Sýknaður af nauðgun en enginn vafi að konan telji á sér brotið Karlmaður hefur verið sýknaður af ákæru um nauðgun af Héraðsdómi Austurlands. Segir í dómnum að ekki hafi verið færð nógu sannfærandi rök fyrir því að manninum hafi verið ljóst að hann gengi gegn vilja konunnar. Enginn vafi sé þó hjá dómnum að konan telji að á sér hafi verið brotið. 9.5.2024 17:01
Baulað á keppanda Ísrael á æfingu Hótanir hafa borist ísraelska Eurovision-teyminu og keppandinn hefur varla yfirgefið hótelherbergi sitt vegna þessa. Baulað var á hana á æfingu í gær en hún stígur á svið í Malmö í kvöld, á síðara undanúrslitakvöldi keppninnar. 9.5.2024 16:30
Börnum safnað saman og þau skotin Börnum var safnað saman og þau skotin til bana í umfangsmiklum þjóðernishreinsunum í Darfur-héraði Súdan síðasta sumar. Þetta kemur fram í vitnisburði hundruð manna, sem mannréttindasamtökin Human Rights Watch hafa safnað. 9.5.2024 16:01
Tónlistarframleiðandinn Steve Albini látinn Tónlistarmaðurinn og -framleiðandinn Steve Albini er látinn. Albini lést á þriðjudag, 7. maí, 61 árs gamall af völdum hjartaáfalls. Albini er þekktur fyrir að hafa leitt rokkhljómsveitirnar Shellac og Big Black en auk þess framleiddi hann margar klassískar rokkplötur. 9.5.2024 16:00
Backstreet-strákur kominn aftur til Íslands AJ McLean, einn meðlima hljómsveitarinnar Backstreet Boys, lenti á Íslandi í morgun. Rétt rúmt ár er síðan sveitin hélt sína fyrstu tónleika hér á landi en erindi AJ er annað að þessu sinni. Hann er hingað kominn til að gefa saman vinapar sitt. 9.5.2024 15:32
Fylgi Höllu hrundi eftir kappræðurnar á RÚV Marktæk breyting varð á fylgi Höllu Hrundar Logadóttur, forsetaframbjóðanda, eftir kappræðurnar á RÚV 3. maí síðastliðinn. Fyrir kappræðurnar sögðust 33 prósent ætla að kjósa Höllu en tæplega 23 prósent eftir kappræðurnar. 9.5.2024 14:58
Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Reyk lagði yfir landamæraborgina Rafah á Gasaströndinni og sprengingar heyrðust í morgun eftir að Ísraelsher gerði árás á austurhluta borgarinnar. Heilbrigðisstarfsmenn í borginni segja þrjá hafa verið skotna til bana í skriðdrekaárás við mosku í morgun. 9.5.2024 13:37
Byrjaði að hlaupa til að sýna fyrrverandi í tvo heimana Ofurhlaupakonan Mari Järsk tók þátt í sínu fyrsta langhlaupi eftir að fyrrverandi kærastinn hennar tjáði henni að hann ætlaði að taka þátt í Esju Ultra hlaupinu. Hún skráði sig til leiks án þess að hafa nokkra reynslu og endaði í þriðja sæti. 9.5.2024 13:00
Ellefu slasaðir eftir að flugtak Boeing 737 mistókst Ellefu slösuðust, þar af fjórir alvarlega, þegar Boeing 737-300 flugvél hrapaði við flugtak á Blaise Diagne flugvellinum í Dakar í Senegal. Öll starfsemi á flugvellinum hefur verið stöðvuð vegna slyssins. 9.5.2024 11:56
Rannsókn vegna meints manndráps í Kiðjabergi miðar vel Rannsókn lögreglunnar á Suðurlandi vegna meints manndráps í sumarhúsi í Kiðjabregi 20. apríl miðar vel að sögn yfirlögregluþjóns. Gæsluvarðhald yfir tveimur litháískum karlmönnum rennur út á morgun og verður tekin ákvörðun síðar í dag hvort farið verði fram á að það verði framlengt. 9.5.2024 10:56