Norðmenn fyrirmynd í laxeldi? Merkilegur fréttaflutningur átti sér stað í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gærkveldi. Þar var fjallað um laxeldi hérlendis en því miður með mjög einhliða hætti. Veiði 18. nóvember 2011 13:17
Kynning á frambjóðendum SVFR Fyrir þá sem vilja kynna sér frambjóðendur til stjórnar SVFR þá eru upplýsingar um frambjóðendur að birtast þessa dagana á vefnum hjá Stangó. Veiði 17. nóvember 2011 16:16
Aðeins um 100 laxar úr Hvannadalsá í sumar Hvannadalsá var töluvert undir væntingum í sumar, eins og svo margar aðrar ár, þó var gott hlutfall stórlaxa í ánni. Samkvæmt okkar bókum komu rétt rúmlega 100 laxar úr ánni í sumar sem er töluvert fall frá 465 löxum í fyrra. Hluti af skýringunni er eflaust sá að í sumar var einungis leyð fluguveiði í fyrsta skipti og reynslan sýnir okkur að fyrsta ár í fluguveiði skilar alltaf lægri heildartölu en vanalega. Veiði 17. nóvember 2011 10:13
Rivers of Iceland í Íslenskri þýðingu Bók Róberts Neil Stewart um íslenskar laxveiðiár (Rivers of Iceland) frá árinu 1950 hefur nú verið endurútgefin í þýðingu Einars Fals Ingólfssonar. Veiði 17. nóvember 2011 10:08
Bókin Stórlaxar komin út Gunnar Bender og Þór Jónsson voru nýlega að gefa út bókina Stórlaxar. Þar er að finna viðtöl við þekkta veiðimenn sem og frásagnir þeirra af skemmtilegum veiðitúrum. Veiði 16. nóvember 2011 09:22
Rjúpnahelgi framundan Nú styttist í þriðju helgina í rjúpu og veðurspáin er víst alveg með ágætum víðast hvar um landið alla helgina. Reikna má með mikilli umferðveiðimanna víðast hvar og eru menn hvattir til að sýna tillitsemi og hófsemi við veiðarnar. Veiði 15. nóvember 2011 13:52
SVFR framlengir í dölunum Um helgina voru framlengdir leigusamningar SVFR við Laxá í Dölum og Fáskrúð. Að sögn Bjarna Júlíussonar formanns SVFR er mikil ánægja meðal stjórnar félagsins með þessa nýju samninga. Veiði 15. nóvember 2011 13:36
Miðsvæðin í Blöndu Svæði 2 og 3 í Blöndu voru nokkuð góð í sumar, alls komu um 400 laxar á land. Að vísu eru allnokkrar stangir á svæðunum eða 9 stangir í allt – en fátítt var að það væru allar bókaðar. Einnig verður að líta til þess að veiðin á sér nánast öll stað fyrir mánaðarmót júlí og ágúst, dagveiðin er því nokkuð góð á því tímabili, sérstaklega eftir 10 júlí. Veiði 14. nóvember 2011 09:22
Fimmta framboðið til stjórnar SVFR Fimmta framboðið til stjórnar SVFR hefur borist skrifstofu og er frá Eiríki St. Eiríkssyni félagsmanni númer 605. Því er nokkuð ljóst að fimm frambjóðendur eru í þrjú stjórnarsæti á aðalfundi félagsins þann 26. nóvember næstkomandi, því harla ólíklegt er að framboð berist í bréfpósti. Veiði 14. nóvember 2011 09:17
Leitin að stórlaxinum - Bók og DVD Út er kominn pakki um stórlaxaveiðar á Íslandi sem inniheldur bæði bók og kvikmynd! Betra verður það einfaldlega ekki! Þessi magnaði veiðipakki er eftir bræðurnar Gunnar og Ásmund Helgasyni og ber heitið Leitin að stórlaxinum. Nú þegar er hafin forsala á www.veidiflugur.is en pakkinn fer í almenna dreifingu 21. nóvember næstkomandi. Veiði 11. nóvember 2011 11:53
Mikil aukning í sleppingum fyrir norðan Frá því að SVFR kom að leigutöku á urriðasvæðunum í Laxá í Laxárdal og Mývatnssveit hefur hlutfall slepptra silunga margfaldast, en 58% af urriðanum í sumar var sleppt. Veiði 11. nóvember 2011 11:09
