Límband mikilvægt sönnunargagn í frelsissviptingarmáli á Akureyri Lögreglu er heimilt að taka strokusýni úr munni manns sem er grunaður um líkamsárás, frelsissviptingu og fjárkúgunarbrot á heimili sínu á Akureyri í mars á þessu ári. Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Norðurlands eystra þess efnis. 13.9.2023 13:57
Strokufanginn gómaður eftir tveggja vikna flótta Danelo Cavalcante, morðingi sem hefur gengið laus síðustu tvær vikur, hefur verið gómaður. Hann slapp úr fangelsi í Pennsylvaníuríki Bandaríkjanna á ótrúlegan átt á dögunum. 13.9.2023 13:12
Losun gróðurhúsalofts rúmum sjö prósentum hærri Losun gróðurhúsalofts frá hagkerfi Íslands var rúmar þrjár milljónir tonna á fyrra helmingi þessa árs. Það er rúmlega sjö prósent aukning frá því í fyrra. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni, en tölurnar eru byggðar á bráðabirgðarreikningum. 13.9.2023 11:10
Svona verður stefnuræðu forsætisráðherra og umræðum háttað Stefnuræða Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra verður haldin klukkan 19:40 í kvöld. Að stefnuræðunni lokinni munu þingmenn frá hinum flokkunum halda sínar ræður. 13.9.2023 10:22
Arnar Geirsson frá Connecticut til New York Arnar Geirsson, hjartaskurðlæknir, hefur verið ráðinn forstöðumaður hjarta- og æðasjúkdómastofu og yfirskurðlæknir hjartalokuprógramms NewYork Presbyterian-sjúkrahússins og Irving læknamiðstöðvarinnar hjá Columbia-háskólanum í New York-borg. Hann er einnig skipaður prófessor í skurðlækningum við brjósthols- og æðaskurðlæknadeild Columbia-háskólans. 12.9.2023 16:13
Kynlífsmyndband frambjóðanda setur kosningar í Virginíu í uppnám Frambjóðandi Demókrataflokksins til fulltrúaþings Virginíuríkis Bandaríkjanna stundaði kynlíf með eiginmanni sínum í beinu streymi. Hún er meðal annars sögð hafa beðið áhorfendur um þjórfé gegn því að hún og eiginmaður hennar myndu framkvæma ákveðnar kynferðislegar athafnir. 12.9.2023 15:21
Látnir vita af manni „sem við viljum ekki að sé í kringum börnin okkar“ Foreldrar barna í Kársnesskóla í Kópavogi fengu um hádegisleytið í dag tölvupóst vegna einstaklings sem er sagður vera á ferð og eigi ekki að umgangast börn. Skólinn fékk ábendingar um þennan einstakling í dag, en hefur þó ekki orðið hans var. 12.9.2023 13:41
Þrír stjórnendur til Borealis Data Center Borealis Data Center hefur ráðið til starfa þrjá nýja stjórnendur. Það eru þau Bergþóra Halldórsdóttir, sem mun stýra skrifstofu forstjóra, Blake E. Greene verður markaðsstjóri Borealis og Kristófer Kristinsson mun leiða vöruþróun fyrirtækisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. 12.9.2023 13:10
Volaða land framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna Kvikmyndin Volaða land, eftir Hlyn Pálmason, verður framlag Íslands til Óskarsverðlauna á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni. 12.9.2023 12:08
Allir nema einn útskrifaðir eftir rútuslysið Allir nema einn af þeim aðilum sem voru fluttir á Landspítala eftir rútuslys við Blönduós síðastliðinn föstudag hafa verið útskrifaðir. Þetta staðfestir Karólína Gunnarsdóttir, þjónustustjóri á velferðarsviði Akureyrarbæjar, en þeir sem voru í rútunni voru starfsmenn bæjarins. 12.9.2023 11:13