Sandra Mjöll ráðin framkvæmdastjóri RH Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Raunvísindastofnunar Háskólans (RH). Hún tók við starfinu í byrjun ágúst. Viðskipti innlent 24. ágúst 2021 11:13
Handboltakempa ráðin forstöðumaður heilbrigðislausna Hrafn Ingvarsson hefur verið ráðinn forstöðumaður heilbrigðislausna hjá Origo. Viðskipti innlent 23. ágúst 2021 10:06
Jóhanna tekur við Banönum Jóhanna Þ. Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Banana ehf., dótturfélags Haga hf.. Hún tekur við starfinu af Kjartani Má Friðsteinssyni. Viðskipti innlent 20. ágúst 2021 16:46
Reynslubolti af Mbl.is í morgunútvarp Rásar 1 Guðrún Hálfdánardóttir hefur verið ráðin til Ríkisútvarpsins þar sem hún á að leysa af Þórunni Elísabetu Bogadóttur á Morgunvaktinni á Rás 1 næsta hálfa árið. Hún starfaði lengi sem fréttastjóri og blaðamaður á Mbl.is. Viðskipti innlent 20. ágúst 2021 14:38
Ritstjóri og blaðamaður Markaðarins segja upp störfum Hörður Ægisson, ritstjóri Markaðarins, hefur sagt upp störfum á viðskiptariti Fréttablaðsins og hyggst færa sig yfir á nýjan starfsvettvang. Hörður sagði upp um síðustu mánaðamót ásamt Þorsteini Friðriki Halldórssyni, blaðamanni á Markaðnum. Viðskipti innlent 20. ágúst 2021 11:18
Björn Bjarki tekur við af Gísla Páli hjá SFV Björn Bjarki Þorsteinsson, framkvæmdastjóri hjúkrunarheimilisins Brákarhlíðar í Borgarnesi, hefur tekið við formennsku hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. Viðskipti innlent 19. ágúst 2021 14:50
Þórhildur ráðin kynningarfulltrúi BHM Þórhildur Þorkelsdóttir hefur verið ráðin kynningarfulltrúi BHM og hefur þegar tekið til starfa. Viðskipti innlent 19. ágúst 2021 08:23
Fjögur ráðin til KPMG sem ráðgjafar Anna-Bryndís Zingsheim Rúnudóttir, Björg Ýr Jóhannsdóttir, Helena Júlía Kristinsdóttir og Ingvar Ágúst Ingvarsson hafa verið ráðin sem ráðgjafar á ráðgjafasviði KPMG. Viðskipti innlent 18. ágúst 2021 14:31
Ráðinn framkvæmdastjóri viðskiptalausna hjá Advania Heimir Fannar Gunnlaugsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri viðskiptalausna Advania. Hann hefur starfað hjá Microsoft á Íslandi síðan 2013, lengst af sem forstjóri. Viðskipti innlent 18. ágúst 2021 10:05
Hættir sem forstjóri Olís Jón Ólafur Halldórsson, framkvæmdastjóri Olíuverzlunar Íslands ehf. (Olís), hefur óskað eftir að láta af störfum hjá félaginu og hafa hann og stjórn gengið frá samkomulagi þar að lútandi. Viðskipti innlent 18. ágúst 2021 10:01
Rektor HR tekur við starfi forstjóra AwareGO Ari Kristinn Jónsson, fráfarandi rektor Háskólans í Reykjavík, mun taka við starfi forstjóra netöryggisfyrirtækisins AwareGO um mánaðarmótin. Hann tekur við starfinu af Ragnari Sigurðssyni, einum stofnanda fyrirtækisins. Viðskipti innlent 18. ágúst 2021 07:56
Ráðinn markaðs- og vörustjóri Kerecis Guðmundur Óskarsson hefur verið ráðinn nýr framkvæmdastjóri markaðs- og vörustjórnunar hjá Kerecis. Viðskipti innlent 17. ágúst 2021 14:28
Frá Rauða krossinum til Viðskiptaráðs Gunnlaugur Bragi Björnsson, upplýsingafulltrúi Rauða krossins, hefur verið ráðinn til starfa hjá Viðskiptaráði Íslands þar sem hann mun annast samskipta- og miðlunarmál ráðsins. Viðskipti innlent 16. ágúst 2021 12:02
Tekur við sem formaður SÍNE Freyja Ingadóttir hefur verið nýr formaður SÍNE, Samtaka íslenskra námsmanna erlendis. Hún var kjörin á Sumarráðstefnu SÍNE sem fram fór síðastliðinn laugardag, en hún tekur við formennsku af Hauki Loga Karlssyni sem gengt hefur hlutverkinu síðastliðið ár. Innlent 16. ágúst 2021 10:45
Héraðssaksóknari missir reynslubolta í dómarasæti Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Björn Þorvaldsson saksóknara í embætti dómara sem mun hafa starfsstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur. Hann mun sinnastörfum við alla héraðsdómstólana eftir ákvörðun dómstólasýslunnar, frá 1. september 2021. Innlent 13. ágúst 2021 14:43
Forstjóri Barnaverndarstofu færir sig um set Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra hefur ákveðið að skipa Heiðu Björgu Pálmadóttur, forstjóra Barnaverndarstofu, í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu innviða heilbrigðisþjónustu í ráðuneytinu. Innlent 13. ágúst 2021 14:38
