Álfur Birkir nýr formaður Samtakanna ´78 Álfur Birkir Bjarnason var í dag kjörinn formaður Samtakanna ´78 þegar aðalfundur félagsins var haldinn. Innlent 6. mars 2022 18:26
Gestur hættir sem framkvæmdastjóri Veitna Gestur Pétursson, sem hefur verið framkvæmdastjóri Veitna frá árinu 2019, hefur látið af störfum hjá félaginu. Innherji 5. mars 2022 15:01
Stjórnarformaður Eimskips segir réttast að leyfa öðrum að taka við keflinu Baldvin Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Öldu Seafood Holding, sem heldur utan um starfsemi Samherja Holding í Evrópu og Kanada, segist ekki gefa kost á sér í aðalstjórn Eimskips vegna anna í starfi og auk þess segir hann að Eimskip standi á tímamótum eftir vel heppnaðar stefnubreytingar á síðustu þremur árum. Innherji 5. mars 2022 14:00
Hættir sem framkvæmdastjóri hjá Play og einbeitir sér að fluginu Guðni Ingólfsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri flugrekstrarsviðs Play. Guðni tekur við sem framkvæmdastjóri af Arnari Má Magnússyni, einum af stofnendum Play. Þetta kemur fram í tilkynningu Play til Kauphallar. Viðskipti innlent 4. mars 2022 16:14
Áslaug Arna braut lög með ráðningu Ásdísar Höllu Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, var óheimilt að setja Ásdísi Höllu Bragadóttur sem ráðuneytisstjóra til þriggja mánaða án auglýsingar. Innlent 4. mars 2022 12:56
Gunnar Egill nýr forstjóri Samkaupa Gunnar Egill Sigurðsson hefur verið ráðinn nýr forstjóri Samkaupa og tekur við af Ómari Valdimarssyni sem hefur gegnt stöðunni undanfarin þrettán ár. Gunnar Egill hefur starfað sjá fyrirtækinu í tuttugu ár, nú síðast sem framkvæmdastjóri verslunarsviðs. Viðskipti innlent 4. mars 2022 12:09
Snæbjörn Ingi frá Origo til Itera Snæbjörn Ingi Ingólfsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri alþjóðlega tæknifyrirtækisins Itera á Íslandi. Itera opnaði á síðasta ári skrifstofu í Reykjavík en aðalskrifstofur fyrirtækisins eru í Noregi. Viðskipti innlent 4. mars 2022 10:36
Herdís tekur sæti Katrínar í peningastefnunefnd Herdís Steingrímsdóttir, dósent í hagfræði við Copenhagen Business School, hefur verið skipuð í peningastefnunefnd Seðlabankans til næstu fimm ára. Frá þessu er greint á vef Stjórnarráðsins. Viðskipti innlent 4. mars 2022 10:24
Brynja fer frá Krónunni til Orkunnar Brynja Guðjónsdóttir hóf á dögunum störf sem markaðsstjóri Orkunnar. Hún var áður hjá Krónunni í sambærilegum verkefnum. Klinkið 3. mars 2022 15:15
Þau sóttu um stöðu ráðuneytisstjóra í nýju ráðuneyti Áslaugar Örnu Alls bárust átta umsóknir um embætti ráðuneytisstjóra háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytisins sem auglýst var 3. febrúar síðastliðinn en umsóknarfrestur rann út 28. febrúar. Innlent 3. mars 2022 10:11
Bjarni Halldór aðstoðar Þorgerði Katrínu Bjarni Halldór Janusson, stjórnmálafræðingur og fyrrverandi varaþingmaður, hefur verið ráðinn nýr aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns og þingmanns Viðreisnar. Innlent 2. mars 2022 11:10
Ráðin framkvæmdastjóri Menningarfélags Akureyrar Stjórn Menningarfélags Akureyrar hefur ráðið Evu Hrund Einarsdóttur í starf framkvæmdastjóra. Innlent 2. mars 2022 08:29
Gísli Freyr tekur við af Stefáni Einari Gísli Freyr Valdórsson hefur verið ráðinn fréttastjóri viðskiptadeildar Morgunblaðsins og tekur hann við stöðunni af Stefáni Einari Stefánsyni. Viðskipti innlent 2. mars 2022 07:20
Þórey ráðin fjármálastjóri VAXA Þórey G. Guðmundsdóttir, sem starfaði áður um árabil sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs Bláa lónsins, hefur verið ráðin fjármálastjóri hjá hátæknigróðurhúsinu VAXA. Mun hún taka við starfinu innan fárra vikna. Klinkið 1. mars 2022 17:30
Benedikt nýr framkvæmdastjóri hjá Orkuveitunni Benedikt K. Magnússon hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála hjá Orkuveitu Reykjavíkur og hefur störf síðar í mánuðinum. Hann lætur um leið af störfum sem ráðgjafi hjá KPMG. Svanbjörn Thoroddsen tekur við stöðu hans hjá KPMG. Innlent 1. mars 2022 16:37
