Innlent

Sprengjan sprakk í andlitið - augað slapp

Vestmannaeyjar
Vestmannaeyjar
Flugeldur sprakk í andlitið á pilti á sextánda ári í Vestmannaeyjum seint í gærkvöld. Hann og tveir aðrir piltar á sama aldri höfðu tekið í sundur sprengjutertu og ætlað að sprengja upp. Betur fór en áhorfðist í fyrstu því sprengjan sprakk við augabrún piltsins og augað slapp við skaða.

Hann hlaut sár á andliti og var fluttur á Heilbrigðisstofnunina í Eyjum.

Lögreglan brýnir fyrir ungmennum að fikta ekki með flugelda.

Þá var talsverður erill í Eyjum í nótt og voru þar fimm lögregluútköll vegna slagsmála og pústra.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×