Segir Bjarna ekki geta „bæði átt kökuna og étið hana“ Stjórnarandstaðan telur að afsögn fjármálaráðherra hljóti að þýða að hann hætti í ríkisstjórn. Ella sé um að ræða sýndarmennsku. Þá hafi forsætisráðherra brugðist í Íslandsbankamálinu. 11.10.2023 22:03
Telur að forsætisráðherra hefði átt að óska eftir afsögn fyrir löngu Fyrrverandi fjármálaráðherra telur að forsætisráðherra hefði átt að fara fram á að Bjarni Benediktsson segði af sér ráðherraembætti um leið og kom í ljós að faðir hans var á meðal kaupenda að hlut ríkisins í Íslandsbanka. Samkvæmt lögum hefði fjármálaráðherra átt að vita af aðild föður síns þegar hann samþykkti að selja hlutinn í bankanum. Þá myndi það hvergi gerast í nágrannalöndum að ráðherra sem segir af sér embætti sé samstundis orðaður við annan ráðherrastól. 11.10.2023 12:30
Furða sig yfir að rannsóknin nái ekki yfir allan tímann Fólk sem var vistað á Vöggustofu Thorvaldsensfélagsins gagnrýnir að heimilið hafi ekki verið rannsakað allan þann tíma sem það starfaði. Vísbendingar séu um að börn hafi sætt illri meðferð þar allt til ársins 1979. Ráðherra býst við að sanngirnisbætur verði ákveðnar í vetur. 6.10.2023 22:22
Hamingjan ræðst ekki af peningum Aldrei hafa færri verið hamingjusamir hér á landi og og andlegri heilsu þjóðarinnar hrakar stöðugt. Þá er ungt fólk kvíðnara og meira einmana en áður. Sviðsstjóri hjá Landlæknisembættinu segir samfélagið hafa einblínt um of á hagvöxt og tekjur, í stað velsældar og félagslegra tengsla. 22.9.2023 20:01
Hætta á að verðmætum verði glutrað niður Ísland er eitt fárra landa í heiminum sem hefur ekki kortlagt jarðauðlindir sínar eins og heitt og kalt vatn. Forstjóri Ísor segir um mikilvægustu auðlindir mannskyns að ræða og gríðarlega mikilvægt að hraða rannsóknum. Nú sé hætta á að verðmætum verði glutrað niður. 22.9.2023 17:21
„Einhvers staðar þarf allt þetta fólk að búa“ Húsnæðismálin eru ein stærsta áskorun sveitarfélaga hér á landi að sögn formanns þeirra. Hún kallar eftir auknum framlögum frá ríkinu. Fjármálaráðherra segir stjórnvöld hafa staðið við skuldbindingar sínar við sveitarfélögin. Hann hefur hins vegar áhyggjur af fækkun nýbygginga. 21.9.2023 21:00
„Við erum á tánum“ Viðskiptabankarnir gætu búist við holskeflu viðskiptavina á næstu mánuðum vegna aukinnar greiðslubyrði fasteignalána. Seðlabankastjóri segir að verðbólga þurfi að minnka svo áfram verði hægt að bjóða upp á óverðtryggða vexti. 20.9.2023 20:00
Sjálfhætt með óverðtryggða vexti ef verðbólga hjaðnar ekki Greiðslubyrði heimilanna hefur þyngst þrátt fyrir að áhrif vaxtahækkana Seðlabankans séu enn ekki komin fram af fullum þunga. Seðlabankastjóri hvetur heimilin enn á ný að huga að endurfjármögnun lána. Greiðslubyrðin eigi ekki að vera meira en 35 prósent af ráðstöfunartekjum. 20.9.2023 12:21
„Augljóst að það er ekki traust til fjármálaráðherra að selja Íslandsbanka“ Búist er við miklum átökum á Alþingi í vetur þegar ríkisstjórnin leggur fram mörg umdeild frumvörp. Þingmenn stjórnarandstöðunnar spá því að efnahagsmálin verði umfangsmikil og treysta ekki fjármálaráðherra til að selja Íslandsbanka. Ríkisstjórnin er sögð rúin trausti. 13.9.2023 18:31
Gert ráð fyrir aukinni gjaldtöku af rafbílum Gert er ráð fyrir aukinni gjaldtöku af rafbílum í nýju fjárlagafrumvarpi. Innleitt verður nýtt tekjuöflunarkerfi í tveimur áföngum. Fjármálaráðherra segir ríkið hafa gefið of mikið eftir af heildartekjum vegna rafbíla. Áfram verði hagkvæmara að eiga rafbíl. 12.9.2023 10:06