Mælingamenn Veðurstofunnar byrjaðir að mæla flóðin á Flateyri Mælingamenn Veðurstofunnar hafa hafið störf á Flateyri við að mæla flóðin sem féllu þar í gærkvöldi. Innlent 15. janúar 2020 16:01
Annað snjóflóð féll í Súgandafirði Annað snjóflóð hefur fallið í Súgandafirði að sögn Vals Sæþórs Valgeirssonar, formanns Björgunarsveitarinnar Bjargar á Suðureyri. Innlent 15. janúar 2020 14:07
Eignaðist ömmubarn á Ísafirði meðan hún hjálpaði nágrönnum sínum á Flateyri Vigdís Erlingsdóttir, íbúi í Ólafstúni 6 á Flateyri, segir íbúana finna hlýhug landsmanna vestur á firði. Þakklætið sé mikið til baka. Vigdís sat í bíl með nágranna konu sinni og tveimur börnum hennar á meðan unnið var að grafa unglingsdóttur út úr svefnherbergi sínu. Innlent 15. janúar 2020 12:48
Unglingsstúlkan sefur og segir læknir hana hafa sloppið ótrúlega vel Örn Erlendur Ingason, læknir á heilbrigðisstofnun Vestfjarða á Ísafirði, segir fimmtán ára stúlku sem lenti í snjóflóði á Flateyri seint í gærkvöld hafa sloppið ótrúlega vel. Hann þakkar snarræði heimamanna. Innlent 15. janúar 2020 11:46
„Einu húsi of mikið að snjóflóðið náði þangað inn“ Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra, segir að það sé einu húsi of mikið að snjóflóð sem féll úr Innra-Bæjargili á Flateyri á tólfta tímanum í gærkvöldi hafi lent á íbúðarhúsinu við Ólafstún 14. Innlent 15. janúar 2020 11:44
Sérfræðingur segir varnargarðinn á Flateyri hafa sannað gildi sitt en langt í að markmið stjórnvalda náist Óhætt er að segja að mikið hafi mætt á snjóflóðavarnargarðinum fyrir ofan Flateyri síðan hann var byggður í kjölfar harmleiksins 26. október 1995. Snjóflóðafræðingur á Veðurstofu Íslands segir fjörutíu snjóflóð hafa fallið í fjallinu fyrir ofan Flateyri frá árinu 1997. Innlent 15. janúar 2020 10:36
Þór kemur við í Bolungarvík til að sækja fólk í áfallateymi Varðskipið Þór lagði af stað frá Ísafirði til Flateyrar laust eftir klukkan 9 í morgun með áfallateymi og matvöru. Innlent 15. janúar 2020 09:53
Rýma fjögur hús í Seljalandshverfi á Ísafirði Ákveðið hefur verið að rýma fjögur hús í Seljalandshverfi á Ísafirði vegna snjóflóðahættu. Innlent 15. janúar 2020 09:04
Talsvert eignatjón en engin alvarleg slys á fólki eftir þrjú „mjög stór“ snjóflóð á Vestfjörðum Alls féllu þrjú "mjög stór“ snjóflóð á Vestfjörðum undir miðnætti í gær líkt og það er orðað á vef Veðurstofu Íslands. Tvö við Flateyri, úr Skollahvilft og Innra-Bæjargili, og eitt gegnt Suðureyri í Norðureyrarhlíð sem skapaði flóðbylgju sem fór inn í bæinn. Tjón hefur orðið á eignum en engin alvarleg slys á fólki svo vitað sé. Innlent 15. janúar 2020 05:30
Stúlkan sem lenti í snjóflóðinu flutt til Ísafjarðar með Þór Unglingsstúlkan sem lenti í snjUnglingsstúlkan sem lenti í snjóflóðinu sem féll á Flateyri seint í gærkvöldi verður flutt með varðskipinu Þór á Ísafjörð. Líðan hennar er eftir atvikum góð. Innlent 15. janúar 2020 04:28
Hefðu byrjað rýmingar fyrir mörgum dögum ef varnargarðsins nyti ekki við á Flateyri Guðmundur Gunnarsson bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar segist afar þakklátur fyrir það að allir hafi komist óhultir frá snjóflóðunum sem féllu á Flateyri og Suðureyri seint í kvöld. Innlent 15. janúar 2020 04:08
Gríðarlegt tjón á Flateyri: „Smábátabryggjan er farin“ Magnús Einar Magnússon formaður björgunarsveitarinnar Sæbjargar á Flateyri var sofandi á heimili sínu á Flateyri þegar snjóflóð féll á bæinn undir miðnætti með miklum drunum. Innlent 15. janúar 2020 02:46
Flóðbylgjan skall á húsum og bílum á Suðureyri Snjóflóðið sem féll úr hlíðinni við Súgandafjörð til móts við Suðureyri féll i sjóinn og varð til þess að flóðbylgja skall á bænum. Nokkuð tjón varð á húsum og bílum. Vösk sveit björgunarsveitarmanna stendur vaktina. Innlent 15. janúar 2020 02:42