Signý Sif tekur við af Sigfúsi hjá Eyri Invest Signý Sif Sigurðardóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri fjármögnunar hjá Eyri Invest hf. Sigfús Oddsson, sem sinnt hefur starfinu frá 2011 hefur ákveðið að láta af störfum. Viðskipti innlent 12. ágúst 2021 07:16
Bjarni Guðjóns nýr framkvæmdastjóri KR Bjarni Guðjónsson er kominn aftur í KR þar sem hann hefur verið sem leikmaður, þjálfari og aðstoðarþjálfari á síðustu árum. Aðalstjórn Knattspyrnufélags Reykjavíkur hefur ráðið Bjarna Guðjónsson sem næsta framkvæmdastjóra félagsins. Íslenski boltinn 11. ágúst 2021 14:46
Egill tekur við af Sveini Inga hjá Verkís Egill Viðarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri hjá Verkís hf. Hann tók við starfinu í upphafi mánaðar. Viðskipti innlent 11. ágúst 2021 07:41
Kynntist félaginu sem bankastarfsmaður og tekur við sem framkvæmdastjóri Magnús Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ferro Zink hf. og mun hefja störf um miðjan ágúst. Hann er viðskiptafræðingur að mennt en hefur auk þess lokið PMD stjórnendanámi frá HR. Viðskipti innlent 10. ágúst 2021 14:44
Brynhildur tekur við viðskiptaþróun hjá Íslandsstofu Brynhildur Georgsdóttir hefur verið ráði forstöðumaður viðskiptaþróunar hjá Íslandsstofu. Viðskipti innlent 10. ágúst 2021 12:55
Nýr ritstjóri fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar Erla Björg Gunnarsdóttir hefur verið ráðin ritstjóri fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar. Hún tekur við starfinu af Þóri Guðmundssyni. Kolbeinn Tumi Daðason, sem hefur verið fréttastjóri Vísis síðustu sjö ár, verður fréttastjóri allra miðla fréttastofunnar. Viðskipti innlent 9. ágúst 2021 10:15
Hildigunnur skipuð forstjóri Sjúkrahússins á Akureyri Heilbrigðisráðherra hefur skipað Hildigunni Svavarsdóttur forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri til næstu fimm ára. Hildigunnur hefur verið framkvæmdastjóri hjúkrunar á sjúkrahúsinu og klínískur framkvæmdastjóri á bráða- og þróunarsviði frá 2012. Innlent 6. ágúst 2021 17:54
Unnur Eggerts í stjórnmálin Leikkonan Unnur Eggertsdóttir mun stýra kosningum Vinstri grænna í Reykjavík fyrir komandi alþingiskosningar. Innlent 6. ágúst 2021 12:18
Frá frumkvöðlaráðgjöf í Ástralíu til Play Jóhann Pétur Harðarson hefur verið ráðinn lögfræðingur flugfélagsins Play. Viðskipti innlent 6. ágúst 2021 11:46
Ívar framkvæmdastjóri fjármála hjá Icelandair Ívar S. Kristinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fjármála hjá Icelandair Group. Hann hafði áður gegnt stöðunni tímabundið frá því í maí og hefur Ívar sömuleiðis gegn ýmsum stjórnendastöðum hjá félaginu á undanförnum árum. Viðskipti innlent 5. ágúst 2021 16:42
Fjalar nýr upplýsingafulltrúi dómsmálaráðuneytisins Fjalar Sigurðarson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi í dómsmálaráðuneytinu. Fjalar tekur við starfinu af Hafliða Helgasyni sem gegndi því í tæp þrjú ár. 34 sóttu um starfið. Innlent 5. ágúst 2021 15:30
Nína Björk nýr forstöðumaður GRÓ Nína Björk Jónsdóttir hefur tekið við sem forstöðumaður GRÓ, þekkingarmiðstöðvar þróunarsamvinnu. Hún tekur við af Friðrik Jónssyni, sem var kjörinn formaður BHM 27. maí síðastliðinn. Viðskipti innlent 4. ágúst 2021 13:05
Sigmundur Ernir er nýr ritstjóri Fréttablaðsins Sigmundur Ernir Rúnarsson hefur verið ráðinn nýr ritstjóri Fréttablaðsins og aðalritstjóri útgáfufélagsins Torgs ehf., sem rekur Fréttablaðið, DV, Markaðinn og Hringbraut. Hann tekur við aðf Jóni Þórissyni sem hefur starfað sem ritstjóri frá haustinu 2019. Innlent 3. ágúst 2021 11:58
Ásthildur er nýr stjórnarformaður Kaptio Ásthildur Otharsdóttir hefur tekið við stjórnarformennsku hjá Kaptio. Hún tekur við af Eggerti Claessen sem hefur verið formaður frá 2016. Kaptio er alþjóðlegt hugbúnaðarfyrirtæki á sviði bókunar- og viðskiptatengslahugbúnaðar fyrir ferðaþjónustu. Viðskipti innlent 3. ágúst 2021 09:38