Volaða land framlag Íslands til Óskarsverðlaunanna Kvikmyndin Volaða land, eftir Hlyn Pálmason, verður framlag Íslands til Óskarsverðlauna á næsta ári. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Íslensku kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni. 12.9.2023 12:08
Allir nema einn útskrifaðir eftir rútuslysið Allir nema einn af þeim aðilum sem voru fluttir á Landspítala eftir rútuslys við Blönduós síðastliðinn föstudag hafa verið útskrifaðir. Þetta staðfestir Karólína Gunnarsdóttir, þjónustustjóri á velferðarsviði Akureyrarbæjar, en þeir sem voru í rútunni voru starfsmenn bæjarins. 12.9.2023 11:13
Íslendingar frekar óánægðir með ákvörðun Svandísar Íslendingar virðast almennt óánægðir með ákvörðun Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra um að leyfa hvalveiðar með nýjum og hertum skilyrðum. Nær 43 prósent landsmanna eru óánægð með ákvörðunina en 35 prósent eru ánægð. Um 23 prósent eru hvorki ánægð né óánægð með ákvörðunina. Þetta kemur fram í niðurstöðum Þjóðarpúls Gallup. 12.9.2023 09:51
Leyniþjónustumaður opnar sig um morðið á Kennedy sextíu árum síðar Paul Landis starfaði hjá leyniþjónustu Bandaríkjanna þegar John F. Kennedy, þáverandi Bandaríkjaforseti, var myrtur í nóvember 1963. Landis var í Dallas þar sem morðið átti sér stað og varð vitni að atburðunum afdrifaríku, og hefur nú opnað sig um þá sextíu árum síðar. 10.9.2023 17:32
Telur játningu Eimskipa vera taktíska ákvörðun Hörður Felix Harðarson, lögmaður Samskipa, viðurkennir að játning Eimskipa í máli er varðar ólöglegt samráð fyrirtækjanna setji málið í einkennilega stöðu. Þrátt fyrir það telur hann játninguna vera taktíska ákvörðun fyrirtækisins, en segir Samskip ekki hafa viljað taka álíka ákvörðun. 10.9.2023 11:42
Vonlaus barátta gegn símum í bíó Snjallsímar og kvikmyndahús fara illa saman. Sá sem þetta skrifar upplifir mikla aukningu í símanotkun bíógesta á meðan á sýningu stendur. Kvikmyndagagnrýnandinn Jóna Gréta Hilmarsdóttir segist hafa orðið vör við þessa aukningu. Blaðamaðurinn Þórarinn Þórarinsson segist hins vegar ekki upplifa að vandamálið sé í mikilli aukningu, en þó mögulega einhverri. Að minnsta kosti sé ástandið ekki að skána. 10.9.2023 11:00
Samskip, bandarískar forsetakosningar og samgöngusáttmáli Fyrsti gestur Kristján Kristjánssonar á Sprengisandi í dag verður Hörður Felix Harðarson, sem hefur verið lögmaður Samskipa frá upphafi. Forsvarsmenn fyrirtækisins halda því fram fullum fetum að Samkeppniseftirlitið sé á villigötum í mörg þúsund blaðsíðna greinargerð um samkeppnisbrot fyrirtækisins. 10.9.2023 09:40
Milt sunnanlands en svalt norðanlands Lítil lægð mun fara til austurs yfir sunnanvert landið í dag og þar af leiðandi verður vindur því norðaustlægur. 10.9.2023 09:11
Musk uppljóstar óvenjulegu nafni áður ótilgreinds sonar Elon Musk, auðugasti maður heims, hefur greint frá nafni þriðja barns síns og tónlistarkonunnar Grimes. Hann heitir Tau Techno Mechanicus. 10.9.2023 08:47
Tala látinna hækkar og almenningur sefur á götum úti Meira en tvöþúsund eru látnir eftir jarðskjálfta sem reið yfir í Marokkó á föstudagskvöld. 10.9.2023 07:40