Fréttamaður

Elísabet Hanna

Nýjustu greinar eftir höfund

Voru flutt inn saman eftir mánuð

Hlaupagarpurinn og þjálfarinn Sigurjón Ernir Sturluson og Simona Vareikaité kynntust í ræktinni. Þau náðu þó ekki saman fyrr en eitt örlagaríkt kvöld þegar þau fundu hvort annað fyrir utan skemmtistaðinn Austur. Í dag reka þau líkamsræktarstöðina Ultraform, hugmynd sem byrjaði í bílskúrnum árið 2017.

„Mér finnst vanta svona alvöru dívu borgara“

Útvarpsmaðurinn Gústi B plataði söngvarann Eyþór Inga til þess að taka símahrekk sem tónlistarmaðurinn Páll Óskar. Líkt og þekkt er hefur Eyþór einstakt lag á eftirhermum og nýtti hæfileikann í símtalinu.

Fyrsta sýnishornið úr sjónvarpsþáttunum Húgó

Sjónvarpsþættirnir Húgó fara í loftið á Stöð 2 í næstu viku en í þeim verður farið yfir sögu tónlistarmannsins. Mikil leynd hefur ríkt fyrir því hver sé á bak við grímuna.

„Bane“ vann brasilískt jiu-jitsu mót

Leikarinn Tom Hardy gerði sér lítið fyrir og tók heim gullverðlaun á brasilísku jiu-jitsu móti á Englandi um helgina. Samkvæmt the Guardian vann hann alla bardagana sína á mótinu. Netverjar hafa grínast með hvernig það sé fyrir aðra keppendur í íþróttinni að þurfa að mæta „Bane“.

Mark Zuckerberg og Priscilla Chan fjölga mannkyninu

Mark Zuckerberg, stofnandi Facebook, og eiginkona hans Priscilla Chan eiga von á sínu þriðja barni saman. Hjónin fögnuðu tíu ára brúðkaupsafmælinu sínu hér á Íslandi í maí þessa árs.

Adam Levine segist hafa farið yfir línuna en neitar framhjáhaldi

Söngvarinn Adam Levine hefur svarað þeim ásökunum að hafa átt í framhjáhaldi með áhrifavaldinum Sumner Stroh. Hann segist hafa farið yfir línuna en þó ekki hafa staðið í framhjáhaldi. Stroh bjó til TikTok myndband þar sem hún sagði frá sambandinu. 

Vinir Cöru Delevingne hafa miklar áhyggjur af heilsu hennar

Heilsa fyrirsætunnar Cöru Delevingne hefur verið mikið í umræðunni vestanhafs og virðast vinir hennar hafa miklar áhyggjur. Leikkonan Margot Robbie sást meðal annars koma grátandi út af heimili Cöru sama dag og fyrirsætan átti að vera á viðburði sem hún mætti ekki á. 

Segist hafa verið viðhald Adam Levine

Áhrifavaldurinn Sumner Stroh segist hafa verið viðhald Maroon 5 söngvarans Adam Levine. Hún segir sambandið hafa staðið yfir í ár. Óljóst er hvenær meintu sambandi lauk en hún segir þau ekki hafa átt í samskiptum í nokkra mánuði. Nýlega tilkynnti Adam að von sé á þriðja barni hans og eiginkonu sinnar Behati Prinsloo.

Sjá meira