Áslaug Arna skipar í embætti fjögurra héraðsdómara Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað Björn L. Bergsson og Jóhannes Rúnar Jóhannsson í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang hjá Héraðsdómi Reykjavíkur frá 14. janúar næstkomandi. Innlent 13. janúar 2021 11:30
Jóhanna Harpa til Kontor Reykjavík Jóhanna Harpa Agnarsdóttir hefur verið ráðin í starf viðskiptastjóra hjá auglýsingastofunni Kontor Reykjavík. Viðskipti innlent 13. janúar 2021 09:29
Úlla Árdal yfirgefur RÚV og kynnir náttúruperlur Úlla Árdal hefur verið ráðin í starf markaðs- og þróunarstjóra Mývatnsstofu og hóf störf þann 5. janúar. Þar mun hún sinna verkefnum sem er ætlað að styðja við uppbyggingu innviða í Skútustaðahreppi og Þingeyjarsveit með það að markmiði að gera svæðið ákjósanlegra til búsetu og fjárfestinga. Viðskipti innlent 12. janúar 2021 16:52
Þau vilja taka við starfi forsetaritara Birtur hefur verið listi yfir þá sem sóttu um embætti forsetaritara sem nýlega var auglýst laust til umsóknar. Viðkomandi mun taka við starfinu af Örnólfi Thorssyni sem hefur gegnt því frá árinu 2005. Innlent 12. janúar 2021 12:20
Kristinn Harðarson ráðinn framkvæmdastjóri framleiðslu Kristinn Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri framleiðslu hjá HS Orku. Kristinn mun stýra allri framleiðslu HS Orku í jarðvarmavirkjununum í Svartsengi og á Reykjanesi auk vatnsaflsvirkjunarinnar á Brú í Tungufljóti. Viðskipti innlent 12. janúar 2021 11:02
Ragnheiður Elín ráðin framkvæmdastjóri Alor Ragnheiður Elín Árnadóttir, ferrverandi iðnaðar- og viðskiptaráðherra, hefur verið ráðin framkvæmdastjóri nýsköpunarfyrirtækisins Alor ehf. Viðskipti innlent 12. janúar 2021 08:01
Sylvía frá Icelandair til Origo Sylvía Ólafsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá Origo og tekur hún sæti í framkvæmdastjórn félagsins. Viðskipti erlent 8. janúar 2021 09:08
Aldís ráðin verkefnastjóri sýninga Aldís Snorradóttir hefur verið ráðin í stöðu verkefnastjóra sýninga í deild sýninga og miðlunar í Listasafni Reykjavíkur. Viðskipti innlent 7. janúar 2021 14:32
Fjögur ráðin á skrifstofu skóla-, íþrótta- og æskulýðsmála Donata H. Bukowska, Ingvi Hrannar Ómarsson, Óskar H. Níelsson og Örvar Ólafsson hafa verið ráðin til starfa hjá mennta- og menningarmálaráðuneyti á skrifstofu skóla-, íþrótta- og æskulýðsmála. Viðskipti innlent 7. janúar 2021 11:24
Ólafur tekur við af Sigurbirni Ólafur Samúelsson öldrunarlæknir hefur tekið við starfi framkvæmdarstjóra lækningasviðs á Eir, Skjóli og Hömrum. Viðskipti innlent 7. janúar 2021 11:18
Twitter kaupir íslenskt fyrirtæki Bandaríski samfélagsmiðillinn Twitter hefur keypt íslenska tækni- og hönnunarfyrirtækið Ueno sem stofnað var árið 2014 og hefur vaxið hratt undanfarin ár. Viðskipti innlent 6. janúar 2021 15:20
Atli ráðinn sem markaðsráðgjafi Háskólans á Bifröst Atli Björgvinsson hefur verið ráðinn í hlutastarf sem markaðsráðgjafi Háskólans á Bifröst. Viðskipti innlent 6. janúar 2021 12:17
„Núna get ég allavega verslað í Krónunni án samviskubits“ Særúnu Ósk Pálmadóttur hefur verið sagt upp störfum sem samskiptastjóri Haga en staða hennar hjá verslunarfyrirtækinu hefur verið lögð niður. Særún er um leið fyrsti og síðasti samskiptastjóri Haga en fyrir hennar tíð hafði enginn gegnt þeirri stöðu hjá smásölurisanum. Viðskipti innlent 6. janúar 2021 11:31
Baldvin mun leiða Evrópuútgerð Samherja Baldvin Þorsteinsson mun taka við stjórnartaumunum hjá Deutsche Fischfang Union, dótturfélagi Samherja í Þýskalandi og verða í forsvari fyrir útgerðarstarfsemi samstæðunnar í Evrópu. Hann tekur við af Haraldi Grétarssyni sem lætur af störfum í apríl. Viðskipti innlent 5. janúar 2021 16:44
Davíð Þorláksson nýr framkvæmdastjóri Betri samgangna Davíð Þorláksson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri opinbera hlutafélagsins Betri samgangna. Þetta kemur fram í tilkynningu. Stofnað var til Betri samgangna til að hrinda í framkvæmd uppbyggingu samgönguinnviða á höfuðborgarsvæðinu. Viðskipti innlent 5. janúar 2021 13:04
