Efsti kylfingur á heimslista á yfir höfði sér fjórar ákærur Kylfingurinn Scottie Scheffler, efsti maður á heimslista, á yfir höfði sér fjórar ákærur í kjölfar þess að hann var handtekinn á vettvangi banaslyss í morgun eftir að hafa virt lokanir lögreglunnar að vettugi. Banaslysið átti sér stað rétt hjá Valhalla vellinum í Kentukcy þar sem að PGA meistaramótið í golfi er nú haldið. 17.5.2024 13:07
Grín sem snerist mjög fljótt upp í alvöru Valsmenn standa nú í sporum sem Mulningsvélin svokallaða stóð í fyrir 44 árum. Framundan úrslitaeinvígi í Evrópubikarnum í handbolta. Þorbjörn Jensson var einn af prímusmótorunum í Evrópuævintýri Vals árið 1980. Þátttöku liðsins í Evrópukeppni var fyrst fleygt fram í gríni. Grín sem varð fljótt að mikilli alvöru. 17.5.2024 10:00
„Ef hann á slæmt mót þá endar hann samt í topp tíu“ Annað risamót ársins í golfheiminum hefst seinna í dag þegar að kylfingar hefja fyrsta hring á PGA meistaramótinu á Valhalla vellinum í Kentucky. Þrír kylfingar eru taldir líklegastir til afreka á mótinu sem gæti verið leikið við meira krefjandi aðstæður en vanalega. Og sem fyrr eru augu margra á Tiger Woods. 16.5.2024 13:01
Fabiana brýtur blað í sögunni áður en Jói Kalli tekur við Blað verður brotið í sögu deildarkeppni karla í fótbolta í Danmörku á morgun þegar að Fabiana Alcalá verður fyrsta konan til þess að stýra karlaliði. Fabiana stýrir AB gegn Nykobing á morgun í 2.deildinni en Jóhannes Karl Guðjónsson var í gær ráðinn AB. 16.5.2024 12:05
Feðgar þjálfa Breiðablik: „Gott fyrir okkur báða að vera saman“ Feðgarnir Hrafn Kristjánsson og Mikael Máni Hrafnsson munu saman þjálfa karlalið Breiðabliks í fyrstu deildinni í körfubolta á næsta tímabili. Eðlileg lokun á einhvers konar hring segir faðirinn en Mikael hefur verið, frá sex ára aldri, með einhverjum hætti viðloðandi hans þjálfaraferil. 16.5.2024 10:01
„Okkur dauðlangar í meira“ Það er óhætt að segja að komandi dagar séu ansi mikilvægir fyrir karlalið Vals í handbolta sem að leikur þrjá úrslitaleiki á næstunni. Úrslitaleiki sem gæti fjölgað nokkuð ört gangi allt að óskum hjá Óskari Bjarna Óskarssyni, þjálfara liðsins og leikmönnum hans. Fyrsti úrslitaleikurinn á sér stað í kvöld þar sem að Valur mætir, með bakið upp við vegg, Aftureldingu á heimavelli í undanúrslitum Olís deildarinnar. 15.5.2024 12:31
Rúnar Ingi skiptir um stól í Njarðvík Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari kvennaliðs Njarðvíkur verður næsti þjálfari karlaliðs félagsins í körfubolta. Þetta herma heimildir Vísis og sömuleiðis bendir margt til þess að Einar Árni Jóhannsson taka við kvennaliði Njarðvíkur af Rúnari Inga. 15.5.2024 11:59
„Skulda mér mikinn pening þarna hjá Lyngby“ „Þeir skulda mér mikinn pening þarna hjá Lyngby,“ sagði Freyr Alexandersson, fyrrverandi þjálfari Lyngby í kímni og hló svo dátt í kjölfarið að sögn blaðamanns Tipsbladet sem náði í skottið á honum áðan til að spyrja út í möguleg félagsskipti Andra Lucasar Guðjohnsen frá Lyngby til belgíska úrvalsdeildarfélagsins Gent sem virðist nálægt því að kaupa íslenska landsliðsframherjann. 12.5.2024 12:23
Meiðslavandræði Vestra virðast engan enda ætla að taka Nýliðar Vestra í Bestu deildinni hafa heldur betur fengið vænan skammt af meiðslavandræðum í upphafi frumraunar sinnar í Bestu deildinni. Félagið greindi frá því í morgun að miðjumaðurinn Fatai Gbadamosi sé rifbeinsbrotinn og verður hann frá í tólf vikur. 12.5.2024 12:01
Kveðjuleikur Klopp í hættu? | „Meðvitaður um stöðuna“ Fari svo að Jurgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, fái gult spjald í leik Liverpool á móti Aston Villa á mánudaginn kemur er ljóst að hann mun ekki geta verið á hliðarlínunni í síðasta leik sínum á Anfield gegn Wolves í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar. 10.5.2024 13:31