Watson fór hamförum í stórsigri Keflavíkur Kesha Watson átti ótrúlegan leik í kvöld þegar lið Keflavíkur valtaði yfir Grindavík í uppgjöri suðurnesjaliðanna í Iceland Express deild kvenna. Körfubolti 31. október 2007 22:35
Haukar og Grindavík með fullt hús Þrír leikir fóru fram í Iceland Express-deild kvenna í kvöld. Haukar, Grindavík og KR unnu sína leiki en Haukar og Grindavík eru á toppnum með fullt hús stiga eftir þrjá leiki. Körfubolti 24. október 2007 22:41
Þrír leikir í kvennakörfunni í kvöld Í kvöld fara fram þrír leikir í Iceland Express deild kvenna í körfubolta. Grindavík tekur á móti Val í Grindavík klukkan 19:15 og á sama tíma mæta Haukar Fjölni á Ásvöllum. Klukkan 20 taka svo KR-ingar á móti Hamri í DHL-höllinni. Körfubolti 24. október 2007 14:21
Grindavík vann Fjölni Grindavík vann í dag góðan sigur á Fjölni í Iceland Express deild kvenna, 76-62 á útivelli. Körfubolti 20. október 2007 19:01
Haukar lögðu Hamar Einn leikur fór fram í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld. Íslandsmeistarar Hauka gerðu góða fer í Hveragerði og lögðu Hamar 85-76 eftir að hafa verið einu stigi undir í hálfleik 42-41. Haukar hafa unnið báða leiki sína í deildinni til þessa en Hamarsstúlkur eru án sigurs. Körfubolti 17. október 2007 22:14
Naumur sigur hjá meisturunum Íslandsmeistarar Hauka unnu nauman sigur á nýliðum KR 74-71 í kvöld þegar þrír leikir fóru fram í Iceland Express deild kvenna í körfubolta. Keflvíkingar burstuðu Fjölni 88-51 og Grindavík vann auðveldan sigur á Hamri 94-65. Körfubolti 13. október 2007 19:18
Handalögmál á verðlaunaafhendingu Til handalögmála kom milli tveggja landsliðskvenna í körfubolta eftir úrslitaleik Keflavíkur og Hauka í Meistarakeppninni í gær. Keflavík vann öruggan sigur í leiknum en nokkur hiti var í leikmönnum eftir að flautað var. Körfubolti 8. október 2007 12:40
Keflavíkurstúlkur deildarbikarmeistarar Keflavíkurstúlkur tryggðu sér sigur í Powerade bikarnum í körfubolta í dag þegar þær lögðu lið Hauka í úrslitaleik 95-80. Haukaliðið vann alla titla sem í boði voru á síðustu leiktíð, en Keflvíkingar sáu til þess að þær endurtaka það ekki í ár. Körfubolti 30. september 2007 17:35
Undanúrslitin í kvennaflokki í kvöld Í kvöld fara fram undanúrslitaleikirnir í Powerade bikarkeppni kvenna í körfubolta og fara báðir leikirnir fram í Laugardalshöllinni líkt og karlaleikirnir í gær. Haukar og Valur eigast við klukkan 19 og Keflavík og Grindavík klukkan 21. Úrslitaleikurinn er svo á laugardaginn klukkan 14. Körfubolti 28. september 2007 15:03
Sjö lið í IE-deild kvenna Nú er ljóst að aðens sjö lið munu leika í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í vetur, en keppni þar hefst þann 13. október næstkomandi. Leikin verður fjórföld umferð eða 24 leikir á lið. Körfubolti 21. september 2007 21:47
A-deildin úr sögunni hjá stelpunum Íslenska kvennalandsliðið á ekki lengur möguleika á að vinna riðilinn sinn í B-deild Evrópukeppninnar eftir 52-73 tap á móti Hollandi á Ásvöllum í gær en sigurvegarinn í riðlinum fer í umspil um sæti meðal A-þjóða. Íslenska liðið byrjaði leikinn illa og lenti strax 4-18 undir og eftir það var á brattann að sækja. Holland var 16 stigum yfir í hálfleik, 20-36, en munurinn var kominn niður í 13 stig, 36-49, fyrir lokaleikhlutann. Körfubolti 2. september 2007 09:30
