Valbjörg Elsa heiðursiðnaðarmaður ársins Valbjörg Elsa Haraldsdóttir hársnyrtimeistari var um helgina útnefnd heiðursiðnaðarmaður ársins á nýsveinahátíð Iðnaðarmannafélagsins í Reykjavík. Böðvar Páll Ásgeirsson var gerður að heiðursfélaga en forseti Íslands er verndari hátíðarinnar og afhenti verðlaunin. 7.2.2023 16:39
Dreifing á nektarmyndum af eiginmanni ekki „lostugt athæfi“ Kona var í dag sýknuð af ákæru um að hafa aflað sér og dreift nektarmynd af þáverandi eiginmanni sínum og tveimur nektarmyndum af annarri konu sem maðurinn var í samskiptum við. Samkvæmt dómi telst háttsemin ekki „lostugt athæfi“. 7.2.2023 16:08
Þóra Arnórsdóttir til Landsvirkjunar Þóra Arnórsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður samskipta og upplýsingamiðlunar hjá Landsvirkjun. Þóra hætti störfum hjá RÚV fyrr í vikunni eftir 25 ára starf í fjölmiðlum. 7.2.2023 15:55
Fyrsta trans persóna veraldar Harry Potter Í nýjum tölvuleik um Hogwarts-skólann má finna fyrstu trans persónu veraldarinnar í kringum galdramanninn Harry Potter. J.K. Rowling, höfundur bókanna um Potter, hefur verið gagnrýnd fyrir að afneita tilvist trans fólks. 7.2.2023 13:47
Margt sem bendi til svipaðrar þróunar og fyrir hrun Margt bendir til þess að á Íslandi gætu farið að gerast hlutir sem ekkert eru ósvipaðir því sem gerðist við aðdraganda hruns að sögn formanns VR. Efnahagsráðgjafi SA segir stöðuna vera snúna en með mjög litlum hætti sambærilega við hvernig hún var stuttu fyrir hrun. 7.2.2023 11:54
Umsóknir um alþjóðlega vernd aldrei verið fleiri Umsóknir um alþjóðlega vernd á Íslandi árið 2022 voru 4.518 talsins en árið 2021 voru þær 875. Því er um að ræða rúma fimmföldum á umsóknum. Rúmur helmingur umsókna kom frá fólki á flótta frá Úkraínu í kjölfar innrás Rússa í landið. 7.2.2023 10:05
Sölumet slegið hjá Play í janúar Sölumet var slegið hjá Play í janúarmánuði og var bókunarstaðan mjög sterk. Flugfélagið flutti 61.798 farþega í janúar með 76,8 prósent sætanýtingu. Mest var nýtingin í flugi til Tenerife og Parísar, í kringum níutíu prósent. 7.2.2023 09:14
Kynntist eiginmanninum átján ára og er að springa úr þakklæti Leikkonan Birna Rún Eiríksdóttir og Ebenezer Þórarinn Einarsson, sérfræðingur í markaðssetningu hjá Digido gengu í það heilaga á föstudaginn. Birna greinir frá þessu í færslu á Facebook-síðu sinni og um leið ástæðunni fyrir því að hún valdi að giftast Ebba sínum. 5.2.2023 17:01
Tíu létust í snjóflóðum í Ölpunum Tíu manns létu lífið um helgina í snjóflóðum á ýmsum stöðum, bæði í austurríska og svissneska hluta Alpafjallanna. Meirihluti þeirra látnu voru erlendir ferðamenn. 5.2.2023 16:18
Guli liturinn tekur yfir landið á þriðjudag Gul veðurviðvörun verður í gildi á öllu landinu á þriðjudaginn milli klukkan sjö um morgun og sex að kvöldi til. 5.2.2023 15:59