Átta látnir í flóðum á höfuðborgarsvæðinu í Suður-Kóreu Að minnsta kosti átta eru látnir og fjórtán slasaðir í gríðarlegum flóðum í kjölfar úrhellisrigninga í Seúl, höfuðborg Suður-Kóreu, í gær. Erlent 9. ágúst 2022 07:51
Gul viðvörun á Suðurlandi vegna rigningar Gul veðurviðvörun vegna talsverðrar eða mikillar rigningar er í gildi á Suðurlandi frá klukkan 15 í dag til hádegis á morgun. Innlent 8. ágúst 2022 14:55
Rigning í kortunum þessa vikuna Skilin sem gengu yfir landið í gær eru nú komin norður fyrir land og í dag verða sunnan 8-15 m/s og skúrir, en lengst af þurrt og bjart veður á norðaustanverðu landinu. Næsta lægð kemur inn á Grænlandshaf seinnipartinn og þá færist úrkomubakki inn yfir sunnanvert landið með samfelldri rigningu. Hiti 9 til 17 stig, hlýjast norðaustanlands. Veður 8. ágúst 2022 07:40
Allt að 22 gráður fyrir norðan en gular viðvaranir sunnanlands Í dag eru gular veðurviðvaranir við gildi á Suðurlandi og Faxaflóa en hiti á suðvesturhorninu verður á bilinu níu til sextán stig. Á norðaustanverðu landinu verður þurrt fram eftir degi með hita að 22 stigum. Fyrri hluta dags verður suðaustan átt og snýst hún í suðvestan seinnipartinn. Innlent 7. ágúst 2022 09:30
Engar breytingar á gosinu sem bannað er að heimsækja í dag Eldgosið í Meradölum heldur uppteknum hætti og breytist ekkert milli daga að sögn náttúruvársérfræðings. Vonskuveður er við gosstöðvarnar og ákveðið var í gær að loka svæðinu fyrir almenningi. Innlent 7. ágúst 2022 08:12
Gossvæðinu lokað á morgun Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að gosstöðvarnar í Meradölum verði lokaðar á morgun. Lokunin hefst klukkan fimm um morgun og verður staðan endurmetin seinna um daginn. Innlent 6. ágúst 2022 16:28
Gular viðvaranir og ekkert ferðaveður á gosstöðvum Gular viðvaranir taka gildi á Suðurlandi og í Faxaflóa klukkan níu í fyrramálið. Gert er ráð fyrir mikilli rigningu og hvassviðri. Ekkert ferðaveður verður á gosstöðvunum. Innlent 6. ágúst 2022 13:28
Lítið skyggni við gosið sem mallar áfram Lítil sem engin breyting hefur orðið á eldgosinu í Meradölum í nótt. Ekki viðrar vel til gönguferða að gosstöðvunum í dag enda er mikil þoka á svæðinu og skyggni lítið sem ekkert. Innlent 6. ágúst 2022 07:47
Fjöldi á leið að gosinu þrátt fyrir veðuraðstæður Töluverður straumur fólks er að eldgosinu í Meradölum þrátt fyrir að veðuraðstæður sé ekki upp á marga fiska. Lítið skyggni hefur verið við eldgosið í dag og mengun frá gosinu liggur yfir gígunum. Innlent 5. ágúst 2022 14:44
Alvarlega slösuð eftir öfluga eldingu við Hvíta húsið Tveir karlmenn og tvær konur slösuðust alvarlega þegar öflugri eldingu eða eldingum laust niður skammt frá Hvíta húsinu í Washington í Bandaríkjunum í gærkvöldi. Erlent 5. ágúst 2022 12:03
Gular viðvaranir í gildi fram á kvöld Gular viðvaranir eru enn í gildi á Ströndum og Norðurlandi vestra ásamt Norðurlandi eystra. Búast má við vexti í ám og lækjum en ásamt því gætu vatnsföll flætt staðbundið yfir bakka sína. Auknar líkur eru á grjóthruni og skriðum og er útivistarfólki bent á hættu á kælingu vegna rigningar, lágs lofthita og vinda. Veður 3. ágúst 2022 09:05
Varað við mikilli rigningu á morgun Gul veðurviðvörun er í gildi á Ströndum og Norðurlandi vestra sem og Norðurlandi eystra. Búist er við talsverðri eða mikilli rigningu. Auknar líkur eru á grjóthruni og skriðuföllum. Innlent 2. ágúst 2022 15:41
Veður í júlí sjaldan eins skítt Veðurfar það sem af er sumri hefur verið í slöku meðallagi. Þetta upplýsir Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur á Facebook-síðu sinn. Meðalhitinn í júlí var einni gráðu lægri að meðaltali en á tímabilinu 1991 til 2020. Innlent 2. ágúst 2022 15:09
Glampandi sól í Eyjum Gert er ráð fyrir glampandi sól í Vestmannaeyjum í dag en nokkuð stífri norðanátt. Heilt yfir er gert ráð fyrir norðvestlægri átt, víð 5-13 metrum á sekúndu, rigning öðru hvoru á norðanverðu landinu og skýjað með köflum. Aðeins bætir í vind með norðlægri átt eftir hádegi 8-15 metrum á sekúndu vestantil en annars hægari vindur. Innlent 1. ágúst 2022 09:41
Allt að þrjátíu metrar á sekúndu Gul viðvörun er enn í gildi á Norðurlandi eystra og vindhviður geta náð allt að þrjátíu metrum á sekúndu austan Húsavíkur. Mikilvægt er að tryggja lausa hluti utandyra og veðrið getur verið varasamt ökutækjum sem taka á sig mikinn vind. Veður 31. júlí 2022 09:01