Veiðin í Reykjadalsá 2011 Veiðin í Reykjadalsá í Borgarfirði þetta árið einnkenndist af miklum vatnsskorti þar sem lítið sem ekkert rigndi í Borgarfirðinum allan veiðitímann. Laxinn var mættur í ána um mánaðamótin júní/júlí og var þó nokkuð af fiski í ánni þótt vatnsskorturinn hefði þau áhrif að fiskurinn tók frekar illa og faldi sig víða undir bökkum og slýi. Undantekningin frá þessu ástandi voru miklar rigningar í lokunarhollinu með tilheyrandi vatnavöxtum. Þótt lítið sem ekkert væri hægt að veiða frá Rauðsgili, sem er veiðstaður nr. 22, og niður úr sökum aurburðar þá náðust á land 23 laxar. Fullt var af fiski á þeim stöðum þar sem hægt var að kasta. Veiði 10. nóvember 2011 09:07
Lokatölur úr ánum og vangaveltur Eins og fram hefur komið þá var laxasumarið 2011 það sjötta besta frá upphafi skráninga skv bráðabirgðatölum frá VMSt. VoV hefur tekið saman allar þær lokatölur sem komist hefur verið yfir. Ekki tæmandi listi, en hér kennir margra grasa. Veiði 10. nóvember 2011 09:03
Nýtt framboð til stjórnar SVFR Í gærkveldi barst skrifstofu SVFR framboð frá Herði Birgi Hafsteinssyni félaga nr. 2127 til stjórnar á aðalfundi félagsins þann 26. nóvember. Veiði 10. nóvember 2011 09:00
Breytingar framundan í Hítará á Mýrum Uppi eru hugmyndur um að breyta svæðaskiptingum við Hítará á Mýrum. Ef þær ganga eftir nær aðalsvæði árinnar upp að Hítarvatni. Veiði 9. nóvember 2011 11:45
Engin rjúpnaveiði næstu helgi Eins og flestir veiðimenn eiga að vita þá er rjúpnaveiði bönnuð næstu helgi samkvæmt úrskurði Umhverfisráðherra en veiðin heldur áfram næstu tvær helgar þar á eftir áður en tímabilinu þetta árið lýkur. Veiði 8. nóvember 2011 10:08
Víðidalsá - Uppgjör 2011 Veiði lauk í Víðidalsá þann 24 september og var lokatala úr ánni 747 laxar á land. Oft hafa sést hærri tölur úr þessari rómuðu stóralaxaá en hlutfall stórlaxa var sem fyrr afar hátt. Veiði 8. nóvember 2011 09:59
Fimmta tölublað Veiðislóðar komið út Fimmta tölublað vef-tímaritsins Veiðislóð er komið út. Eitt blað eftir af tilraun þeirra félaga á www.votnogveidi.is og verður fróðlegt að sjá hvað framtíðin ber í skauti sér með framhald á þessu tímariti. Veiði 8. nóvember 2011 09:57
Sagan endurtekur sig Árið 1999 skrifaði Hilmar Hansson þáverandi formaður Landssambands Stangaveiðifélaga grein í Morgunblaðið um glórulaust laxeldi hérlendis. Greinina mætti nú birta aftur - og það óbreytta. Hana má í það minnsta lesa hér að neðan, og gæti hún allt eins verið rituð nú í morgun: Veiði 8. nóvember 2011 09:52
Ágætis rjúpnaveiði en skilyrðin erfið Það voru vægast sagt erfiðar aðstæður til rjúpnaveiða í Breiðdal og á Jöklusvæðinu sl. helgi er veiðar hófust. Engin snjór og nánast sumarhiti niður í dölunum á föstudag og lítið um rjúpu á hefbundnum svæðum. En það var eins gott að nýja svæðið upp á Jökuldalsheiði var með því þar var nægur snjór og rjúpa líka! Veiði 7. nóvember 2011 13:04
Sitjandi stjórnarmenn hafa allir gefið kost á sér Skrifstofa félagsins hefur í dag móttekið framboð Árna Friðleifssonar, Bernhards A. Petersen og Hilmars Jónssonar til stjórnar SVFR. Ljóst er því að þeir munu óska eftir áframhaldandi umboði til starfa fyrir félagið næstu tvö árin. Veiði 7. nóvember 2011 09:35
