Tveir látnir eftir skotárás í Brussel Minnst tveir eru látnir eftir skotárás í Brussel, höfuðborg Belgíu. Árásin átti sér stað klukkan sjö í kvöld að staðartíma. Hæsta viðbúnaðarstig vegna hryðjuverka hefur verið virkjað. 16.10.2023 19:36
„Á ég ekki bara að kýla þig einu sinni og þá erum við kvitt?“ Héraðssaksóknari hefur ákært mann fyrir nokkur brot gegn fyrrverandi unnustu sinni á heimili hennar á Akureyri í þrjú skipti í janúar á síðasta ári. 16.10.2023 07:00
Áflog tveggja með steypuklumpi í strætóskýli á Akranesi Tveir menn hafa verið ákærðir fyrir að ráðast gegn hvorum öðrum við Strætóstoppustöð á Akranesi í mars í fyrra. 15.10.2023 20:00
Ákærður fyrir að káfa á konu í sundi Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir kynferðislega áreitni sem átti sér stað í sundlaug. 13.10.2023 23:48
„Mest þakklátur fyrir að dóttir mín hafi sloppið“ Oddur Þórir Þórarinsson lenti í bílslysi á Hellisheiðinni síðastliðinn mánudag. Með honum í bílnum var dóttir hans, sem er á öðru ári. Þau hafa fundið fyrir minni háttar áverkum og segist Oddur þakklátur fyrir að ekki hafi farið verr. Hann veltir þó fyrir sér hvort stjórnvöld geti ekki gripið til aðgerða sem myndu fækka slysum sem þessum. 13.10.2023 18:46
Grunaður um að höggva litla fingur manns með sveðju Karlmaður hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás gagnvart öðrum manni sem á að hafa átt sér stað á heimili hans í nóvember í fyrra. 13.10.2023 14:28
Jada segir Chris Rock hafa boðið sér á stefnumót Leikkonan Jada Pinkett Smith heldur því fram að grínistinn Chris Rock hafi boðið sér á stefnumót. Það hafi gerst þegar hún var gift Will Smith, en fyrr í vikunni greindi hún frá því að þau væru búin að vera skilin á borði og sæng í sjö ár. 13.10.2023 14:10
Óviðkomandi fletti upp reikningum fimm þúsund viðskiptavina Veitna Öryggisbrestur varð í vefkerfi Orkuveitu Reykjavíkur sem varð til þess að óviðkomandi einstaklingur fletti upp orkureikningum fimm þúsund viðskiptavina Veitna. Orkuveita Reykjavíkur greinir frá þessu, en málið hefur verið tilkynnt til Persónuverndar og kært til lögreglu. Í tilkynningunni segir að málið sé litið alvarlegum augum. 13.10.2023 11:04
Ná samkomulagi um kaup á Heimstaden Sparisjóðurinn Stefnir og Fredensborg AS, eigandi Heimstaden ehf., hafa komist að samkomulagi um möguleg kaup sjóðs á vegum Stefnis á öllu hlutafé í Heimstaden á Íslandi. 12.10.2023 17:01
Datt í Sundhöllinni og fær þrjár og hálfa milljón Landsréttur hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þar sem Reykjavíkurborg var dæmd skaðabótaskyld í máli konu sem lenti í slysi í sundi. Borginni er gert að greiða konunni rúmar þrjár og hálfa milljón í skaðabætur, eða sömu bóta og konan hafði krafist. 12.10.2023 16:44