Tilbury - Drama

Myndbandið er við lagið "Drama" og gerist í sérkennilegri garðveislu hjá ungri stúlku. Um er að ræða ástarsögu stúlku og drengs, en með óvenjulegum blæ þar sem stúlkan reynist vera andsetin. Og veislan er öll hin einkennilegasta. Myndbandinu er leikstýrt af Helga Jóhannssyni og framleitt af Atla Viðari Þorsteinssyni, en það er dansarinn Melkorka Sigríður Magnúsdóttir sem leikur andsetnu stúlkuna. Mörgum af fremstu ungu leikurum landsins bregður síðan fyrir í veislunni. Myndbandið var allt tekið upp í einu skoti, sem var metnaðarfullt verkefni fyrir kvikmyndagerðarðarmennina Helga og Atla sem vildu með því færa áhorfandann nær því hvernig það er að upplifa andsetna garðveislu frá fyrstu hendi.

9944
04:28

Næst í spilun: Tónlist

Vinsælt í flokknum Tónlist