Handtekinn eftir hliðarkeyrslu á talsverðum hraða Jón Þór Stefánsson skrifar 6. október 2024 07:28 Lögreglan hafði í nógu að snúast í nótt. Vísir/Vilhelm Lögreglan var kölluð til vegna umferðarslyss á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi. Einum bíl hafði verið ekið í hlið annars bíls á talsverðum hraða, en einn var talinn slasaður á vettvangi.
Ökumaður annars bílsins var handtekinn grunaður um akstur undi áhrifum áfengis, og var sviptur ökuréttindum. Áreksturinn átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar fjögur, sem sér um löggæslu í Grafarvogi, Grafarholti, Mosfellsbæ og Árbæ. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Í henni segir að það hafi verið mikið að gera hjá lögreglunni í gærkvöld og nótt. Átta hafi gist fangageymslu og 111 mál bókuð í kerfum lögreglu. Tilkynnt var um slagsmál á veitingastað í miðbænum. Einn var handtekinn á vettvangi grunaður um líkamsárás. Þá hafði lögregla eftirlit með veitinga- og skemmistöðum í miðbænum. Fram kemur að skrifa þurfti nokkrar skýrslur vegna réttindaleysis dyravarða eða ungmenna inni á skemmtistöðum. Nokkrir staðir megi eiga von á sektum vegna þess. Þá hafði lögregla afskipti af ökumanni sem reyndi að hlaupa undan henni. Í dagbókinni segir að hann hafi komist mjög skammt áður en hann var hlaupinn uppi og handtekinn. Þá var lögregla kölluð til vegna einstaklings sem gat ekki greitt fyrir leigubíl og neitaði svo að segja til nafns við afskipti lögreglu.
Lögreglumál Umferðaröryggi Samgönguslys Reykjavík Mest lesið Björguðu á þriðja tug af Eyjafjallajökli Innlent Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Erlent Íslendingur á Grænlandi: „Það heyrist ekki múkk í neinum“ Innlent Ný gæðavottun stuðli ekki að mismunun Innlent Hestar á vappi um Kórana Innlent Blöskrar biðlaunin: „Hvernig segi ég mig úr þessu drasli?“ Innlent Reyndi að stinga lögreglu af á torfæruhjóli Innlent Hlýnandi veður Veður Mette Frederiksen heldur til Grænlands Erlent Tilkynnt um ungmenni sem framdi rán og líkamsárás Innlent Fleiri fréttir Reyndi að stinga lögreglu af á torfæruhjóli Björguðu á þriðja tug af Eyjafjallajökli Ungir skátar sæmdir forsetamerkinu Ný gæðavottun stuðli ekki að mismunun Mikið líf og fjör á Íslandsleikunum á Selfossi Íslendingur á Grænlandi: „Það heyrist ekki múkk í neinum“ Hestar á vappi um Kórana Tilkynnt um ungmenni sem framdi rán og líkamsárás Spenna á Grænlandi og íslenskumiði í glugga leigubíla Bæjarstjórnin gagnrýnir skýrslu um hvernig eigi að byggja upp bæinn Roðsnakk frá 19 ára frumkvöðli slær í gegn Tímaspursmál hvenær Bandaríkin snúi sér að Íslandi Blöskrar biðlaunin: „Hvernig segi ég mig úr þessu drasli?“ Grænlandsheimsókn Vance og tíu tíma langir tónleikar Mengun úr jarðvegi orsakaði skrýtið bragð af neysluvatni Bein útsending: Deildarmyrkvi á sólu Unglingur hrækti á lögreglumann Ekki náð að góma þjófa í dulargervi Vildu hætta Ameríkuflugi en keyptu svo 757-þotuna Fullveldi Íslands háð því að alþjóðalög séu virt Karlar eiga mjög erfitt með að viðurkenna risvandamál Nýtt hverfi innblásið af gömlu Reykjavík RÚV leiðréttir umfjöllun um mál Ásthildar Lóu Eldur í gömlu sundhöllinni í Keflavík Mannskæður jarðskjálfti og vasaþjófar í dulargervi Borgarfulltrúi sagður hafa sýnt ógnandi hegðun á íbúafundi Jagúar, skrautleg ferð, Baltasar Kormákur og fullt af „ís“ Eins leitað eftir slagsmál Greiða atkvæði um verkfall á Grundartanga Kæra skógrækt við Húsavík vegna rasks á varplendi fugla Sjá meira