Spurning vikunnar: Hitti maki þinn í mark með gjöfinni í ár? „Jólagjöfin er ég og þú“ - Já, bara ef það væri svo einfalt. Það getur stundum verið snúið að velja gjöf handa ástinni sinni, væntingarnar geta verið miklar og upplifa sumir jafnvel pressu og stress við valið. Flestir eru þó sammála um það að hugurinn á bak við gjöfina er það sem skiptir mestu máli. 25.12.2020 08:00
Móðurmál: Meðvituð um gamlar átröskunarhugsanir á meðgöngu „Ég glímdi við átröskun þegar ég var yngri og var því stressuð fyrir því að ég ætti erfitt með að sjá líkamann breytast á meðgöngunni. Það var ekki eins erfitt og ég hélt, en ég vandaði mig líka. Ég var mjög meðvituð frá degi eitt um að gera mitt besta í að leyfa gömlum hugsunum ekki að hafa áhrif á þetta fallega ferli,“ segir Ída Pálsdóttir í viðtalsliðnum Móðurmál. 23.12.2020 20:01
Erótísk skáldsaga með grafískum kynferðislegum lýsingum „Það er búið að vera draumur hjá mér í mörg ár að skrifa skáldsögu en efnið var lengi að koma til mín. Sennilega er þetta búið að gerjast í einhvern tíma í undirmeðvitundinni. Loksins settist ég niður og ákvað að það væri áskorun að dansa aðeins á línunni og skrifa erótískar senur inn í söguna og draga þar ekkert undan,“ segir Fanney Sif Gísladóttir í samtali við Makamál. 21.12.2020 20:09
Mikill áhugi á kynlífsklúbbum Skilgreiningin á kynlífsklúbb eru staðir eða klúbbar sem virka eins og dæmigerðir skemmtistaðir en eiga það sameiginegt að bjóða upp á einhverskonar aðstöðu fyrir fólk til að stunda þar kynlíf. Þessir klúbbar geta verið mjög fjölbreyttir, ætlaðir mismunandi kynhegðun og kynhneigðum og gilda ólíkar húsreglur eftir því. 20.12.2020 19:55
Móðurmál: Gaf kærastanum pakka með óléttuprófi á bóndadaginn „Covid hefur haft áhrif á líf mitt eins og annarra en þegar kemur að meðgöngu og tilkomu dóttur minnar þá hefur það einna helst haft þau áhrif að ég hef þurft að sækja flestar skoðanir ein. Ég þurfti að fara í sónar ein, í mæðraverndina og svo hóf ég fæðingarferlið ein en kærastinn minn fékk ekki að koma fyrr en ég var komin af stað í virka fæðingu. Þá hafa mun færri af fjölskyldu og vinum hitt dóttur mína þrátt fyrir að hún sé orðin tveggja mánaða gömul. Mér þykir það mjög leitt,“ segir Sigríður Þóra í viðtalsliðnum Móðurmál. 19.12.2020 08:25
Kendall Jenner, Cher og Katy Perry hafa óskað eftir flíkum úr nýrri línu Hildar Yeoman „Við vorum beðin um að hanna fyrir goðsögnina hana Cher og upp úr því verkefni spratt þessi lína sem við köllum einfaldlega, Cheer-up! Þetta er mjög lítrík og skemmtileg lína sem mætti segja að væri óður til gleðinnar,“ segir fatahönnuðurinn og listakonan Hildur Yeoman í samtali við Vísi. 18.12.2020 20:01
Spurning vikunnar: Veldur jólaundirbúningurinn álagi á sambandið? Jólin eru tími kærleiks og friðar. Er það ekki annars? Af einhverjum óútskýranlegum ástæðum þá finnum við okkur mörg hver knúin til að skrifa niður ævintýralega langan verkefnalista fyrir jólin. Það þarf að þrífa ofan af skápunum, mála baðherbergið, hengja upp myndir í stofunni, baka fimm sortir, grafa lax, skreyta heimilið, búa til jólasultuna og kaupa allar jólagjafirnar. 18.12.2020 07:58
„Langar á deit með sætum íslenskum manni“ „Ég er búin að fá ótrúlega mikil viðbröð, þetta sprakk eiginlega pínulítið í höndunum á mér og núna er ég búin að fá fullt af skilaboðum og vinabeiðnum,“ segir Ólöf Rut Fjeldsted í samtali við Makamál. Ólöf vakti mikla athygli fyrir innlegg sitt síðastliðið mánudagskvöld í Facebook-hópnum Íslendingar í Danmörku þar sem hún óskaði eftir því að komast á stefnumót með íslenskum manni. 16.12.2020 20:00
Þriðjungur segist sakna fyrrverandi maka Í síðustu viku spurðum við lesendur Vísis hvort að þeir söknuðu fyrrverandi maka. Eftir sambandsslit er ekki óalgengt að annar eða báðir aðilar finni fyrir söknuði, sérstaklega ef sambandið hefur varað lengi. Stundum er það þessi söknuður sem getur gert fólk ringlað og valdið því að það efast um að sambandsslitin hafi verið rétt ákvörðun. 13.12.2020 21:35
Einhleypan: „Kynvilla og kampavín“ Hlýr, hýr og hrókur alls fagnaðar eru orð sem vinir Einhleypu vikunnar myndu nota til að lýsa honum. Sjálfur segist hann fyrst og fremst titla sig sem Ólafsfirðing sem elskar að fara í sjósund, ferðast og ganga á fjöll. Kynnumst Vilhjálmi Þór Davíðssyni aðeins betur. 13.12.2020 19:51