„Skaflarnir upp að hnjám“ Snjó kyngdi niður á miðhálendinu í nótt og hefur Sæsavatnaleið í Öskju verið lokuð í nokkurn tíma vegna snjóskafla. Gular viðvaranir eru í gildi á miðhálendi og austurlandi um helgina og varað við slæmu skyggni og hálku á fjallvegum. Innlent 30. júlí 2022 19:00
Óvissustigi lýst yfir vegna hrinunnar Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum lýst yfir óvissustigi Almannavarna vegna jarðskjálftahrinu á Reykjanesskaga. Jarðskjálftahrina hófst uppúr hádegi í dag 30. júlí og er enn í gangi. Veðurstofa Íslands hefur sett Krýsuvík á gult vegna flugumferðar en mesta virknin er NA við Fagradalsfjall. Innlent 30. júlí 2022 15:16
„Fórum að sofa og vöknum um vetur“ Snjó kyngdi niður á miðhálendinu í nótt og gular viðvaranir eru á svæðinu yfir helgina. Þegar skálaverðir í Drekagili vöknuðu hafði vetur skollið á um hásumar. Innlent 30. júlí 2022 13:44
Snjókoma í júlí Miðhálendið er í vetrarbúningi nú þegar júlí er að líða undir lok. Kyngt hafði niður snjó á hálendinu í nótt og gular viðvaranir eru í gildi á Austurlandi og miðhálendinu þessa helgina. Veður 30. júlí 2022 09:35
Gul viðvörun á hálendi og Austurlandi Gul veðurviðvörun er í gildi á miðhálendi og Austurlandi nú um helgina. Útlit er fyrir slyddu eða snjókomu til fjalla með takmörkuðu eða lélegu skyggni og hvassviðri í dag. Veður 30. júlí 2022 08:12
Gul veðurviðvörun á Austurlandi og Austfjörðum Gul veðurviðvörun tekur gildi um klukkan tíu í kvöld á Austurlandi, Austfjörðum og Miðhálendinu vegna snjókomu og hvassviðris. Viðvörunin er í gildi þar til á hádegi á morgun. Veður 29. júlí 2022 14:01
Vegagerðin varar við snjókomu og stormi Vegagerðin biðlar til vegfarenda að sýna aðgát um helgina vegna veðurs. Snjókomu er spáð á hálendinu og stormi Norðaustanlands. Veður 29. júlí 2022 10:48
Hlýjast á sunnanverðu landinu í dag Í dag verður norðlæg átt, þrír til tíu metrar á sekúndu og víða smáskúrir en rofar til suðvestan- og vestanlands. Einstaklingar á Suðaustur- og Austurlandi mega eiga von á rigningu í kvöld. Veður 29. júlí 2022 06:44
Stóð af sér vatnavextina Ekki þurfti að loka bráðabirgðabrúnni yfir Jökulsá á Sólheimasandi þrátt fyrir mikla vatnavexti síðustu sólarhringa en á þriðjudag varaði Vegagerðin við því að óljóst væri hvort brúin myndi standa af sér vatnsflauminn. Innlent 28. júlí 2022 10:51
Niðurstaðan liggur fyrir og Einar gefur veðrinu um versló falleinkunn Veðurspáin fyrir verslunarmannahelgina hefur verið nokkuð á reiki síðustu daga og kom fram í gær að tvær helstu langtímaveðurspárnar hafi sýnt gjörólíka spá fyrir helgina. Þannig gerði önnur þeirra ráð fyrir því að lægð myndi ganga yfir landið með tilheyrandi áhrifum en hin ekki. Veður 28. júlí 2022 09:00
Gular viðvaranir tóku gildi í nótt Gular viðvaranir vegna hvassviðris tóku gildi í nótt á Breiðafirði, Ströndum og Norðurlandi vestra og einnig á Miðhálendinu. Á Breiðafirði er spáð allt að átján metrum á sekúndu og varir ástandið fram til klukkan ellefu. Innlent 28. júlí 2022 07:07
Gul viðvörun vegna hvassviðris í nótt Veðurstofa Íslands hefur gefið út gula viðvörun vegna hvassviðris sem von er á að gangi yfir landið á morgun. Viðvörunin gildir fyrir Breiðafjörð, Vestfirði, Strandir og Norðurland vestra og Miðhálendið. Veður 27. júlí 2022 16:32
Allt á floti á Selfossi Gular viðvaranir hafa verið gefnar út fyrir Suður- og Suðausturland í dag vegna úrhellis. „Það er allt á floti“ segir eigandi tjaldsvæðis á Selfossi, sem fer einna verst út úr rigningunum í dag. Vegagerðin hefur talsverðar áhyggjur af brú á hringveginum vegna vatnavaxta. Innlent 27. júlí 2022 11:49
Sérfræðingar ósammála um veður helgarinnar Tvær helstu langtímaveðurspár, sem veðurfræðingar styðjast almennt við, sýna gjörólíka spá um verslunarmannahelgina. Ein spáin reiknar með því að lægð gangi yfir landið á meðan önnur býst ekki við neinni lægð. Veður 27. júlí 2022 10:42
Haugarigning á Suðurlandinu og gul viðvörun í gildi Útlit er fyrir hellidembu á Suðurlandi og á höfuðborgarsvæðinu í dag. Gular viðvaranir eru enn í gildi vegna úrkomu sunnantil á landinu og hvassviðris á Miðhálendinu og verða fram á kvöld hið minnsta. Veður 27. júlí 2022 06:59