Viðræður um fangaskipti og vopnahlé mjakast áfram Joe Biden Bandaríkjaforseti sagðist í gær telja að samkomulag um vopnahlé og lausn gísla í haldi Hamas myndi mögulega liggja fyrir eftir um það bil viku. „Við erum nálægt því. Við erum ekki búin ennþá. Ég vona að á mánudag verði vopnahlé í höfn,“ sagði forsetinn. 27.2.2024 07:37
Ekki talinn hæfur til að vera meðal almennings Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sinnti ýmsum verkefnum í nótt og var meðal annars kölluð til vegna einstaklings í annarlegu ástandi í miðborginni. Var viðkomandi metinn óhæfur til að vera á meðal almennings og vistaður í fangageymslu. 27.2.2024 06:52
Macron útilokar ekki að senda hermenn inn í Úkraínu Emmanuel Macron Frakklandsforseti vildi ekki útiloka í gær að hermenn Evrópuríkja yrðu sendir inn í Úkraínu. Ítrekaði hann hins vegar að ekkert samkomulag lægi fyrir þar að lútandi. 27.2.2024 06:44
Segir Pútín hafa hætt við yfirvofandi fangaskipti og látið myrða Navalní Andófsmaðurinn Alexei Navalní var í þann mund að verða frjáls maður þegar hann lést skyndilega í fangelsi í Rússlandi 15. febrúar síðastliðinn. 26.2.2024 12:56
Ríkisstjórn Palestínu segir af sér Mohammad Shtayyeh, forsætisráðherra Palestínu frá árinu 2018, greindi frá því á blaðamannafundi í morgun að hann hefði afhent forsetanum Mahmoud Abbas afsagnarbréf fyrir hönd ríkisstjórnar sinnar. 26.2.2024 09:14
Skaðabótakröfu konu vísað frá eftir að hún sigrar jólatréskastkeppni Dómstóll í Limerick á Írlandi hefur vísað frá máli konu sem krafði tryggingafélag sitt um 650 þúsund pund vegna meiðsla sem hún hlaut í bílslysi. Dómarinn tók ákvörðunina eftir að hafa séð mynd af konunni kasta jólatré. 26.2.2024 08:20
Tóku út gremju sína á leigubifreið og lögreglustöð Sex gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt, meðal annars einstaklingur sem fjarlægja þurfti af bar í miðbænum. Gat hann ekki greint frá því hvar hann ætti heima og fékk því að sofa úr sér hjá lögreglu. 26.2.2024 06:54
Kveikti í sér fyrir utan sendiráð Ísrael í Washington D.C. Maður var fluttur á sjúkrahús í gær eftir að hafa kveikt í sér fyrir utan sendiráð Ísraels í Washington D.C. í Bandaríkjunum. Hann er sagður hafa kallað „Frjáls Palestína“ áður en hann hellti yfir sig olíu og bar eld að sér. 26.2.2024 06:40
Valkvæðum liðskiptaaðgerðum fjölgaði um 60 prósent og biðin styttist Valkvæðar liðskiptaaðgerðir á mjöðmum og hnjám voru 2.138 árið 2023 og hafa aldrei verið fleiri. Aðgerðunum fjölgaði um rúmlega 800 milli ára, eða sem nemur 60 prósent. 23.2.2024 10:21
Að minnsta kosti fjórir látnir í eldsvoðanum í Valencia Að minnsta kosti fjórir eru látnir og fjórtán slasaðir eftir að eldur braust út í Valencia á Spáni í gær og gleypti stórt og mikið fjölbýlishús. Nítján er enn saknað. 23.2.2024 08:28