Berglind nýr verkefnastjóri hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt Berglind Sunna Bragadóttir hefur tekið við stöðu verkefnastjóra kynningarmála hjá Fræðslusetrinu Starfsmennt en hún gegndi áður stöðu upplýsinga- og kynningastjóra hjá Keili - miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs. Innlent 1. mars 2022 16:07
Sigríður snýr aftur í Efstaleiti Sigríður Halldórsdóttir hefur verið ráðin til starfa á RÚV. Hún starfaði síðast fyrir Ríkisútvarpið árið 2019 í fréttaskýringaþættinum Kveik. Innlent 1. mars 2022 15:22
Ragnheiður hættir sem forstjóri Opinna Kerfa Ragnheiður Harðar Harðardóttir, sem hefur stýrt Opnum Kerfum undanfarin þrjú ár, hefur óskað eftir því að láta af störfum sem forstjóri upplýsingatæknifyrirtækisins. Áður en hún tók við sem forstjóri félagsins árið 2019 hafði hún verið fjármálastjóri Opinna Kerfa. Innherji 1. mars 2022 13:02
Hættir sem aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar og fer til UN Women María Rut Kristinsdóttir hættir í dag sem aðstoðarmaður Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar, eftir fjögurra ára starf. Hún hefur tekið við sem kynningarstýra UN Women. Innlent 1. mars 2022 10:11
Brjánn nýr samskiptastjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins Brjánn Jónasson hefur nú hafið störf sem samskiptastjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Hann var ráðinn úr hópi níu umsækjenda. Innlent 25. febrúar 2022 14:37
Rut ráðin framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands Rut Einarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands. Hún hefur störf í næstu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Innlent 25. febrúar 2022 12:01
Fjögur ráðin til Brandenburg Þorleifur Gunnar Gíslason, Dana Rún Hákonardóttir, Sóley Lee Tómasdóttir og Hildur Hafsteinsdóttir hafa öll verið ráðin til starfa hjá hönnunar- og auglýsingastofunni Brandenburg. Viðskipti innlent 25. febrúar 2022 10:10
Sjötíu umsækjendur um starf upplýsingafulltrúa Alls voru sjötíu umsækjendur um starf upplýsingafulltrúa hjá ráðuneyti háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarmála en umsóknarfrestur um starfið rann út á sunnudag. Innlent 24. febrúar 2022 17:32
Kristín Hildur hjá Fortuna Invest til Íslandsbanka Kristín Hildur Ragnarsdóttir, eina af meðlimum Fortuna Invest, hefur verið ráðin til starfa hjá Íslandsbanka og þar sem hún mun leiða vöruþróun fyrir ungt fólk og fjárfestingar. Viðskipti innlent 24. febrúar 2022 13:05
Fanney Rós skipuð ríkislögmaður fyrst kvenna Forsætisráðherra hefur skipað Fanneyju Rós Þorsteinsdóttur ríkislögmann frá og með 28. febrúar næstkomandi. Hún er fyrsta konan sem skipuð er í embætti ríkislögmanns. Innlent 23. febrúar 2022 15:18
Ásthildur Bára nýr markaðsstjóri SalesCloud Ásthildur Bára Jensdóttir hefur verið ráðin markaðsstjori fjártæknifyrirtækisins SalesCloud. Viðskipti innlent 23. febrúar 2022 07:59
Arnór hættir sem forstjóri Menntamálastofnunar og fær starf í ráðuneytinu Arnór Guðmundsson mun láta af störfum sem forstjóri Menntamálastofnunar (MMS) og byrja hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu þann 1. mars næstkomandi. Innlent 22. febrúar 2022 13:44
Guðbjörg Sæunn frá Veitum til Einingaverksmiðjunnar Guðbjörg Sæunn Friðriksdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Einingaverksmiðjunnar ehf. Hún tekur við af Sigurbirni Óla Ágústssyni sem hefur gegnt starfinu síðustu 28 ár. Viðskipti innlent 22. febrúar 2022 11:49
Kristín Björg frá Torgi til Orkunnar Kristín Björg Árnadóttir hefur hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármálasviðs Orkunnar. Hún starfaði síðast sem fjármálastjóri hjá Torgi, útgáfufélagi Fréttablaðsins, DV, Hringbrautar og tengdra miðla. Viðskipti innlent 21. febrúar 2022 09:25
Elín Pálmadóttir nýr sviðsstjóri hjá PwC Elín Pálmadóttir hefur tekið við sem sviðstjóri bókhalds og launa hjá PwC en sviðið aðstoðar fyrirtæki og rekstraraðila með bókhald, laun, ársreikninga og framtalsskil. Viðskipti innlent 18. febrúar 2022 11:19