Katla Hrund nýr aðstoðarframkvæmdastjóri H:N markaðssamskipta Katla Hrund Karlsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarframkvæmdastjóri auglýsingastofunnar H:N Markaðssamskipta. Viðskipti innlent 4. janúar 2021 10:39
Theodóra settur skattrannsóknarstjóri næsta hálfa árið Theodóra Emilsdóttir hefur verið settur skattrannsóknarstjóri frá áramótum til 1. júlí 2021 í tímabundnu leyfi Bryndísar Kristjánsdóttur. Viðskipti innlent 29. desember 2020 13:17
Sigríður og Birna skipaðar nýir sýslumenn Dómsmálaráðherra hefur skipað Sigríði Kristinsdóttur í embætti sýslumanns á höfuðborgarsvæðinu og Birnu Ágústsdóttur í embætti sýslumanns á Norðurlandi vestra frá 1. janúar næstkomandi. Innlent 22. desember 2020 13:32
Jón Viggó ráðinn framkvæmdastjóri SORPU Stjórn SORPU bs. hefur ákveðið að ráða Jón Viggó Gunnarsson í starf framkvæmdastjóra. Jón Viggó tekur við starfinu á fyrsta degi nýs árs af Helga Þór Ingasyni, sem var tímabundið ráðinn framkvæmdastjóri SORPU í febrúar. Jón Viggó var valinn úr hópi 32 umsækjenda. Viðskipti innlent 18. desember 2020 10:17
Hrefna hættir eftir tólf ára starf Hrefna Sigurjónsdóttir hefur ákveðið að hætta störfum sem framkvæmdastjóri Heimilis og skóla – landssamtökum foreldra eftir tólf ára starf. Viðskipti innlent 17. desember 2020 10:40
Ráðin nýr svæðisstjóri Eimskips fyrir vestan Arna Lára Jónsdóttir hefur verið ráðin svæðisstjóri Eimskips á Vestfjörðum. Viðskipti innlent 17. desember 2020 09:01
Þórhildur ráðin forstjóri Íslandspósts fyrst kvenna Þórhildur Ólöf Helgadóttir hefur verið ráðin í starf forstjóra Íslandspósts og hefur hún þegar tekið til starfa. Þórhildur er fyrsta konan til að gegna stöðu forstjóra Póstsins, að því er fram kemur í tilkynningu um ráðninguna frá Íslandspósti. Viðskipti innlent 15. desember 2020 16:05
Vigdís Eva staðgengill forstjóra Persónuverndar Frá og með 11. desember síðastliðnum er Vigdís Eva Líndal staðgengill forstjóra Persónuverndar. Vigdís Eva er þegar sviðsstjóri erlends samstarfs og fræðslu hjá persónuvernd. Viðskipti innlent 14. desember 2020 17:52
Ráðin nýr framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Wise Inga Birna Ragnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Wise. Viðskipti innlent 7. desember 2020 12:55
Karl Steinar stýrir alþjóðasviði ríkislögreglustjóra Karl Steinar Valsson, yfirlögregluþjónn miðlægrar rannsóknardeildar hjá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, hefur verið ráðinn yfirlögregluþjónn alþjóðasviðs ríkislögreglustjóra. Innlent 4. desember 2020 14:08
Fjögur ráðin til Stefnis Theodór Sölvi Blöndal, Vigdís Hauksdóttir, Þorsteinn Andri Haraldsson og Eiríkur Ársælsson hafa öll verið ráðin til starfa hjá sjóðsstýringarfyrirtækinu Stefni að undanförnu. Viðskipti innlent 4. desember 2020 12:01
Kjartan til Isavia Kjartan Briem hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Isavia ANS og mun hann hefja störf 1. janúar næstkomandi. Viðskipti innlent 1. desember 2020 12:46
Þóra nýr dagskrárstjóri Stöðvar 2 Þóra Björg Clausen hefur verið ráðin dagskrárstjóri Stöðvar 2. Hún tekur við starfinu af Jóhönnu Margréti Gísladóttur sem lætur af störfum. Þórhallur Gunnarsson, framkvæmdastjóri miðla Sýnar, staðfestir þetta við fréttastofu. Viðskipti innlent 1. desember 2020 10:28
Kjartan kveður eftir tuttugu ára starf Kjartan Briem, framkvæmdastjóri tæknisviðs Vodafone, hefur ákveðið að láta af störfum frá og með næstkomandi áramótum. Að þeim tíma loknum mun Kjartan hverfa til annarra verkefna að því er segir í tilkynningu til Kauphallar. Viðskipti innlent 30. nóvember 2020 15:06
Hersir Aron nýr aðstoðarmaður Bjarna Hersir Aron Ólafsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra. Þetta kemur fram á vefsíðu Stjórnarráðsins. Innlent 30. nóvember 2020 13:21