Telja flóðið á stærð við það sem féll á Flateyri 1995 Rögnvaldur Ólafsson hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra hvetur íbúa á Flateyri og Suðureyri til að halda ró sinni og ekki hika við að óska eftir hjálp ef á þurfi að halda. Innlent 15. janúar 2020 02:20
Hús rýmd vegna snjóflóðanna og íbúar beðnir að halda kyrru fyrir Ekki er vitað um alvarleg slys á fólki. Innlent 15. janúar 2020 01:45
„Svo er ég bara í húsinu mínu þegar það kemur hvellur“ „Þegar ég kíki út um gluggann þá sé ég bílinn okkar á hvolfi með blikkandi ljósin og annan bíl, einhverjum tíu metrum frá mér. Flóðið hefur komið og sprengt yfir varnargarðinn.“ Innlent 15. janúar 2020 01:09
Unglingsstúlka sem grafin var úr flóðinu ekki alvarlega slösuð Annað snjóflóðið sem féll við Flateyri seint í kvöld féll að hluta til á hús í jaðri bæjarins. Innlent 15. janúar 2020 00:59
Þrjú stór snjóflóð við Flateyri og Suðureyri með skömmu millibili Samhæfingarmiðstöð almannavarna í Skógahlíð hefur verið virkjuð vegna snjóflóða sem féllu á Vestfjörðum nú seint í kvöld. Innlent 14. janúar 2020 23:55
Þrír góðir dagar á undan næstu lægð Enn er hættu- og óvissustig í gildi vegna snjóflóðahættu og búist er við því að fjöldi flóða hafi fallið til viðbótar við þau sem þegar hafa verið staðfest. Innlent 14. janúar 2020 22:37
Illviðrið breytti stöðuvatni við Þistilfjörð í brimsalt sjávarlón Stöðuvatn við vestanverðan Þistilfjörð virðist hafa breyst í sjávarlón eftir að stórt skarð rofnaði í sjávarkamb í illviðrinu í desember. Íbúar við vatnið líkja þessu við náttúruhamfarir. Innlent 14. janúar 2020 21:30
Hnífsdalsvegur lokaður vegna snjóflóðs Nú á fjórða tímanum féll snjóflóð á Hnífsdalsveg á Vestfjörðum. Veginum hefur því verið lokað. Innlent 14. janúar 2020 15:49
Sjá ekki fram á að opna vegi fyrir umferð fyrr en á morgun Enn geisar norðaustan stormur á Vestfjörðum með skafrenningi og éljagangi. Innlent 14. janúar 2020 14:58
Óveðurslægð næsta sólarhringinn en svo birtir til Vegir eru víða lokaðir á landinu vegna veðurs og ófærðar á meðan enn ein óveðurslægðin gengur yfir landið. Viðvaranir eru í gildi til að minnsta kosti klukkan þrjú á morgun. Innlent 14. janúar 2020 13:08
Samheldni og náungakærleikur lykilatriði í ófærðinni á Flateyri Lokað hefur verið fyrir umferð um Flateyrarveg, meira og minna, frá því á föstudag vegna ófærðar og snjóflóðahættu. Fjöldi íbúa á Flateyri, þar sem fannfergi er gríðarlegt, er fastur heima hjá sér og nú er svo komið að borið hefur á vöruskorti. Innlent 14. janúar 2020 12:53
Komst út um gluggann eftir að strætó endaði í Tjörninni Enginn farþegi var um borð þegar leið tólf hjá strætó hafnaði hálfur úti í Reykjavíkurtjörn undir miðnætti í nótt. Innlent 14. janúar 2020 11:39
Óvissustig á Hellisheiði og mögulegar lokanir með skömmum fyrirvara Vegagerðin hefur varað við því að óvissa ríki nú með veður og færð á Hellisheiði og í Þrengslum. Innlent 14. janúar 2020 10:49
Klakabrynjaðir bílarnir frusu fastir við veginn Björgunarsveitarfólk hjá Kyndli á Kirkjubæjarklaustri kom sex ferðamönnum við Núpá í Skaftárhreppi til bjargar um kvöldmatarleytið í gær. Innlent 14. janúar 2020 09:00
Lokaðir vegir, ófærð og viðvaranir Færðin spilltist víða á vegum landsins í nótt. Víða er ófært og hefur fjölda vega verið lokað. Innlent 14. janúar 2020 06:00
Höfuðborgarbörn fái fylgd í skólann og ekkert skólahald í Skagafirði Veðurspár fyrir kvöldið í kvöld hafa að mestu gengið eftir en appelsínugul veðurviðvörun er í gildi fyrir stærstan hluta landsins. Innlent 13. janúar 2020 21:51
Lægðin sem gengur yfir Ísland veldur usla í Bretlandi og hefur fengið nafnið Brendan Þúsundir heimila eru án rafmagns á Norður-Írlandi og vegum hefur víða verið lokað vegna illviðris sem gengur nú yfir stóran hluta Bretlands. Erlent 13. janúar 2020 20:30