Dönsk stjórnvöld völdu að efla þingið á tímum heimsfaraldurs Á upphafsstigum heimsfaraldurs vantaði mikið upp á að Alþingi færi fram umræða um stöðuna og þær sóttvarnaaðgerðir sem gripið var til. Staðan þá var mun viðkvæmari, enda var bólusetning ekki hafin og bóluefni ekki tryggð. Strax um haustið 2020 lagði Viðreisn þess vegna fram ósk um að heilbrigðisráðherra gæfi Alþingi skýrslu hálfs mánaðarlega um markmið, forsendur og sviðsmyndir sem unnið væri efti Skoðun 23. janúar 2022 14:00
Nældi sér í Covid-19 á EM Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, fylgdi í fótspor fjölmargra landsliðsmanna í handbolta og nældi sér í Covid-19 er hann skellti sér á EM í handbolta í Ungverjalandi. Innlent 23. janúar 2022 13:41
Dóra Björt gefur kost á sér áfram Dóra Björt Guðjónsdóttir, oddviti Pírata í Reykjavík, ætlar að gefa kost á sér áfram í oddvitasæti flokksins í borgarstjórnarkosningunum í vor. Innlent 23. janúar 2022 10:58
Ekki mættur í ráðuneytið til að sækja kaffi fyrir Guðlaug Þór Steinar Ingi Kolbeins er nýr aðstoðarmaður Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra. Steinar Ingi er 24 ára gamall Reykvíkingur, bráðungur að árum en hann bendir á að í ráðuneytinu sé einmitt málaflokkur unga fólksins og framtíðarinnar. Innlent 23. janúar 2022 08:02
Skoða nú allar mögulegar afléttingar Heilbrigðisyfirvöld skoða nú, í samráði við sóttvarnalækni, allar mögulegar afléttingar með hliðsjón af skynsemi og öryggi. Innlent 23. janúar 2022 07:00
Hvert er verkefnið – leiðin út Heilbrigðiskerfið okkar stendur nú í ströngu við að takast á við enn eitt afbrigði Covid-19 veirunnar – ómikron. Covid-19 innlagnir og eftirköst veikinda kalla á tvöfalda umönnun auk þess sem heilbrigðisstofnanir verða að vera í stakk búnar til að sinna bráðum veikindum og slysum sem eru ótengd Covid-19. Skoðun 23. janúar 2022 07:00
Öll rök og tölfræði segi okkur að aflétta takmörkunum „Ég er þeirrar skoðunar að við ættum að fara að huga að því að létta af þessum takmörkunum með einhverjum hætti,“ segir þingmaður Viðreisnar og bendir á að sérfræðingar innan Landspítala séu á sama máli. Innlent 22. janúar 2022 23:46
Sextán vilja í framboð fyrir Samfylkinguna Sextán manns buðu sig fram til forvals Samfylkingarinnar í Reykjavík. Öll framboðin voru metin gild fyrir forvalið sem fer fram helgina 12. til 13. febrúar. Innlent 22. janúar 2022 16:33
Halldór Benjamín ætlar sér ekki í borgarmálin Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, hefur undanfarin misseri verið orðaður við framboð í oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins og meðal annars verið skrifaðar fréttir þess efnis. Klinkið 22. janúar 2022 13:01
„Augljóslega er þetta ekki gott“ Forsætisráðherra segir stefnt að því að stækka ákveðnar virkjanir sem þegar eru starfandi á Íslandi. Innviðaráðherra segir svíða að orkubú Vestfjarða sé að kaupa olíu til kyndingar fyrir fleiri hundruð milljónir þar sem endurnýjanleg orka hefur verið skert. Innlent 22. janúar 2022 12:19
Núna eða aldrei? Sveitarstjórnarkosningar eru fram undan og ekki hægt að hlífa fólki við vangaveltum af þessu tagi. Erum við á réttri braut í borginni, þarf að gefa í eða snúa við? Skoðun 22. janúar 2022 09:00
Heggur sá er hlífa skyldi Sæl Inga. Ég er ungur hrossabóndi, hef ekki verið talinn til efnamanna og verð það trúlega aldrei. Síðastliðin ár hafa ekki verið landbúnaðinum hagfelld, afurðaverð lágt og hefur engan veginn haldið í við verðlagsþróun. Ég keyri ekki um á nýjum Land cruiser heldur klæðist ég gömlum stígvélum og rifinni úlpu við mitt brauðstrit, hef ekki ráð á öðru. Skoðun 22. janúar 2022 08:00
Getum við dreift störfum um landið eins og saltkornum úr bauk? Stutta svarið við þessari spurningu er já og þangað stefnum við ótrauð. Skoðun 22. janúar 2022 08:00
Við eigum erindi í Garðabæ Garðabær er nú í hröðum vexti þar sem áherslan er á græn og mannvænleg hverfi. Nærþjónustan verður sífellt meira spennandi og margt til staðar nú sem ekki var fyrir fáeinum árum. Skoðun 21. janúar 2022 20:01
Gæti farið fram á sanngirnisbætur Nefnd um eftirlit með lögreglu segir ekki sitt verksvið að endurskoða rannsóknir sakamála. Nefndin hafi því aðeins úrskurðað að meint brot lögreglu í rannsókn á tveimur bændum sem kærðir voru fyrir nauðgun 1987, væru fyrnd. Lögmaður bendir á að stjórnvöld geti ákveðið sanngirnisbætur þegar allt annað þrýtur. Innlent 21. janúar 2022 18:45
Bjarni Ben kominn heim og skýtur á Samfylkinguna Bjarni Benediktsson fjármála- og efnahagsráðherra er kominn til landsins eftir frí erlendis þar sem ráðherrann skellti sér meðal annars á skíði. Innlent 21. janúar 2022 16:36
