Sundhnúkasprungan sögð hættulegust fyrir Grindavík Augu vísindamanna, almannavarna sem og almennings, ekki síst íbúa Suðurnesja, beinast núna að gígaröð og sprungu sem kennd eru við Sundhnúka norðaustan Grindavíkur. Frá því óvissustigi var lýst yfir fyrir hálfum mánuði hefur öll athyglin verið á svæðinu norðvestan við fjallið Þorbjörn og þar með Svartsengi og Bláa lóninu. Kastljósið færðist hins vegar í dag að Sundhnúkasvæðinu eftir að áköf skjálftahrina hófst þar í morgun, austan við fjallið Sýlingarfell. 10.11.2023 21:51
Vegfarendum býðst að aka um Teigsskóg í mánuðinum Bundið slitlag er núna komið á allan vegarkaflann um hinn umdeilda Teigsskóg í Þorskafirði. Vegagerðin stefnir að því að hleypa umferð á veginn síðar í þessum mánuði. 10.11.2023 14:28
Siglingatími yfir Breiðafjörð styttist með nýjum Baldri Siglingatími yfir Breiðafjörð styttist með nýjum Baldri, sem áformað er að hefji áætlunarsiglingar milli Stykkishólms og Brjánslækjar í næstu viku. Ferjan fór í reynslusiglingu síðdegis eftir endurbætur í Hafnarfirði. 9.11.2023 21:48
Öflugt landris en engin merki um að eldgos sé yfirvofandi Engin skýr merki eru um að kvika sé að brjóta sér leið upp til yfirborðs á Reykjanesi. Landris við fjallið Þorbjörn heldur þó áfram af krafti. 1.11.2023 22:00
Yndislegt að búið sé að opna Þorskafjarðarbrú Gleði ríkti í Þorskafirði í dag þar sem fagnað var opnun nýrrar brúar yfir fjörðinn, átta mánuðum á undan áætlun. Brúin styttir Vestfjarðaveg um tíu kílómetra. 25.10.2023 22:22
Telja líklegt að nasistar hafi haft eitthvað stærra í bígerð Gamlir svifflugmenn telja líkur á því að nasistar hafi nýtt þýskan svifflugleiðangur til Íslands skömmu fyrir stríð til að undirbúa mögulega innrás. Breski herinn taldi hættuna það mikla að hann gerði Sandskeið ónothæft sem flugvallarstæði með því að þekja það sprengigígum. 24.10.2023 22:22
Nýr kafli með bundnu slitlagi að opnast á Dynjandisheiði Stefnt er að því að nýr vegarkafli á Dynjandisheiði með bundnu slitlagi verði tekinn í notkun eftir næstu helgi. Kaflinn er 3,5 kílómetra langur og liggur um hæsta hluta fjallvegarins milli núverandi slitlagsenda við Norðdalsá, norðan Bíldudalsgatnamóta, og Vatnahvilftar neðan Botnshests ofan Geirþjófsfjarðar. 24.10.2023 18:15
Boðað til vígsluhátíðar brúar yfir Þorskafjörð Vegagerðin hefur boðað til vígsluathafnar í Þorskafirði í Reykhólasveit klukkan 14 á morgun, miðvikudag 25. október. Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra, Bergþóra Þorkelsdóttir vegamálastjóri og Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveitarstjóri Reykhólahrepps, munu þá formlega opna nýju Þorskafjarðarbrúna með því að klippa á borða. 24.10.2023 11:26
Skipagöngin boðin út í von um hagstætt tilboð Norska ríkisstjórnin hefur falið Kystverket, siglingastofnun Noregs, að hefja útboðsferli skipaganganna við Stað, sem yrðu fyrstu skipagöng heims. Stefnt er að því að útboðið verði á næsta ári, að undangengnu forvali verktaka, og að framkvæmdir hefjist árið 2025. Áætlað er að gerð ganganna taki fimm ár. 24.10.2023 10:20
Telur nasista hafa myrt þýskan flugkennara á Íslandi árið 1938 Þýskur flugkennari sem kom til Íslands að kenna Íslendingum svifflug í aðdraganda síðari heimsstyrjaldar var myrtur í Reykjavík af útsendara nasista. Þetta er ályktun höfundar nýútkominnar bókar um njósnara nasista og SS-menn á Íslandi á valdatíma Adolfs Hitlers. 22.10.2023 19:48