Selja allan fimmtungshlut sinn í fjárfestingafélaginu Streng Félög sem er stýrt af fjárfestunum Jóni Ásgeir Jóhannessyni og Sigurði Bollasyni hafa stækkað óbeinan eignarhlut sinn í SKEL fjárfestingafélagi eftir að hafa keypt samanlagt tuttugu prósenta hlut í Strengi. Seljendur bréfanna eru viðskiptafélagarnir Þórarinn Arnar Ævarsson og Gunnar Sverrir Harðarson en þeir fá meðal annars afhend bréf í Kaldalón í viðskiptunum og eru nú orðnir einir stærstu hluthafar fasteignafélagsins. 20.6.2023 09:17
Fjármögnun bankakerfisins er að fara verða „snúnari“ en áður Breytinga er að vænta í áherslum íslensku bankanna við fjármögnun á markaði og ljóst að þeir munu þurfa að breikka kaupendahópinn að ótryggðum skuldabréfum samhliða því að þau verða í meira mæli gefin út á innanlandsmarkaði. Markaðsfjármögnun bankakerfisins, sem hefur orðið mun dýrari síðustu misseri vegna umróts og óvissu á alþjóðamörkuðum, er að fara verða „erfiðari“ en áður, að sögn seðlabankastjóra. 17.6.2023 11:38
Fimm sjóðir keyptu nær helming seldra bréfa í útboði Hampiðjunnar Íslenskir lífeyrissjóðir voru fyrirferðamestir í hlutafjárútboði Hampiðjunnar sem lauk í byrjun þessa mánaðar og keyptu stóran hluta þeirra bréfa sem var úthlutað til stærri fjárfesta. Þar munaði mestu um LSR sem er kominn í hóp allra stærstu hluthafa veiðarfæraframleiðandans eftir kaup sjóðsins. 15.6.2023 10:14
Mikill meirihluti hluthafa VÍS samþykkti kaup á Fossum Mikill meirihluti hluthafa VÍS hefur samþykkt tillögu stjórnar tryggingafélagsins að kaupa Fossa fjárfestingabanka. Þriðji stærsti hluthafi félagsins, lífeyrissjóðurinn Gildi, hafði lagst gegn kaupunum í aðdraganda fundarins. 14.6.2023 17:04
Skuldsett fasteignafélög ekki sama áhættan hér á landi og víða erlendis Þrátt fyrir að fasteignafélög séu viðkvæm fyrir hækkandi vöxtum, einkum þau sem hafa verið að reiða sig á stutta fjármögnun, þá telur Seðlabankinn skuldsetningu á atvinnuhúsnæðismarkaði ekki vera sérstakan áhættuþátt fyrir fjármálastöðugleika. Ólíkt því sem þekkist í sumum nágrannaríkjum þá er ekki offramboð af atvinnuhúsnæði hér á landi auk þess sem það vinnur með félögunum að vera að stórum hluta með verðtryggðra leigusamninga og hátt nýtingarhlutfall, að sögn seðlabankastjóra. 14.6.2023 10:51
Lífeyrissjóðir færast nær því að fjárfesta í Controlant fyrir milljarða Sumir af stærri lífeyrissjóðum landsins eru langt komnir í viðræðum um samanlagt meira en fimm milljarða króna fjárfestingu í Controlant sem er að auka hlutafé sitt og eins að sækja lán hjá erlendum sjóðum til að hraða enn frekar vaxtaráætlunum félagsins. Á aðalfundi síðar í vikunni verður stokkað upp í stjórn hátæknifyrirtækisins og til stendur að fyrrverandi forstjóri Maersk, stærsta skipaflutningafélags í heimi, komi þar nýr inn og muni síðar taka við stjórnarformennsku í Controlant. 13.6.2023 16:27
Ísfélagið metið á minnst 80 milljarða króna eftir samruna Ísfélagið, sameinað fyrirtæki Ísfélags Vestmannaeyja og Ramma á Siglufirði, er verðmetið á liðlega 80 milljarða króna samkvæmt tillögu að heimild til endurkaupa sem verður lögð fram á hluthafafundi félagsins í vikunni. Hluthafar Ramma munu fara með tæplega þriðjungshlut í Ísfélaginu. 12.6.2023 15:56
Nýtur stuðnings stóru sjóðanna en óvíst með afstöðu Brimgarða Hópur fjárfesta sem ræður yfir talsverðum meirihluta hlutafjár í Eik, einkum lífeyrissjóðir, hefur í markaðsþreifingum sem hófust fyrr í vikunni tekið jákvætt í yfirtökutilboð Regins en íslensku fasteignafélögin hafa átt undir högg að sækja á hlutabréfamarkaði um nokkurt skeið. Langsamlega stærsti hluthafi Eikar er fjárfestingafélagið Brimgarðar, með rúmlega fjórðungshlut, en með sameinuðu félagi er meðal annars horft til þess að ná fram hagstæðari fjármögnun og meira floti á bréfum þess. 8.6.2023 13:28
Seðlabankastjóri: Verðbólgan gæti hjaðnað hraðar en spár gera ráð fyrir Vísbendingar eru um að verðbólgan kunni að ganga hraðar niður en hagspár gera ráð fyrir, að sögn seðlabankastjóra, og vísar þar meðal annars til þess að hrávöruverðshækkanir erlendis eru að koma til baka auk þess sem væntingar eru um að gengi krónunnar eigi eftir að styrkjast. Hann segir til mikils að vinna að stigin verði frekari trúverðug skref í ríkisfjármálum til að ná niður verðbólguvæntingum á skuldabréfamarkaði sem muni þá um leið lækka ávöxtunarkröfu langra ríkisbréfa. 7.6.2023 16:46
Brýnir fyrir bönkum að huga „tímanlega“ að þyngri greiðslubyrði lántaka Mikilvægt er að bankarnir grípi tímanlega til aðgerða til að fyrirbyggja greiðsluerfiðleika hjá heimilum og fyrirtækjum vegna þyngri greiðslubyrði, að sögn fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans, sem telur viðnámsþrótt fjármálakerfisins vera góðan. 7.6.2023 09:03