Ætlar sér fyrsta sætið hjá Sjálfstæðisflokknum í Fjarðabyggð Ragnar Sigurðsson, varaþingmaður og bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð, gefur kost á sér í 1.sætið á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Fjarðabyggð í prófkjöri flokksins þann 26. febrúar næstkomandi. Innlent 21. janúar 2022 15:25
Birta og Kári ætla sér stóra hluti hjá Heimdalli Birta Karen Tryggvadóttir gefur kost á sér til formennsku í Heimdalli, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, á aðalfundi félagsins sem haldinn verður þann 27. janúar næstkomandi. Kári Freyr Kristinsson gefur kost á sér í embætti varaformanns. Innlent 21. janúar 2022 14:37
Orri vill leiða lista Framsóknar í Kópavogi Orri Vignir Hlöðversson, forstjóri Frumherja, gefur kost á sér til að leiða lista Framsóknarflokksins í Kópavogi í sveitarstjórnarkosningunum næsta vor. Innlent 21. janúar 2022 14:36
Fjarðabyggð góður fjárfestingarkostur Áform um Grænan Orkugarð í Reyðarfirði hafa verið á dagskrá undanfarið með það fyrir augum að framleiða rafeldsneyti til orkuskipta í fraktflutningum en þar á hröð þróun sér stað í. Skoðun 21. janúar 2022 14:30
Sveitarfélögin og íbúalýðræði Virkt íbúalýðræði á að vera ein af grunnstoðum í starfsemi hvers sveitarfélags. Stjórnsýsla sveitarfélaga og ákvarðanir bæjarstjórna eiga að byggja á því. Bæjarstjórn ber því að tryggja lýðræðislega aðkomu íbúa að allri stefnumótun og ákvarðanatöku og á ávallt að vera vakandi fyrir nýjum leiðum til íbúasamráðs og þátttöku íbúa. Skoðun 21. janúar 2022 14:01
Opið bréf til Ingu Sæland Sæl frú Inga Sæland. Er í alvörunni ekki gerð nein krafa um að það, sem þið á Alþingi látið út úr ykkur í pontu, sé satt og rétt? Þegar þú lætur frá þér frumvarp, sem hefur áhrif á þó nokkuð marga, er þá ekki lágmarkskrafa að þið hafið kannað allar hliðar og hafið réttar upplýsingar? Ekki afbakaðar og tilhæfulausar lygar. Skoðun 21. janúar 2022 13:47
Spyr sóttvarnalækni daglega hvort hægt sé að aflétta Heilbrigðisráðherra segist spyrja sóttvarnalækni daglega hvort hægt sé að fara létta á takmörkunum og telur jákvæð teikn á lofti í faraldrinum. Tæplega 1.500 greindust með veiruna í gær Innlent 21. janúar 2022 13:01
Okrað á almenningi: Spurningarnar sem ráðherra verður að svara Í gærkvöldi birtist tilkynning frá fyrirtækinu N1 Rafmagn (sem áður hét Íslensk orkumiðlun) þar sem neytendur eru beðnir afsökunar á rafmagnsokrinu sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum undanfarna daga. Skoðun 21. janúar 2022 12:00
Sóttvarnarhræsni á Twitter Umræðan endalausa um hvar mörkin á milli sóttvarna og frelsis liggja í heimsfaraldrinum tekur stundum á sig furðulega mynd. Ekki síst þegar þeir sem taka ákvarðanir um skerðingu mannréttinda, eða eru í raunverulegri stöðu til að hafa áhrif á þær ákvarðanir, kannast ekkert við hlutverk sitt og svamla um í lýðskrumspollinum. Skoðun 21. janúar 2022 11:00
Slökkvistarf í borginni Reglulega berast fregnir af húsnæðisskorti á höfuðborgarsvæðinu. Fyrstu vikuna í janúar voru á söluskrá 487 íbúðir, en það eru 20 prósent færri eignir en mánuði fyrr. Umræðan 21. janúar 2022 10:54
Um frelsi og samstöðu Heilbrigðisráðherra labbar í áttina að bílnum sínum að loknum ríkisstjórnarfundi. Fjölmiðlar bíða fyrir utan eftir því að tilkynnt verði hvað sóttvarnalæknir hefur ákveðið að fólk má og má ekki gera næstu tvær til þrjár vikurnar. Skoðun 21. janúar 2022 10:30
Berglind aðstoðar Svandísi í fjarveru Iðunnar Berglind Häsler, samskipta- og viðburðastjóri Vinstri grænna, mun leysa Iðunni Garðarsdóttur af sem aðstoðarmaður Svandísar Svavarsdóttur, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Iðunn fer nú í árs barneignarleyfi og hefur Berglind störf 14. febrúar næstkomandi. Kári Gautason er hinn aðstoðarmaður Svandísar. Innlent 21. janúar 2022 09:20
Bankasýslan óskar eftir heimild til að selja restina af Íslandsbanka Bankasýsla ríkisins lagði í gær fram tillögu til fjármála- og efnahagsráðherra um að stofnunin fái heimild til ársloka 2023 til að selja alla eignarhluti ríkisins í Íslandsbanka í nokkrum áföngum og að höfðu samráði við ráðherra. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef stofnunarinnar. Innherji 21. janúar 2022 08:50
Biðja um heimild til að selja alla hluti ríkisins í Íslandsbanka Bankasýsla ríkisins lagði í gær fram tillögu til Bjarna Benediktssonar fjármála- og efnahagsráðherra þess efnis að stofnunin fái heimild til að selja alla eignarhluti ríkisins í Íslandsbanka. Viðskipti innlent 21. janúar 2022 07:54