Fyrsta fluguveiðisumarið í Eldvatnsbotnum Í sumar var í fyrsta sinn var aðeins leyfð fluguveiði í Eldvatnsbotnum í Meðallandi. Það virðist ekki hafa haft áhrif á veiðitölur á svæðinu. Eldvatnsbotnar fara ekki varhluta af bannsettri Steinsugunni, því mikill meirihluti sjóbirtingsins er bitinn og særður. Sérstaklega á þetta við um stærri birtinginn sem virðist, líkt og í Tungufljóti, einfaldlega allur vera soginn. Veiði 7. nóvember 2011 09:29
Dýrasti dagurinn á 450.000 í Laxá í Ásum? Miðað við þau útboð sem hafa verið síðustu mánuði og vikur er ljóst að einhverjar ár muni hækka næsta sumar og sumar mikið. Nýlegt 111 milljóna tilboð í Þverá kemur þannig út að meðalverð á stöngina er um 100.000 kr, þ.e.a.s. kostnaðarverð leigutaka. Hvernig þetta skilar sér svo í verðum til veiðimanna er ekki útséð ennþá. Veiði 7. nóvember 2011 09:19
Laxveiðisumarið 2011: Haffjarðará og Selá gáfu mest Veiðisumrinu lauk formlega á mánudaginn þegar veiði í Ytri-Rangá var hætt. Þar komu flestir laxar á land eða alls 4.961. Næst flestir laxar veiddust í Eystri-Rangá. Í Haffjarðará og Selá veiddust hins vegar flestir laxar á stöng. Veiðin í Elliðaánum var líka mjög góð. Veiði 4. nóvember 2011 18:00
Grálúsugir laxar í lok október Hvort sem það stafaði af síðbúnum göngum vegna vor- og snemmsumarskulda eða öðru, þá bar talsvert á sannkölluðum nýgengnum haustlöxum að þessu sinni. Fjórir slíkir í Miðfjarðará toppuðu þó allt. Veiði 4. nóvember 2011 10:00
Fáskrúð var fín á liðnu sumri Veiðitölur eru loks komnar í hús úr Fáskrúð í Dölum frá því í sumar. Veiðin í ánni var með ágætum í sumar þó langur vegur sé frá metveiði fyrra árs. Sumarveiðin hljóðar upp á 247 laxar en veitt er ýmisst á tvær til þrjár dagsstangir. Í fyrra var veiðin hins vegar 523 laxar sem er einhver mesta veiði sem um getur úr Fáskrúð. Veiði 4. nóvember 2011 10:00
Með 47 rjúpur um opnunarhelgina Núna er það helgi númer tvö í rjúpunni og spáin heldur rysjótt nema þá helst á norður og austurlandi. Við erum ennþá að fá fréttir af veiðimönnum sem héldu til veiða síðustu helgi og nokkrir hafa gert það ágætt en aðrir fengið minna. Veiði 3. nóvember 2011 12:55
Bjarni gefur kost á sér áfram til formennsku SVFR Skrifstofu SVFR hefur borist tilkynning frá Bjarna Júlíussyni formanni SVFR um að hann gefi áframkost á sér til formennsku í SVFR Veiði 3. nóvember 2011 10:00
Metsumar í Stóru Laxá - 795 laxar á land Stóra Laxá í Hreppum endaði í 795 löxum í sumar og er það metveiði í Stóru. Sumarið í ár byrjaði hægt og virtist aldrei ætla í gang eins og á mörgum öðrum ám þetta sumarið en hrökk í gang í lok ágúst með mikillri veiði og gekk þannig langt fram í september. Til að myndar voru nokkur tveggja daga holl sem náðu 100 laxa veiði á svæði I&II. Í sumar var í fyrsta skipti innleitt veiða og sleppa reglur í Stóru en á svæðum1-3 má hirða 1 lax en öllu sleppt á svæði 4. Veiði 3. nóvember 2011 09:58
Nær Hróarslækur sér á strik 2012 Engum blöðum er um það að fletta að Hróarslækur var lélegur í sumar og langt undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar. Sér í lagi þar sem sleppingar í fyrra voru í fullu samræmi við fyrri sleppingar samkvæmt okkar heimildum. Veiði 3. nóvember 2011 09:55