBA deildinni í nótt. Atlanta Hawks tapaði áttunda leiknum í röð þegar liðið lá fyrir Dallas á útivelli 87-78, Minnesota lagði Washington 109-98 og San Antonio lagði granna sína í Houston 86-80. Sport 18. nóvember 2005 14:30
Skrópaði í herþjónustu Þær fregnir hafa borist frá Bandaríkjunum að körfuboltamaðurinn Vlade Divac, sem nýlega lagði skóna á hilluna og er farinn að starfa sem útsendari fyrir LA Lakers í Evrópu, hafi skrópað í herþjónustu í heimalandi sínu Serbíu og Svartfjallalandi og hefur herinn nú lagt fram kæru á hendur honum. Sport 17. nóvember 2005 06:56
Bryant og Iverson skoruðu 42 stig Átta leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Kobe Bryant hjá LA Lakers og Allen Iverson hjá Philadelphia voru í miklu stuði og leiddu lið sín til sigurs með því að skora 42 stig. Sport 17. nóvember 2005 06:45
Boston - Seattle í beinni Leikur Boston Celtics og Seattle Supersonics verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV í nótt klukkan hálf eitt. Viðureign þessara liða verður athyglisverð í ljósi þess að bæði lið hafa átt erfitt uppdráttar það sem af er og vilja eflaust hrista af sér slenið og sigra í kvöld. Sport 16. nóvember 2005 22:56
Pistons með áttunda sigurinn í röð Ellefu leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Detroit Pistons unnu áttunda leik sinn í röð í upphafi leiktíðar þegar liðið tók á móti Boston Celtics. Sport 16. nóvember 2005 16:30
Dallas - Denver í beinni Leikur Dallas Mavericks og Denver Nuggets verður sýndur í beinni útsendingu klukkan 01:30 í nótt á NBA TV. Þar verður athyglisvert að fylgjast með einvígi þeirra Dirk Nowitzki hjá Dallas og Carmelo Anthony hjá Denver. Sport 15. nóvember 2005 20:00
Utah setti vafasamt félagsmet Þrír leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Memphis vann auðveldan sigur á Los Angeles Lakers, Utah tapaði heima fyrir New York Knicks og Golden State vann auðveldan sigur á Chicago Bulls. Sport 15. nóvember 2005 13:00
Memphis - LA Lakers í beinni Leikur Memphis Grizzlies og Los Angeles Lakers verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV í nótt og hefst hann um klukkan eitt eftir miðnætti. Í gær var sýndur leikur Sacramento og New York, þar sem Larry Brown og félagar unnu sinn fyrsta sigur í deildinni í vetur. Sport 14. nóvember 2005 19:30
Borðaði Snickers í morgunmat og hneig niður í lyftu Mikil skelfing greip um sig í herbúðum Los Angeles Lakers á sunnudagsmorguninn þegar úkraínski miðherjinn Slava Medvedenko féll í yfirlið í lyftu þegar liðið var að yfirgefa hótel og var fluttur á spítala í skyndi. Sport 14. nóvember 2005 18:00
Gaf 1,2 milljónir dollara í Katrínarsjóðinn Framherjinn Kevin Garnett hjá Minnesota Timberwolves var heldur betur rausnarlegur fyrir helgina, þegar hann gaf sérstökum styrktarsjóði fórnarlamba fellibylsins Katrínar 1,2 milljónir dollara úr eigin vasa, eða um 70 milljónir íslenskra króna. Sport 14. nóvember 2005 14:27
Loksins sigur hjá New York Sex leikir voru á dagskrá í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Lærisveinar Larry Brown í New York unnu sinn fyrsta leik í deildarkeppninni þegar þeir skelltu Sacramento Kings á útivelli, en Toronto Raptors er enn án sigurs. Sport 14. nóvember 2005 12:00