Joanna Skiba til Grindavíkur Körfubolti Kvennalið Grindavíkur hefur samið við Joanna Skiba, bandarískan bakvörð af pólskum ættum sem hefur evrópskt vegabréf. Körfubolti 18. ágúst 2007 06:15
Komin aftur í KR Landsliðskonan Hildur Sigurðardóttir hefur ákveðið að spila með nýliðum KR í Iceland Express-deild kvenna næsta vetur en hún hefur spilað með Grindavík undanfarin tvö tímabil. Körfubolti 11. júlí 2007 09:30
Yngvi tekur við Haukastúlkum Yngvi Gunnlaugsson mun í kvöld skrifa undir samning við körfuknattleiksdeild Hauka og gerast þjálfari meistaraflokks kvenna hjá félaginu. Yngvi er öllum hnútum kunnugur hjá Haukaliðinu eftir sex ára starf með kvennaliðinu, en hann stýrði kvennaliði Breiðabliks í Iceland Express deildinni síðasta vetur. Yngvi tekur við af Ágústi Björgvinssyni. Sport 30. maí 2007 16:51
Pálína farin í Keflavík Besti varnarmaður Iceland Express deildar kvenna síðustu þrjú ár er farin frá Haukum og hefur því meistaraliðið misst báða fyrirliða sína fyrir næsta vetur. Körfubolti 26. maí 2007 11:00
Ágúst að hætta með Hauka? Enn er óvíst hvort Ágúst Björgvinsson þjálfari Íslandsmeistara Hauka í Iceland Exress deild kvenna í körfubolta verði áfram við stjórnvölinn hjá Hafnarfjarðarliðinu. Haukar urðu í gær Íslandsmeistarar annað árið í röð þegar liðið vann seiglusigur á Keflavík en Haukastúlkur unnu einvígið 3-1. Haukar hirtu þrjá stærstu titlana, Íslandsmeistaratitilinn, deildarmeistaratitilinn og bikarmeistaratitilinn. Körfubolti 15. apríl 2007 15:18
Haukastúlkur Íslandsmeistarar Haukastúlkur tryggðu sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta annað árið í röð eftir 88-77 sigur á Keflavík í fjórða leik liðanna í Keflavík. Haukar unnu einvígið því 3-1. Leikurinn í dag var sveiflukenndur en Haukaliðið tryggði sér sigurinn í lokin með því að hirða hvert sóknarfrákastið á fætur öðru á mikilvægum augnablikum. Helena Sverrisdóttir hjá Haukum var kjörin besti leikmaður einvígisins og kemur það engum á óvart. Körfubolti 14. apríl 2007 17:45
Haukar yfir eftir þrjá leikhluta Haukastúlkur hafa yfir 63-60 gegn Keflavík þegar leiknir hafa verið þrír leikhlutar í fjórða leik liðanna í Keflavík í úrlistaeinvíginu í Iceland Express deildinni. Leikurinn hefur verið sveiflukenndur og bæði lið hafa náð 10 stiga forystu á köflum. Leikurinn fer fram í Keflavík, þar sem heimamenn geta knúið oddaleik í einvíginu með sigri. Körfubolti 14. apríl 2007 17:25
Nær Keflavík að jafna metin? Körfubolti Lokaúrslitaeinvígi Iceland Express-deildar kvenna heldur áfram í Keflavík klukkan 16.15 í dag þegar Haukastúlkur fá aðra tilraun til þess að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn. Körfubolti 14. apríl 2007 10:15
Aðstoðarþjálfari Keflavíkur í þriggja leikja bann Aganefnd KKÍ dæmdi í dag Agnar Gunnarsson, aðstoðarþjálfara Keflavíkur, í þriggja leikja bann fyrir að gefa Helenu Sverrisóttur hjá Haukum olnbogaskot undir lok þriðja leiks Keflavíkur og Hauka í úrslitum Iceland Express deildarinnar. Körfubolti 12. apríl 2007 19:37
Aðstoðarþjáfari Keflavíkur kærður fyrir olnbogaskot Dómararanir í kvennaleik Hauka og Keflavíkur í körfuboltanum í gærkvöldi hafa kært aðstoðarþjálfara Keflavíkur til aganefndar KKÍ fyrir að gefa Helenu Sverrisdóttur leikmanni Hauka olnbogaskot í bringuna skömmu eftir að leikurinn var flautaður af. Körfubolti 11. apríl 2007 18:15
Keflavíkurstúlkur hafa ekki sagt sitt síðasta Keflavíkurstúlkur gerðu sér lítið fyrir og lögðu Íslandsmeistara Hauka í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvíginu í Iceland Express deild kvenna í kvöld. Haukar höfðu unnið 27 leiki í röð á heimavelli en nú er ljóst að liðið þarf að fara aftur til Keflavíkur í stöðunni 2-1. Körfubolti 10. apríl 2007 21:02
Haukastúlkur komnar í góða stöðu gegn Keflavík Haukastúlkur komust í dag í 2-0 í einvíginu við Keflavík um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta en þá unnu þær sannfærandi sigur á útivelli, 115-101. Haukastúlkur eru því komnar með afar vænlega stöðu í rimmunni og geta tryggt sér titilinn með sigri í leik liðanna í Hafnarfirði á þriðjudag. Körfubolti 7. apríl 2007 18:17
Haukastúlkur unnu fyrsta leikinn Haukar höfðu sigur á Keflavík í fyrsta leik liðanna í úrslitum Iceland Express deildar kvenna á Ásvöllum í kvöld 87-78. Heimamenn höfðu yfir allan leikinn og unnu verðskuldaðan sigur. Haukar leiða því 1-0 í einvíginu og næsti leikur er í Keflavík á laugardaginn klukkan 16:00. Körfubolti 4. apríl 2007 21:54
Haukar í úrslit Haukastúlkur tryggðu sér í dag sæti í úrslitum Iceland Express deildar kvenna með öruggum sigri á Stúdínum í oddaleik 81-59. Haukar unnu því einvígið 3-2 og mæta Keflavík í úrslitum mótsins. Körfubolti 31. mars 2007 17:58
Pottþétt við mætum ÍS körfubolti Keflavík er komið í lokaúrslit Iceland Express deild kvenna eftir 91-76 sigur á Grindavík í fjórða leik liðanna og þar með 3-1 sigur í einvíginu. Þetta er fimmta árið í röð og níunda skiptið á 11 árum sem Keflavík spilar til úrslita. Keflavík mætir annaðhvort Haukum eða ÍS í úrslitunum en það ræðst í oddaleik í Hafnarfirði í dag hvort liðið það verður. Körfubolti 31. mars 2007 10:30
ÍS knúði fram oddaleik Stúdínur hafa ekki sagt sitt síðasta í úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna. Í kvöld lagði liðið Íslandsmeistara Hauka í fjórða leik liðanna 87-77. Staðan í einvíginu er orðin jöfn 2-2 og þau verða því að mætast í oddaleik á Ásvöllum. Körfubolti 29. mars 2007 21:01
Bowie spilar ekki meira með Grindavík Sterkasti leikmaður kvennaliðs Grindavíkur í Iceland Express deild kvenna í körfubolta, Tamara Bowie, hefur leikið sinn síðasta leik með liðinu á leiktíðinni. Tímasetningin þykir í meira lagi undarleg, eða í miðri úrslitakeppni. Körfubolti 28. mars 2007 17:30
Haukar og Keflavík í lykilstöðu Haukar og Keflavík skelltu sér í bílstjórasætið á ný í rimmum sínum í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna í körfubolta í kvöld. Haukar lögðu ÍS 78-61 á Ásvöllum og Keflavíkurstúlkur lögðu granna sína frá Grindavík 99-91. Haukar og Keflavík hafa því náð 2-1 forystu í einvígjum sínum og geta tryggt sér sæti í úrslitum með sigri í næsta leik. Körfubolti 27. mars 2007 21:48
Grindavík jafnaði metin gegn Keflavík Grindavík hafði betur gegn Keflavík, 100-94, eftir framlengdan leik liðanna í úrslitakeppni Iceland Express-deildar kvenna í körfubolta sem var að ljúka rétt í þessu. Staðan eftir venjulegan leiktíma var 91-91 en Keflvíkingar náðu að jafna metin með góðum lokakafla. Heimamenn voru hins vegar mun sterkari í framlengingunni og tryggðu sér sigur. Körfubolti 24. mars 2007 17:31